Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 34
Þorlákur Árnason er einn af hinum
fræga ‘69 árgangi í KR. Þar lék hann í
yngri flokkunum með mönnum eins
og Heimi Guðjónssyni, Þormóði Eg-
ilssyni, Rúnari Kristinssyni og Guð-
jóni Kristinssyni núverandi formanni
KR Sport svo einhverjir séu nefndir.
Hann segir að leikmannaferillinn hafi
verið alltof stuttur en hann lagði skóna
á hilluna ekki orðinn þrítugur, þá bú-
inn að leika með Leiftri, Þrótti Nes-
kaupstað og síðan Val. Hann var allt-
af þekktur sem mikill markaskorari og
sé bókin Íslensk knattspyrna eftir Víði
Sigurðsson skoðuð aftur í tímann má
sjá margar myndir af Þorláki fagna
mörkum.
„Leikmannaferillinn var allt of
stuttur en ég gat alltaf potað inn mörk-
um. Ég var einn af mörgum sem sá ekki
framtíð mína í KR-liðinu og fór fyrst á
Neskaupstað til að fá góða reynslu. Ég
ílengdist síðan úti á landi og spilaði
þrjú ár með Leiftri og sprakk gjörsam-
lega út sem leikmaður. Ég meiddist
hins vegar síðasta árið mitt þar og var
að pína mig til þess að geta spilað enda
var keppnisskapið mikið og þjálfarinn
ólmur í að láta mig spila.
Þessi álagsmeiðsli ágerðust svo
svakalega að ég greindist með það
sem kallast „álagsgigt“ í líkamanum.
Næstu tímabil á eftir voru erfið því að
enginn vissi hvað það var sem amaði
að mér og þetta hafði áhrif á öll liða-
mót og jafnvel öndun í leikjum! Er
ég fótbrotnaði með Val í æfingaferð í
Skotlandi þá var ég hálffeginn því að
það var nokkuð ljóst hvað amaði að
mér; ég fótbrotnaði illa og sleit lið-
bönd í ökkla.“
Góð ráð frá Þorsteini, Willum,
Boris og Óskari Bjarna
Þorlákur byrjaði að þjálfa á Ólafs-
firði 1990 samhliða því að leika knatt-
spyrnu með Leiftri. Áhuginn hafði
þó komið fyrr því Þorlákur aðstoðaði
Willum Þór Þórsson núverandi þjálf-
ara Vals við að þjálfa handbolta.
„Þar fékk ég gríðarlegan stuðning
frá Þorsteini Þorvaldssyni sem var for-
maður knattspyrnudeildar sem virtist
styðja mig ákaft þrátt fyrir að ég ætti
það til að gera bölvaðar vitleysur inn á
milli. Það var mjög mikilvægt.
Áhuginn á þjálfun hafði þó vakn-
að fyrr en ég aðstoðaði Willum við að
þjálfa handboltalið Gróttu í 2. flokki.
Í liðinu voru Kristján Finnbogason og
fleiri góðir félagar mínir og við náðum
mjög góðum árangri þetta árið.
Síðan lá leiðin í Val þar sem ég
þjálfaði yngri flokkana í 2 ár en fór til
Þorlákshafnar og þjálfaði meistara-
flokk karla og alla yngri flokka félags-
ins í 1 ár. Umgjörðin var ekki nægilega
góð en tíminn þar var mjög lærdóms-
ríkur.“
Þorlákur segir að í Þorlákshöfn hafi
verið frábært að vera en þar gat hann
þjálfað og ekki gert neitt annað í fyrsta
skipti.
„Hugmyndin með Þorlákshöfn var
einfaldlega að þjálfa í fullu starfi, auk
þess voru synir mínir þeir Alexander
Már og Indriði Áki ungir að árum og
þetta var nú svona beggja blands að
sameina vinnu og fjölskyldu. Mjög lær-
dómsríkur tími en metnaður minn var
kannski of mikill fyrir félagið og þrátt
fyrir dugnað ákveðins fólks á staðnum
þá voru sjálfboðaliðar allt of fáir til að
umgjörðin virkaði.“
Eftir eitt ár á Þorlákshöfn snéri Þor-
lákur aftur á Hlíðarenda þar sem ár-
angurinn lét ekki á sér standa.
„Taugarnar voru í Val og þar fór ég
að þjálfa 2. flokk karla og varð íþrótta-
fulltrúi félagsins. Í Val mótaðist þjálf-
araferillinn. Valur var og er sérstakt
félag með fallega sögu og hefð, en öll
mín ár hjá Val endurspegluðust af
peningaleysi félagsins. Hins vegar var
þjálfarakúltúrinn hjá Val frábær, sam-
skipti milli deilda og þá sérstaklega
handbolta og fótbolta voru einstaklega
góð. Ég og Óskar Bjarni þjálfari meist-
araflokks karla í handbolta og þá yngri
flokka þjálfari félagsins áttum marga
góða fundi saman. Þá var Boris Akba-
chev hinn frábæri handboltaþjálfari
alltaf tilbúinn að gefa manni góð ráð.
Skuldasöfnun Vals til margra ára
hafði mikil áhrif á starfið sérstaklega
í meistaraflokkunum og maður gat
ekki annað en fundið til með Reyni
Vigni fráfarandi formanni félagsins
sem þurfti að halda mönnum við efnið
í peningamálum, hann vann frábært
starf.
Yngri flokkum Vals gekk hins veg-
ar gríðarlega vel í knattspyrnunni og
unglingastarfið var gríðarlega öflugt
undir stjórn Þórarins Gunnarssonar
sem nú beitir kröftum sínum fyrir KSÍ í
hinum ýmsu nefndum.
Hjá Val var maður einfaldlega með
puttana í öllu enda starfandi íþrótta-
fulltrúi og þjálfari. Þetta var frábær
tími, yngri flokkarnir blómstruðu og
við urðum Íslands- og bikarmeistar-
ar í 2. flokki karla 1997. Ég fékk mína
eldskírn í meistaraflokki sama ár og
stýrði liðinu seinni hluta móts, liðið
var í fallbaráttu þegar ég tók við því
en við björguðum okkur í 16. umferð
enda var liðið of gott til að standa í
fallslag. Árið eftir unnum við svo bik-
arinn aftur í 2. flokki. Þetta voru fyrstu
stóru titlarnir í karlaboltanum í mörg
ár en stelpuflokkarnir voru og eru allt-
af gríðarlega sterkir og sú hefð hefur
haldist í Val enn þann dag í dag.“
Eins og menn vakni við
fjárhagsörðugleika
Eftir að hafa stýrt öðrum flokki Vals
í tvö ár og unnið marga titla lá leið Þor-
láks upp á Akranes þar sem sigurgang-
an hélt áfram.
„Enn á ný var fjölskyldan dregin
af stað og leist fyrrverandi eiginkonu
minni ekkert sérstaklega vel á í byrjun.
Tíminn á Skaganum átti eftir að verða
gríðarlega farsæll.
Við náðum að hífa upp miðlungs
yngri flokka í það að vera þá bestu á
landinu tvö síðustu árin sem ég var
þar.
Skagamenn höfðu einfaldega sof-
ið á verðinum í yngri flokka starfinu
nokkur ár á undan og þrátt fyrir gríð-
arlega mikla vinnu í mínu starfi sem
yfirþjálfari þá gleymdi maður því í vel-
gengninni.
Við bjuggum það módel til í yngstu
flokkunum að spila út frá markmanni,
það er markmaðurinn varð að kasta
boltanum út á næsta mann. Til að byrja
með gekk þetta hræðilega og við töp-
uðum mörgum leikjum á undirbún-
ingstímabilinu á þessari leikaðferð en
um sumarið og svo næstu tvö ár á eftir
þá var leikaðferðin farin að ganga upp.
Árið 2000 urðum við Íslandsmeistar í
4. flokki karla sem var fyrsti Íslands-
meistaratitill Skagamanna í háa herr-
ans tíð og árið eftir urðum við Íslands-
og bikarmeistarar í 2. flokki sama ár og
meistaraflokkur varð Íslandsmeistari.
2001 var því eftirminnlegt ár hjá
Skagamönnum. Umgjörðin í yngri
flokkunum á þessum árum 1999-2001
var gríðarlega góð, það voru miklir
Föstudagur 4. maí 200734 Sport DV
LEITAÐI AFTUR TIL UPPRUNANS
Þorlákur Árnason yfirþjálfari Stjörnunnar hefur
marga fjöruna sopið. Hann er einn fremsti yngri
flokka þjálfari landsins og í einlægu viðtali við DV
Sport rifjar hann upp merkilegan feril þar sem
valdabarátta bak við tjöldin, sigurganga og sam-
skipti við Chelsea koma meðal annars við sögu.