Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Síða 6
Nýr aðstoðaryfir-
lögregluþjónn
Gunnlaugur K. Jónsson hef-
ur verið skipaður aðstoðaryfir-
lögregluþjónn
hjá lögreglunni
á höfuðborgar-
svæðinu. Gunn-
laugur, sem hóf
störf í lögregl-
unni í Reykjavík
1977, útskrifaðist
frá Lögregluskóla
ríkisins 1979 en
eftir námið var hann í umferðar-
deild og almennri deild.
Gunnlaugur hefur sótt fjöl-
mörg námskeið og ráðstefnur,
heima og erlendis.
Um tíma kenndi hann við
Lögregluskóla ríkisins. Gunn-
laugur hefur gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir lögreglumenn
og var nýverið sæmdur heiðurs-
merki Landssambands lögreglu-
manna.
föstudagur 4. maí 20076 Fréttir DV
Frambjóðandi VG skrifar með hjálp veraldarvefsins:
Lærir íslensku með Google
Paul Nikolov
skrifar færslur á
bloggsíðu sína og notar
google.is til þess að hafa
íslenskuna rétta.
„Ég nota google.is til þess að
hjálpa mér við skriftirnar á heima-
síðunni minni,“ segir Paul Nikol-
ov, frambjóðandi Vinstri-grænna í
Reykjavíkurkjördæmi norður. Blogg
Pauls hefur vakið athygli fyrir góða
íslensku en sjálfur er hann af banda-
rísku bergi brotinn. Hann er þó bú-
inn að búa hér í rúm sjö ár og talar
íslensku. Hann segir talmálið mjög
ólíkt því sem er skrifað. Hann tekur
dæmi um að í töluðu máli segja Ís-
lendingar „mar“ en að sjálfsögðu sé
það skrifað maður.
„Yfirleitt gúggla ég það orðasam-
hengi sem ég held að sé rétt, ef ég fæ
þrjár niðurstöðu þá veit ég að það er
vitlaust, ef ég fæ þúsundir þá veðja
ég frekar á það,“ segir Paul um stór-
sniðuga leið til að skrifa málið rétt.
Hann bætir við að fleiri Íslendingar
mættu gera slíkt hið sama því hann
sjái jafnvel villurnar hjá öðrum.
Hann segir að algengasta villan sem
hann les sé „mér langar“, en rétt er
að segja, „mig langar“.
„Ég er reyndar svakalega lengi að
læra,“ segir Paul og hlær. Hann seg-
ist gera sömu villurnar ítrekað. Paul
segir að það sé talsvert langur tími
þangað til hann skrifi rétta íslensku.
Hann játar að stundum vandi
hann sig ekki þegar hann skrifar
færslur inn á bloggsíðuna sína og þá
geta færslurnar orðið hrikalega vit-
lausar að hans sögn. Þá reynir hann
að leiðrétta þær síðar en þó er allur
gangur á því.
„Ég er mjög ánægður með hvern-
ig kosningabaráttan hefur verið hér
á landi,“ segir Paul aðspurður um
muninn á baráttunni hér á landi og
í heimalandi hans, Bandaríkjun-
um. Hann segir að í Bandaríkj-
unum sé varla rætt um málefni
heldur frambjóðendur ataðir auri.
Hann vill meina að Íslending-
ar einbeiti sér mun meira að
því sem máli skiptir í um-
ræðunni heldur öðru.
Hann segist vera stolt-
ur af þeim kosti í fari
Íslendinga.
valur@dv.is
Námsmaðurinn Egill Sigurðsson slasaðist alvarlega þegar ráðist var á hann í bænum Brig í Sviss. Helming-
ur andlitsins lamaðist og hann hlaut opið beinbrot. Hann er að læra hótelrekstur og þarf að vera glerfínn í
svörtum jakkafötum í skólanum. Árásarmannanna er leitað en Egils bíður aðgerð til þess að laga taugarnar í
andlitinu.
KJÁLKABROTINN OG LAMAÐUR
Í ANDLITI EFTIR LÍKAMSÁRÁS
„Vinstri hlutinn af andliti mínu er
lamaður,“ segir Egill Sigurðsson
nemi í Sviss. Hann varð fyrir fólsku-
legri árás fyrir viku. Áverkarnir eru
hrikalegir en hann er meðal annars
kjálkabrotinn, taugar í andliti sködd-
uðust og hann hlaut opið beinbrot í
andliti. Það voru nokkur ungmenni
sem réðust á hann en árásin var með
öllu tilefnislaus. Egill er nemi í Cés-
ar Ritz þjónustuskólanum í bænum
Brig en þar þarf hann að vera gler-
fínn í svörtum jakkafötum.
„Ég var að trítla heim ásamt
tveimur vinum mínum þegar við
mættum þessum hópi af krökk-
um,“ segir Egill. Hópurinn mun
vera nokkuð alræmdur í bænum
Brig þar sem Egill leggur stund á
nám í hótelrekstri. Hann segir að
ungmennin hafi gert hróp og köll
að þeim félögum en Egill og fólk-
ið sem var með honum virti ung-
mennin ekki viðlits í von um að
komast í burtu án teljandi vand-
ræða. Það gekk ekki eftir því ung-
menninn veittust að þeim. Egill
segist skyndilega hafa fengið þungt
högg í höfuðið. Hann taldi að vopn
hefði verið notað við árásina.
Fótboltaspörk í höfuðið
„Þeir tóku nokkur fótboltaspörk í
höfuðið á mér en létu allavega stelp-
una í friði,“ segir Egill um hina til-
gangslausa árás. Stúlkan sem var með
honum slapp við árásarmennina en
Egill var ekki jafn heppinn. Hann seg-
ir að ungmennin hafi skyndilega hætt
að slá hann þegar þau sáu hversu mik-
ið honum blæddi. Að sögn Egils virtist
sem ungmennunum hefði hreinlega
brugðið þegar þau sáu blóðið sem
kom úr honum. Þau hlupu þá á brott
og vinum Egils tókst að hlúa að hon-
um.
Talaði íslensku
Egill var mjög ringlaður eftir árás-
ina enda fékk hann lífshættuleg högg
í höfuðið. Vinir hans hlúðu að hon-
um og komu honum aftur í skólann
þar sem hann býr á meðan námsdvöl
hans stendur.
„Ég talaði bara íslensku og hafði
enga hugmynd hvar ég væri,“ segir Eg-
ill um atburðarrásina eftir að honum
var komið til síns heima. Hann segist
hafa farið að sofa en þakkar fyrir að
ekki hafi farið verr enda getur það ver-
ið hættulegt að sofna sé maður með
heilahristing.
Verkjapillur og námsmetnaður
„Ég fór til læknis sem púslaði mér
saman,“ segir Egill sem líður mun bet-
ur í dag en fyrir viku. Hann stundar
verulega kröfuhart nám við César Ritz
skólann en hann er einn virtasti hótel-
og veitingahúsaskóli veraldar.
Að sögn Egils var aldrei í boði að
slá slöku við í náminu og þess vegna
fékk hann sér verkjapillur og skellti sér
í jakkafötin áður en hann fór í skólann.
Afar strangar reglur eru um klæðaburð
í skólanum. Egill segir að menn séu
sendir heim úr skólanum ef skórnir
eru ekki nógu vel pússaðir. Því er ljóst
að kröfur skólans eru virkilega harðar.
Jakkaföt í ofsahita
„Það getur verið alveg rosalegt
að vera í svörtum jakkafötum í þrjátíu
stiga hita,“ segir Egill um erfiðar stund-
ir í náminu hans. Hann segir að það
venjist þó óvenjufljótt að vera alltaf
svona fínn. Honum fannst hann alltaf
vera hálf kjánalegur til að byrja með en
það er breytt í dag.
„Núna fer maður út í búð í jakka-
fötunum og kaupir mjólk,“ segir Eg-
ill hlæjandi sem er búinn að venj-
ast jakkafataklæddu lífi í Sviss. Hann
kvartar þó yfir hitanum enda hefur
það komið fyrir að blekið skolast til
þegar svitinn lekur á pappírinn.
Rannsókn í gangi
„Næsta sem gerist er að ég fer í
aðgerð til þess að fá tilfinningu aft-
ur í andlitið og svo er lögreglan að
leitað að árásarmönnunum,“ segir
Egill. Rannsóknin hefur ekki leitt til
handtöku enn sem komið er. Stúlk-
an sem var með honum hefur skoð-
að myndir af brotamönnum en það
hefur ekki borið árangur. Egill segist
vonast til þess að aðgerðin á andliti
sínu heppnist vel en hann óttast að
hann nái ekki fullum bata. Hann seg-
ir það óhugnalegt að fara í sturtu og
finna aðeins fyrir vatninu öðru meg-
inn á andlitinu.
„Svo getur maður verið svolít-
ið perralegur þegar maður bros-
ir svona skökku brosi,“ segir Egill
hlæjandi en hann tekur árásinni til-
hæfulausu með jákvæðu viðhorfi og
hyggst klára námið sitt í hótelrekstr-
inum. Hann segist vera búinn að ná
upp því sem hann missti af en allir í
skólanum hafa verið mjög hjálplegir
í raunum Egils.
ValuR gRETTiSSoN
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Svo getur maður verið
svolítið perralegur þeg-
ar maður brosir svona
skökku brosi.“
César Ritz glæsilegur skóli í alpabænum Brig í sviss en þar stundar Egill nám í
hótelrekstri.
Egill Sigurðsson segist
hafa verið feginn að ekki sást
meira á honum en hann ber
sig furðu vel eftir stórhættu-
lega líkamsárás.