Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Page 8
föstudagur 4. maí 20078 Fréttir DV
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Líki leiðtoga rænt
Lögreglan í Búdapest, höf-
uðborg Ungverjalands, leitar
nú að líki Janos Kadar, síðasta
leiðtoga kommúnista í land-
inu. Samkvæmt frétt BBC var
höfuðkúpu hans og nokkrum
beinum rænt úr gröf hans
ásamt íláti með ösku konu
hans. Nálægt grafreitnum
hafði verið skrifað á vegg að
morðingi og föðurlandssvik-
ari ætti ekki skilið að hvíla í
vígðri mold. Kadar hafði verið
við völd í landinu í þrjátíu og
tvö ár þegar uppreisnin gegn
kommúnistum var gerð.
Öryggi hjálpar-
starfsmanna
ábótavant
Árásum á hjálparstarfsmenn
í Darfur í Súdan hefur farið fjölg-
andi síðasta ár þrátt fyrir friðar-
samkomulag. Af þessum sökum
hafa erlendar stofnanir þurft
að draga úr umfangi starfsemi
sinnar á svæðinu samkvæmt
frétt The Independent í gær. Tal-
ið er að fjórar milljónir óbreyttra
borgara hafi orðið fyrir barð-
inu á átökunum en ekki hefur
verið hægt að koma aðstoð til
hátt í milljón manns. Í dag eru
fjórtan þúsund hjálparstarfs-
menn í landinu á vegum áttatíu
stofnana.
Drottningin
heimsækir Bush
Sex daga opinber heimsókn
Elísabetar Englandsdrottingar til
Bandaríkjanna
hófst í gær. Þetta
er fimmta heim-
sókn hennar til
landsins síðan
hún tók við krún-
unni samkvæmt
frétt BBC. Í gær
var drottningin
viðstödd minn-
ingarhátíð um þá sem drepn-
ir voru í skotárás á nemendur
í skóla í Virgínu-fylki nýverið.
Drottningin og maður henn-
ar ljúka heimsókn sinni með
tveggja daga dvöl í Washington í
boði George W. Bush forseta.
Flutningur á minnismerki sem staðið hefur í höfuðborg Eistlands í hálfa öld er upp-
spretta milliríkjadeilu Eistlands og Rússlands. Evrópusambandið hefur blandað sér
í málið. Rússar segja Eistlendinga bera ábyrgð á deilunni og hafna ásökunum um að
þeir beiti þá viðskiptaþvingunum.
Allt í Bál og BrAnD
vegnA styttu
Ungliðahreyfing með tengsl við
stjórnvöld í Rússlandi gerði aðsúg
að sendiherra Eistlands í Moskvu
á miðvikudag. Hún komst undan
eftir að lífverðir hennar beittu tára-
gasi á mótmælendur. Forsetisráð-
herra Eistlands telur Rússa reyna
að takmarka sjálfstæði landsins
með aðgerðum sínum vegna máls-
ins. Ástæðan fyrir deilunum er
flutningur á minnismerki úr mið-
bæ Tallinn, höfuðborgar Eistlands.
Sovésk stytta
Minnismerkið sem um ræðir
er bronsstytta af hermanni Rauða
hersins sem var reist í kjölfar enda-
loka seinni heimsstyrjaldarinnar
til minningar um þá hermenn sem
létu lífið í stríðinu. Samkvæmt frétt
The Times í gær lítur hins vegar
meirihluti þjóðarinnar á minnis-
merkið sem tákn fyrir hálfrar ald-
ar yfirráð Sovétríkjanna í landinu.
Eistlendingar halda því fram að
tugir þúsunda landsmanna hafi
verið drepnir í stjórnartíð Sovétríkj-
anna og það var eitt af kosningalof-
orðum núverandi forsætisráðherra
í kosningunum í mars að láta fjar-
lægja styttuna. Málið er hins veg-
ar mjög viðkvæmt í landinu enda
er fjórðungur íbúa þess af rúss-
nesku bergi brotinn og efndu þeir
til fjölmennra mótmæla í Tallinn í
síðustu viku. Þar kom til átaka og
lést einn mótmælandi og hundr-
að fimmtíu og þrír særðust. Helm-
ingur allra þeirra sem eiga ættir að
rekja til Rússlands hefur ekki ríkis-
borgararétt í landinu.
Mótmæli við sendiráð
Í kjölfar mótmælanna við sendi-
ráð Eistlands þar sem ráðist var að
sendiherra landsins sem og sendi-
herra Svía hefur Evrópusamband-
ið beint þeim fyrirmælum til Rússa
að þeir passi betur upp á öryggi er-
lendra sendifulltrúa í landinu. Seg-
ist sambandið ætla að senda full-
trúa sinn til Moskvu til að ræða
málið. Fjölskyldur starfsmanna
sendiráðsins hafa verið fluttar burt
af ótta við frekari mótmæli. Ut-
anríkisráðuneyti Rússlands segir
þetta vera vandamál sem Eistlend-
ingar hafi sjálfir valdið með því að
flytja minnismerkið. Til marks um
stemminguna vegna málsins skor-
aði borgarstjóri Moskvuborgar á
borgarbúa að kaupa engar eist-
neskar vörur í ræðu sinni við 1. maí
hátíðarhöld.
Takmarka
olíuflutninga
Líkt og í deilum
sínum við Úkraínu og
Hvíta-Rússland hafa
Rússar nú takmark-
að flutning á olíu, gasi
og bensíni til Eistlands.
Lestir sem flytja vör-
unar milli landa ganga
mun hægar nú en vana-
lega. Stjórnvöld í Moskvu
vísa ásökunum um að þau
beiti viðskiptaþvingunum
á bug og segja viðgerðir á
lestarteinum vera ástæð-
una fyrir hægagangi lest-
anna. Rússar flytja um
tuttugu og fimm millj-
ón tonn af eldsneyti í
gegnum Eistland á ári
hverju.
Styttan stendur nú í her-
mannakirkjugarði í Tall-
inn.
Andrus Ansip, forsætisráðherra
Eistlands Lofaði því að styttan yrði flutt
í aðdraganda kosninga.
líkt og í deilum sín-
um við Úkraínu og
Hvíta-rússland hafa
rússar nú takmarkað
flutning á olíu, gasi og
bensíni til eistlands.
Minnismerki um hermenn
Rauða hersins ríkisstjórn
Eistlands lét flytja styttuna
rússum til mikillar reiði.