Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Síða 11
DV Fréttir föstudagur 4. maí 2007 11
28. ágúst 2002
Húsleit lögreglu
starfsmenn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra gera húsleit á skrifstofum
Baugs í skútuvogi og Baugsmál hefjast.
1. júlí 2005
Ákærur birtar
sakborningum eru birtar fyrstu kærur í málinu. Þær eru í 40 liðum og sakborning-
ar sex talsins: Jóhannes Jónsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín Jóhannesdóttir,
tryggvi Jónsson og endurskoðendurnir anna Þórðardóttir og stefán Hilmarsson.
Ákært er fyrir auðgunarbrot, bókhaldsbrot, brot á lögum um ársreikninga, hlutafé-
lagalögum og tollalögum.
12. ágúst 2005
kærurnar birtast
fjallað er um ákærurnar í breska dagblaðinu the guardian þar sem þær birtast í
fyrsta sinn opinberlega. Næsta dag birtast þær og athugasemdir sakborninga í
fréttablaðinu.
17. ágúst 2005
Ákærurnar þingfestar
sakborningar og verjendur þeirra mæta í dómssal þar sem ákærurnar eru þing-
festar. Ákærðu lýsa sig saklausa af ákærunum.
6. september 2005
efasemdir vakna
dómendur lýsa efasemdum um ákærurnar í bréfi til sak-
sóknara og verjenda. Þeir telja verknaðarlýsingu ábóta-
vant og óvíst að ákærurnar dugi í efnislega meðferð.
20. september 2005
öllu vísað frÁ dómi
Héraðsdómur reykjavíkur vísar öllum 40 liðum ákærunnar frá dómi. Þeir þykja
ekki ekki tækir til efnislegrar meðferðar.
10. október 2005
Átta kæruliðir endurreistir
Hæstiréttur vísar 32 kæruliðum ákærunnar frá dómi, meðal
annars þar sem verknaðarlýsingu þótti ábótavant eða óljóst
hverjir hefðu brotið af sér. Átta kæruliðum sem héraðsdómur
vildi vísa frá er hins vegar vísað í efnislega meðferð.
21. október 2005
nýr saksóknari
sigurður tómas magnússon var settur saksóknari í
Baugsmálinu eftir að ríkislögreglustjóri vísaði málinu
til ríkissaksóknara sem sagði sig frá því vegna van-
hæfis. Hans beið að taka ákvörðun um næstu skref.
15. mars 2006
sýknuð af öllum Ákæruliðum
sýkna er niðurstaðan í dómi Héraðsdóms reykjavíkur í
öllum átta ákæruliðunum sem eftir stóðu af upphaf-
legu ákærunni. settur saksóknari áfrýjar sex ákæru-
liðum en hlítir niðurstöðu tveggja, sýknu í ákærum á
hendur Jóhannesi Jónssyni og tryggva Jónssyni.
4. apríl 2006
nýjar Ákærur
settur saksóknari leggur fram nýja ákæru í nítján liðum. Jón Ásgeir Jóhannesson
og tryggvi Jónsson eru ákærðir fyrir fjárdrátt, fjársvik og bókhaldsbrot. Jón gerald
sullenberger er ákærður í fyrsta sinn í tengslum við málið.
30. júní 2006
enn einni Ákæru vísað frÁ
Héraðsdómur reykjavíkur vísar frá ákæru á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
um fjársvik, fyrir að hafa leynt því að hann ætti Vöruveltuna þegar Baugur keypti
fyrirtækið sem rak 10/11 verslanirnar. dómarar höfðu áður vakið athygli á því að
kæran væri óljós.
21. júlí 2006
stærsti Ákæruliðurinn fallinn
Hæstiréttur staðfestir úrskurð héraðs-
dóms um að ákæru um fjársvik vegna
kaupa Baugs á Vöruveltunni skuli vísað frá
dómi. gestur Jónsson, verjandi Jóns Ás-
geirs, segir kjarnanum í Baugsmálum hafa
verið vísað frá dómi. settur saksóknari
ákvað síðar að endurákæra ekki.
13. janúar 2007
réttað í Hæstarétti
málflutningur fer fram í síðustu sex ákæruliðunum í upphaflega málinu. sigurður
tómas magnússon, sérstakur ríkissaksóknari, líkir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni við
svikulan fjósamann.
25. janúar 2007
sýknuð af öllum Ákæruliðum
Hæstiréttur staðfestir sýknudóm héraðsdóms í þeim sex ákæruliðum sem eftir
stóðu af upphaflega málinu.
12. febrúar 2007
fimm vikna réttarHöld
aðalmeðferð í málinu gegn Jóni Ásgeir
Jóhannessyni, tryggva Jónssyni og Jóni
gerald sullenberger hefst. rúmlega hundr-
að vitni eru boðuð í dóminn og yfirheyrslur
og vitnaleiðslur standa yfir vikum saman.
3. maí 2007
fYrstu sakfellingarnar
Héraðsdómur reykjavíkur kveður upp dóm. Jón Ásgeir Jóhannesson fær þriggja
mánaða skilorðsbundinn dóm og tryggvi Jónsson níu mánuði skilorðsbundna.
10 af 18 liðum ákærunnar var vikið frá áður hafði helsta ákærulið ákærunnar verið
vísað frá. Ákærum á hendur Jóni gerald sullenberger var vísað frá.
Röð atbuRða
Baugsmálið
LANGT UMFRAM TILEFNI
ákærður fyrir 36 liði og sakfelldur
fyrir fjóra. Þeir hafa verið sýknaðir af
alvarlegustu ákæruliðunum,“ segir
Jakob Möller, verjandi Tryggva Jóns-
sonar fyrrverandi aðstoðarforstjóra
Baugs.
Jakob segir óþolandi fyrir
Tryggva að hafa verið sakfelldur og
aðspurður um hvort málinu verði
áfrýjað segir Jakob að ekki hafi verið
ákveðið formlega að áfrýja.
Fyrir utan það hversu fáa ákæru-
liði Tryggi er sakfelldur fyrir segir
Jakob það segja ýmislegt um mál-
ið að héraðsdómur skuli meta það
svo að áttatíu prósent sakarkostn-
aðar skuli falla á ríkið en aðeins einn
fimmti á Tryggva.
Tryggvi var sakfelldur fyrir fjóra
liði ákærunnar, tveir þeirra, númer
fjórtán og sautján, eru fyrir meiri-
háttar bókhaldsbrot eins og þeim
er lýst í ákæru. Í örðum þeirra þyk-
ir sannað að færslur upp á 332 millj-
ónir króna voru rangar og gerðar til
þess að gefa ranga mynd af viðskipt-
um og notkun fjármuna er varð-
ar hlutabréfaviðskipti sem snúa að
Kaupþing í Lúxemborg. Hitt bók-
haldsbrotið sem Tryggvi er sak-
felldur fyrir snýr að því að láta búa
til gögn sem ekki áttu sér stoð í við-
skiptum með því að láta færa nærri
47 milljónir króna til tekna. „ Það
kemur skýrt fram í dómnum að það
var ekkert í þessum liðum sem hafði
þau áhrif að reikningsskil félagsins
hafi verið rangfærð. Hann er sak-
felldur fyrir tvö tæknileg bókhalds-
brot sem urðu vegna nýjunga á þeim
tíma sem vörðuðu vörslu reikninga
hjá erlendum bankastofnunum,“
segir Jakob.
Hinir tveir liðirnir, númer fimmt-
án og sextán, sem Tryggvi er sak-
felldur fyrir eru vegna tilhæfu-
lausra kreditreikinga. „Þarna teljum
við niðurstöðu dómsins ranga því
þarna voru viðskiptalega forsend-
ur að baki. Um leið og mistök voru
ljós voru þau leiðrétt og höfðu þau
því ekki áhrif á ársreikinginn,“ segir
Jakob.
vill ekki nota orð sem
lýsa tilfinningum
„Viðbrögðin við dóminum eru
lítil. Jón Ásgeir er sakfelldur fyrir
einn ákærulið og Tryggvi fyrir fjóra
ákæruliði og þar eru stærstu fjár-
hæðirnar í bókhaldsbrotakaflan-
um,“ segir Sigurður Tómas Magn-
ússon, settur saksóknari í málinu.
Hann bendir á að mikilvægt sé að
hafa í huga að dómurinn er áfrýj-
anlegur og því ekki endanleg nið-
urstaða. „Það eru vissir þættir í for-
sendum héraðsdóms sem kalla á
dóm Hæstaréttar.“
Sigurður segir það hafa komið
mest á óvart að ákærulið númer
nítján hafi verið vísað frá dómi. Þar
var Tryggvi Jónsson sakaður um að
hafa látið Baug greiða fyrir einka-
neyslu sína í Bandaríkjunum. Sig-
urður Tómas vill þó ekki nota orðið
vonbrigði fyrir hönd ákæruvalds-
ins né önnur orð er vísa til tilfinn-
inga enda beri ákæruvaldinu að
horfa á málið faglegum augum
ekki hægt að sakfella
eftir olíumálið
Brynjar Níelsson, verjandi Jóns
Geralds, var ánægður með niður-
stöðu dómsins hvað hans skjólstæð-
ing varðar. „Ég bjóst við þessu enda
var ég búin að halda fram þessari
kröfu frá upphafi. Svo var það al-
veg ljóst eftir dóm Hæstarréttar í
olíumálinu að ekki kæmi annað en
frávísun til greina,“ segir Brynjar en
hann er nánast viss um að ákæru-
valdið muni ekki áfrýja því sem snýr
að Jóni Geraldi.
Jón Gerald var sjálfur ekki við-
staddur dómsuppkvaðninguna en
athygli vakti að hann sat öll réttar-
höldin. Hann var staddur í Flórída
í gær. „Hér er glampandi sól og 25
stiga hiti,“ segir Jón Gerald. Hann
segir það jafnframt hafa verið mik-
inn létti að ákærunni á hendur hon-
um hafi verið vísað frá dómi en það
hafi ekki komið honum á óvart. „ Ég
var yfirheyrður sem vitni í málinu
og að nota það síðan til að sakfella
mig væri mannréttindabrot. Það er
ekki hægt að skrá niður vitnisburð
og ákæra mann svo fyrir hann,“ segir
Jón Gerald.
Hvað aðra sakborninga varðar
segir Jón Gerald það mikil vonbrigði
að þeir Jón Ásgeir og Tryggvi hafi
verið sýknaðir af átjánda ákæruliðn-
um þar sem þeir voru sakaðir um
fjárdrátt upp á rúmar 32 milljónir
króna. „Þeir létu Baug greiða einka-
neyslu og fyrir hlut sinn í bátnum
The Viking en lögðu persónulega
enga fjármuni til,“ segir Jón Gerald.
Að sama skapi segir hann mikil von-
brigði að ekki hafi verið endurákært
vegna fyrsta liðar ákærunnar sem
var vísað var frá dómi á síðasta ári.
„Mér finnst ekki rétta að tala allt-
af um hvað þessi málarekstur hafi
kostað ríkið því í raun er það op-
inbera í plús og rúmlega það eftir
rannsókn málsins. Búið er að endur-
áætla skatta á Jón Ásgeir og Tryggva
og þannig hafa skilað sér fjármuni
upp á nærri milljarð króna. Svo á
eftir að ákæra þá vegna skattsvika,“
segir Jón Gerald.
mestur málskostnaður á ríkið
Málskostnaður fellur að mestu
á ríkissjóð samkvæmt niðurstöðu
dómsins. Málsvarnarlaun Gests
Jónssonar, verjanda Jóns Ásgeirs,
voru ákveðin 15,3 milljónir króna.
Sjálfum er Jóni Ásgeiri gert að greiða
einn tíunda en níu tíundu kostn-
aðirns falla á ríkissjóðs. Málsvarn-
arlaun Jakobs Möller, verjanda
Tryggva Jónssonar, eru ákveðin
11,9 milljónir króna. Fjórir fimmtu
kostnaðarins greiðast úr ríkissjóði
en einn fimmta er Tryggva gert að
greiða sjálfum. Ákveðin málsvarn-
arlaun fyrir Brynjar Níelssonar, verj-
anda Jóns Geralds, eru 7,9 milljónir
króna og skulu þau öll greidd úr rík-
issjóði.
Sakarkostnaður ríkissaksóknara
nemur nærri 56 milljónum króna
og eru þeir Jón Ásgeir og Tryggvi
dæmdir til að greiða fimm milljón-
ir króna af þeim kostnaði. Þá fellst
dómurinn á ýmsan kostnað vegna
varnar Jóns Ásgeirs eða nærri 26
milljónir króna. Sjálfum er honum
gert að greiða einn tíunda hluta
þess kostnaður en ríkissjóði er gert
að greiða rest. hrs@dv.is
Í yfirlýsingu frá stjórn Baugs
Group segir að niðurstaða
Héraðsdóms Reykjavíkur feli í
sér alvarlegan áfellisdóm yfir
vinnubrögðum lögreglunnar og
ákæruvaldsins. „Í dag var for-
stjóri félagsins sýknaður af eina
brotinu sem var tilefni innrás-
innar í Baug en sakfelldur vegna
færslu reiknings, sem sérfræð-
ingar efnahagsbrotadeildar rík-
islögreglustjóra töldu fyrst að
hefði verið grundvöllur fjár-
dráttar,“ segir í yfirlýsingunni.
Í yfirlýsingunni segir einnig
að í þau fimm ár sem rannsókn-
in á Baugsmálinu hafi staðið yfir
hafi félagið ítrekað þurft að leið-
rétta efnahagsbrotadeild rík-
islögreglustjóra þar sem rann-
sóknin hafi sífellt þvælst inn á
ný svið, að því er virðist til þess
að að réttlæta mistök á upp-
hafsstigum málsins.
„Ákæruvaldið er í dómin-
um gagnrýnt fyrir að hafa blásið
málið út umfram tilefni, máls-
meðferð hafi verið of umfangs-
mikil og vitni leidd fyrir dóminn
af þarflausu.“
Stjórnin telur líklegt að Jón
Ásgeir muni áfrýja málinu til
hæstaréttar og telur líklegt að
sú áfrýjun muni leiða til sýknu.
Stjórnin lýsir yfir eindregnum
stuðningi við Jón Ásgeir. Und-
ir þetta ritar Hreinn Loftsson
stjórnarformaður.
Yfirlýsing frá stjórn Baugs Group:
Málinu verður áfrýjað
jakob möller eftir dómsupp-
sögu „saksóknari hefur lýst þessu
máli sem stærsta efnahagsbrota-
máli íslandssögunnar og niðurstað-
an sú að Jón Ásgeir sem hefur í
heildina verið ákærðu í 58
ákæruliðum er sakfelldur fyrir einn
þeirra. tryggvi Jónsson hefur verið
ákærður fyrir 36 liði og sakfelldur
fyrir fjóra,“ segir Jakob möller,
verjandi tryggva.