Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 30
Föstudagur 4. maí 200734 Sport DV F yrir um ári síðan stóð Óskar Bjarni Óskarsson á tímamótum. Samn- ingur hans við Val var út- runninn og hann hugðist hætta sem þjálfari liðs- ins. Valsmenn fólust eft- ir því við Óskar að hann myndi halda áfram með liðið og hann féllst á það. Óskar sér væntanlega ekki eftir því í dag því fyrir skömmu fagnaði hann fyrsta Íslands- meistaratitli félagsins í níu ár. „Þetta var alveg virkilega ánægju- legt. Það var mjög gaman að fá að landa þessu, ekki bara vegna þess að ég ætlaði að hætta í fyrra, heldur líka vegna þess að strákarnir eru búnir að leggja svo rosalega mikið á sig í vetur og lenda í svo miklu. Það eru búið að vera mikið flakk og eilífðarvesen með íþróttahúsin. Í raun misstum við allar helgar í Laugardalshöllinni í mars og apríl. Strákarnir eru kannski ekki bún- ir að eyða fleiri mínútum en við höf- um verið að æfa á slæmum tímum og það er búið að leggja mikið á þá. Bara fyrir strákana, þá var svo ljúft að landa titlinum. Þetta er búið að vera erfitt og gaman,“ sagði Óskar. Mikil uppbygging á sér stað á Hlíð- arenda og unnið er hörðum höndum að byggingu nýs íþróttahúss. Valur hefur því þurft að leika heimaleiki sína í Laugardalshöllinni í vetur, auk þess sem þeir léku tvo síðustu heimaleiki sína í íþróttahúsi Gróttu á Seltjarn- arnesi. Óskar sagði að það hafi verið ákveðin áskorun fyrir Valsliðið. „Það var slæmt þegar við vorum að missa Laugardalshöllina. Það var eitt að fara þangað en svo að missa hana líka, það hafði áhrif. En við undir- bjuggum okkur töluvert fyrir þetta. Við tölum um þetta mál í haust og svo þeg- ar við misstum höllina fyrir tvo síðustu leikina og fórum á Seltjarnarnes, þá vorum við búnir að ræða það áður. Við ræddum aldrei um að við vær- um að fara hingað [á Hlíðarenda] af því að ég held að það hefði verið erf- iðara ef við hefðum talað um að koma hingað og svo hefði það ekki staðist. Við töluðum um það fyrir tímabilið að vera ekki með neinar afsakanir. Þegar upp er staðið þarf maður að sýna það inni á vellinum hverjir eru bestir. Það er ekkert spurt eftir á hvort við höf- um verið með lélega æfingatíma eða í mörgum húsum. Það telur ekkert.“ Umgjörðin betri Lið Vals er með valinn mann í hverri stöðu og gæti eflaust stillt upp tveimur góðum liðum í efstu deild með þann mannskap sem liðið hefur. En hverju þakkar Óskar þennan titil persónulega? „Ég vil nú meina það að við höfum verið að byggja markvisst upp. Ég vil kannski þakka það að í liðinu núna er mikið af heilsteyptum og góðum kar- akterum og ég held að fyrir þetta tíma- bil höfum í fyrsta sinn náð að landa þeim bitum sem við vildum, það er að segja leikmönnum. Við héldum ákveðnum hóp. Svo fengum við Mark- ús, Óla, Erni, Gunna og Arnór og þetta voru akkúrat þeir sem pössuðu inn í þetta hjá okkur. Það vil ég meina að hafi verið lykillinn hjá okkur. Auk þess hefur allt starf í kringum liðið hefur aldrei verið betra en í ár. Ég held að fólk átti sig ekki alveg á því. Það er í sjálfu sér ekki nóg að vera bara með góðan leikmannahóp. Það voru allir að vinna sína vinnu og það stóðst allt. All- ir þessir sem voru í hinum og þessum ráðum stóðu við sitt og gott betur. Ég held að öll lið lendi í erfiðleikum ef öll vinna á bakvið er bundin erfiðleikum. Það kannski sást á sumum félögum í vetur. Ég held líka að við séum með mjög mikið af góðum leikmönnum sem eru með hjartað á réttum stað,“ sagði Óskar. „Valur hefur kannski þau forréttindi að það er mikið af klárum krökkum Framtíðin e björt hjá Val DV4283030507 Bjart á Hlíðarenda “Ég held að það verði jafn gott að vinna hjá Val eins og annars staðar,“ sagði Óskar Bjarni. DV2636010407 05 Óskar Bjarni Óskarsson stýrði Vals- mönnum nýverið til sigurs í DHL-deild karla í handbolta. Í samtali við DV talar Óskar um nýafstaðið tímabil, þjálfara- starfið og fer fögrum orðum um Val. Myndarlegir feðgar Óskar er hér ásamt sonum sínum, þeim arnóri snæ og Benedikt gunnari, í nýjum húsakynum Vals.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.