Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Page 2
Óánægja ríkir meðal hluta tilvon-
andi íbúa nýrra dvalaríbúða Eirar í
Mosfellsbæ. Óánægjan snýr að háu
þjónustugjaldi sem krafist er af íbú-
unum og vilja þeir meina að gjaldið
sé margfalt hærra en gjöld sem inn-
heimt eru fyrir þjónustuíbúðir ann-
ars staðar. Gjöldin samanstanda af
þjónustugjaldi og viðhaldssjóði.
Sveitarfélagið Mosfellsbær gerði
þjónustusamning við Eir um að
byggja 38 nýjar íbúðir fyrir aldraða
og fyrirtækið selur íbúðirnar áfram
til þeirra sem sækja um vist. Áhersla
sveitarfélagsins er sú að íbúðirnar
séu seldar á kostnaðarverði og verð
fyrir þjónustu öllum viðráðanlegt.
Heimildarmenn greina frá því að
þjónustugjaldið sem innheimt verð-
ur geti farið upp í 90 þúsund krónur
í samanburði við 26 þúsund krónur
á mánuði í Sunnuhlíð. Upphæðin er
því ríflega þreföld. Tveir íbúar Eirar
hafa hætt við eftir að gjöldin komu í
ljós.
Kvartanir hafa borist
Unnur V. Ingólfsdóttir, félags-
málastjóri Mosfellsbæjar, kannast
við óánægju meðal íbúa og aðstand-
enda sem leitað hafa til félagsmála-
svið sveitarfélagsins undanfarið.
Hún vísar ábyrgðinni alfarið yfir á
Eir.
„Ég hef heyrt af þessu. Íbúðirn-
ar eru alfarið á vegum Eirar og þeir
verða að svara fyrir þessi mál. Við
höfum ekki fengið nákvæmar upp-
lýsingar um þau gjöld sem innheimt
eru og höfum hingað til ekki haft
svigrúm til að skoða þetta nánar. Til
okkar hafa borist kvartanir og fólk er
óánægt með hversu óljósir hlutirnir
virðast vera,“ segir Unnur. „Að sumra
mati eru upplýsingar um gjöldin
ekki nógu borðleggjandi. Hingað
hafa komið íbúar og aðstandendur
þeirra. Okkur er kunnugt um þessa
óánægju og munum fara ofan í þetta.
Við munum byrja á að óska eftir nán-
ari upplýsingum.“
Bara misskilningur
Sigurður Helgi Guðmundsson,
forstjóri Eirar, segir óánægju íbú-
anna á misskilingi byggða. Hann
bendir á að gjöldin hjá Eir séu ekki
hærri en á öðrum sambærilegum
þjónustuíbúðum. „Þetta er bara mis-
skilningur. Viðhaldsprósentan okk-
ar er með því lægsta sem þekkist og
heilsdagsgjöldin eru ekki há. Ég veit
ekki hvernig hægt er að fá út 90 þús-
und, það reikningsdæmi stenst ekki.
Ég kannast við þessa óánægju og
til okkar hefur töluvert verið leitað
vegna þessa,“ segir Sigurður Helgi.
„Um leið og endanlegur kostn-
aður lá fyrir kom þessi umræða
upp og tveir hafa hætt við.
Þetta er allt byggt á kostn-
aðarverði,“ segir Sigurður
Helgi. „Eðlilega spyr fólk út
í þessa hluti og ég hef náð
að sýna flestum fram á
að þetta er bara mis-
skilningur, líklega
byggður á skorti
á upplýsing-
um um hvernig
þetta er á mark-
aðnum. Við höf-
um gert allt til að
halda verðinu
niðri án þess að
draga úr gæðun-
um. Ég held hins
vegar að þetta sé
með því hagstæð-
asta sem fólk hef-
ur kost á og síður
en svo hugsað sem
íbúðir fyrir heldri
borgara.“
Óþarflega hátt
Ásgeir Jóhannes-
son, fyrrverandi for-
stöðumaður Sunnu-
hlíðar, hefur heyrt
af óánægju vegna hárra þjónustu-
gjalda í nýju íbúðunum. Hann ítrek-
ar að hann hafi sjálfur ekki kynnt sér
allar tölur málsins eða hvað sé í þeim
falið. „Það er ágreiningur kominn
upp varðandi gjöldin sem sett
hafa verið upp fyrir þjónustuna
og mér finnst það slæmt mál.
Óánægjuna hef ég heyrt mesta
hjá þeim sem eru að flytja þarna
inn. Þær tölur sem ég hef heyrt eru
óþarflega háar og virðast vera hærri
en upphaflega var gert ráð fyr-
ir. Það þarf að skýra vel hvað
er innifalið í þessu,“ segir Ás-
geir. „Ég hef ekki séð samn-
inga um þetta en ég heyri al-
menna óánægju með þennan
mismun. Óánægjan kraumar
undir. Fólki finnst þetta mik-
ið að borga og það skiptir
miklu máli að skýra hvort
þetta eigi bara að vera fyr-
ir vel stætt fólk eða hvort
meðalmaðurinn ráði við
þetta. Því miður finnst mér
sú vera þróunin eftir að
einkaaðilar komu inn í þetta.
Það er veikleiki og áhyggjuefni
út af fyrir sig.“
föstudagur 4. maí 20072 Fréttir DV
Keyrði á slá
Átta minniháttar árekstrar
áttu sér stað á höfuðborgarsvæð-
inu fyrripartinn í gær. Klukk-
an níu var bifreið ekið á aðra
kyrrstæða í stæði og minnihátt-
ar meiðsli urðu á bílstjóra. Þá
var vörubifreið með háan farm
ekið undir hæðarviðvörunarslá
með þeim afleiðingum að hún
féll á tvær bifreiðar. Töluverðar
skemmdir urðu á bifreiðunum
og einhverjar tafir urðu á umferð.
Auk þess áttu sér stað minni-
háttar árekstrar í Vatnagörðum,
Klettshálsi, Sævarhöfða. Lögregl-
an átti engar skýringar á þessum
fjölda slysa, en víst er að ekki var
veðrinu um að kenna.
Óvenju mörg
sjúkraflug
Slökkviliðsmenn á Akur-
eyri hafa haft í nægu að snú-
ast að undanförnu.
Slökkviliðsmenn þurftu
þrisvar að sinna sjúkraflugi á
sólarhringstíma, frá miðviku-
degi fram á fimmtudag, hvort
tveggja vegna veikinda og slysa.
Ofan á það bættust þrettán
sjúkraflutningar sem er tölu-
vert yfir meðallagi hjá slökkvi-
liðsmönnum á Akureyri.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Ók á bíl og hús
Ökumenn og farþegar
sluppu heilir á húfi úr tveim-
ur árekstrum á Suðurnesjum
í gær. Báðir áttu þeir sér stað
um hádegisbilið.
Tveir bílar lentu í árekstri
þar sem annar ók í veg fyrir
hinn á gatnamótum Græn-
ásvegar og Reykjanesbrautar.
Engin meiðsl urðu á fólki en
bílarnir voru nokkuð hnjask-
aðir og var annar þeirra dreg-
inn í burtu. Á nokkurn veginn
sama tíma var fólksbíl fyrst
ekið á kyrrstæðan bíl og það-
an á hús í Grófinni, sem er í
vesturhluta bæjarins. Engin
meiðsl urðu á fólki en bíll-
inn var töluvert hnaskaður
að framan en var þó ekið af
slystað að rannsókn lokinni.
Stjórnvöld tryggi
rekstrargrundvöll
Guðrún Dögg Guðmunds-
dóttir, framkvæmdastjóri Mann-
réttindaskrifstofu, fagnar stefnu-
breytingu í utanríkisráðuneyti og
segir hana afar brýna. Hún vísar
þar til þess að Valgerður Sverris-
dóttir utanríkisráðherra segist
vilja að hér starfi sjálfstæð mann-
réttindastofnun sem stjórnvöld
fjármagni. „Það eru frábærar
fréttir að ráðuneytið sýni vilja til
þess að koma á
sjálfstæðri mann-
réttindastofn-
un með föstum
fjárstuðningi frá
ríkinu.“
Valgerður
sagði á dögun-
um að hún myndi
sérstaklega beita
sér fyrir því að á Íslandi starfaði
sjálfstæð mannréttindastofn-
un í samræmi við Parísarreglur
Sameinuðu þjóðanna. Mann-
réttindaskrifstofa Íslands starfaði
sem landsstofnun, á fjárlögum
og með fulltingi stjórnvalda, allt
til ársins 2005, þegar stjórnvöld
ákváðu að hætta að styrkja hana.
Kvartanir hafa borist til félagsmálasviðs Mosfellsbæjar vegna hárra þjónustugjalda sem
innheimt eru í nýjum þjónustuíbúðum Eirar fyrir aldraða. Forstjóri Eirar, Sigurður
Helgi Guðmundsson, segir óánægjuna á misskilningi byggða.
VERÐIÐ FÆLIR FÓLK FRÁ
TrauSTi HafSTeinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Óánægja með verð íbúar þjónustuíbúða
Eirar í mosfellsbæ eru sumir svekktir vegna
hárra gjalda sem krafist er fyrir þjónustu.
„Skiptir miklu máli
að skýra hvort þetta
eigi bara að vera fyr-
ir vel stætt fólk eða
hvort meðal maður-
inn ráði við þetta.“
„Ástandið er skelfilegt vegna þessa
manns,“ segir Árni Logi Sigurbjörns-
son, meindýraeyðir á Húsavík. Hon-
um blöskrar að Hans Alfreð Krist-
insson skuli ganga laus. Hans var
dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra á dögunum fyrir hryllilega árás
þar sem hann stakk konu í bakið og
einnig karlmann. Þá henti hann log-
andi púða í konuna þannig að eld-
ur braust út í húsinu þar sem fólk-
ið dvaldi á Húsavík. Þegar lögreglan
kom á svæðið réðist hann vopnaður
hnífi á lögreglumann sem reyndi að
bjarga konunni út úr húsinu.
Maðurinn hlaut þriggja ára dóm
fyrir árásina sem þótti sérlega ófyr-
irleitin en hefur ekki hafið afplánun.
Konan brenndist talsvert og þurfti
að dvelja í nokkurn tíma á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri vegna
þessa.
Hans Alfreð er búsettur í Sandvík.
Lögreglan á Húsavík hafði afskipti
af konu sem var í slagtogi við Hans
Steinar. Sjálfur hefur hann ekki
komið við sögu lögreglu síðan hon-
um var sleppt úr gæsluvarðhaldi.
„Maðurinn er tifandi tíma-
sprengja og það er deginum ljós-
ara að dómsvaldið hefur brugðist,“
segir Árni Logi. Hann hefur mikl-
ar áhyggjur af stöðu mála enda
sveitungi mannsins. Hann segir
nágranna Hans Alfreð vera ótta-
slegna og að fólk kvíði því sem gæti
gerst.
Ástæðan fyrir að hann geng-
ur laus er sú að hann bíður nið-
urstöðu Hæstaréttar eftir að hafa
áfrýjað dómnum. Þangað til nið-
urstaða fæst í Hæstarétti gengur
Hans Alfreð líklega laus.
Á síðasta ári kom svipað mál
upp þegar nauðgarinn Jón Péturs-
son var handtekinn eftir að hafa
verið dæmdur í fimm ára fang-
elsi fyrir nauðgun og líkamsár-
ás. Ástæðan var sú að kona lagði
fram kæru um að Jón hefði nauðg-
að henni þegar hann beið Hæsta-
réttardóms. Eftir að það tilvik kom
upp var hann látinn byrja að af-
plána refsingu.
Sigurður Brynjólfsson, yfir-
lögregluþjónn hjá lögreglunni á
Húsavík, segir að ríkissaksóknari
hafi farið fram á að að gæsluvarð-
hald yfir Hans Alfreð yrði fram-
lengt. Dómari hafnaði kröfu ríkis-
saksóknara.
Ekki er ljóst hvenær afplánun
Hans Alfreðs hefst en það verð-
ur ekki fyrr en niðurstaða fæst í
Hæstarétti Íslands um málið.
valur@dv.is
Húsvíkingar uggandi vegna dæmds ofbeldismanns sem gengur laus:
Óttaslegnir vegna hnífamanns
frá Húsavík maður sem stakk tvennt
og var dæmdur í þriggja ára fangelsi
hefur ekki verið færður í fangelsi og
vekur ugg meðal íbúa.
Borga þrefaltn Eldri borgarar í
mosfellsbæ kvarta undan háum
gjöldum.