Læknablaðið - 15.11.1996, Page 77
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
817
Flateyri
Flateyrarlæknishérað er laust til umsóknar. Ýmis hlunnindi í boði svo sem
staðarsamningur.
Staðan veitist frá 1. desember næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar gefa Bjarnheiður í vinnusíma 456 7638, heimasíma 456 7734 og
Kristján í heimasíma 567 7699.
Sjúkrahús Skagfirðinga
Sauðárkróki
Staða yfirlæknis
Laus er til umsóknar staða yfirlæknis við sjúkrahúsið, um er að ræða 75%
stöðu. Æskileg sérgrein er almennar skurðlækningar.
Staða læknis
Einnig er laus staða læknis við sjúkrahúsið, um er að ræða 75% stöðu. Æskileg
sérgrein er kvensjúkdómalækningar.
Hér er um að ræða fjölbreytt og krefjandi störf og er vinnuaðstaða og tækjakost-
ur á stofnuninni mjög góður. Á sjúkrahúsinu eru 76 rúm sem skiptast í 16 rúm á
sjúkradeild, fjögur rúm á fæðingadeild og 56 rúm á hjúkrunardeildum. Þar fyrir
utan er 10 rúma þjónustudeild rekin í tengslum við sjúkrahúsið. Á sjúkrahúsinu
er rekin öflug og stöðugt vaxandi starfsemi.
Þetta eru kjörin tækifæri fyrir framtakssama og metnaðarfulla einstaklinga.
Báðum stöðunum fylgja embættisbústaðir. Hvernig væri að takast á við ný og
spennandi verkefni og kynnast um leið Skagafirði og Skagfirðingum af eigin
raun?
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 1. desember næstkomandi en stöðurnar
veitast eftir nánara samkomulagi. Umsóknir skulu sendast til Birgis Gunnars-
sonar framkvæmdastjóra sjúkrahússins. Upplýsingar veita yfirlæknir og/eða
framkvæmdastjóri í síma 455 4000.
f Skagafirði búa um það bil 5.000 manns þar af búa 2800 manns á Sauðárkróki. Sauðárkrókur hefur
verið í stöðugum vexti undanfarin ár og byggir á öflugu og fjölbreyttu atvinnulífi og fjölbreytni í
þjónustu við íbúa héraðsins. fþrótta- og félagslíf er einnig mjög öflugt í héraðinu. Fjölbrautaskóli
Norðurlands vestra er á Sauðárkróki með tæplega 500 nemendur, á Hólum í Hjaltadal er rekinn
bændaskóli. Sauðárkrókur Iiggur vel við samgöngum og eru þær góðar bæði í lofti og á landi.
Skagafjörður er rómaður fvrir náttúrufegurð og má segja að þar séu merkir staðir og atburðir úr
íslandssögunni við hvert fótmál.