Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 35
DV Sport Föstudagur 4. maí 2007 35
fjárhagsörðugleikar í meistaraflokki
og það er eins og þá vakni menn upp
við það að sinna yngri flokkunum bet-
ur og fá öfluga leikmenn upp. Smári
Guðjónsson sem var formaður fyrsta
árið hafði verið yngri flokka þjálfari
og það hafði góð áhrif á starfið. Síðan
kom Gylfi Þórðarson inn í barna- og
unglingaráð ári síðar, við náðum að
vinna mjög vel saman enda Gylfa góð-
ur stjórnandi.“
Í gegnum tíðina hefur ÍA framleitt
svo marga góða leikmenn að það er
efni í aðra grein. Aðspurður um hver
sé lykillinn að þessu svarar Þorlákur að
dugnaður fólksins þar sé ótrúlegur.
„Ein stærsta ástæðan fyrir velgegni
Skagamanna er dugnaður fólksins sem
þar býr. Að öllu jöfnu er fólkið einstak-
lega duglegt og fylgið sér. Það var hins
vegar lengi að taka hugmyndir borg-
arstráks góðar og gildar en það tókst
á endanum. Krakkar leika sér mikið
í fótbolta á Akranesi og á vallarsvæð-
inu sjálfu má leika sér í fótbolta! Hver
þekkir ekki brjálaða vallarstjórann
sem rekur krakkana út af vellinum.
Í tíð Péturs Óðinssonar vallarstjóra
máttu krakkarnir leika sér á ákveðnum
svæðum á æfingasvæðinu. Þarna var
starfsmaður á ferðinni sem var dug-
legur til vinnu en einnig meðvitað-
ur um hvað væri best fyrir félagið. Ég
held líka að fyrirmyndir hafi haft mikið
að segja á Skaganum. Það er löng hefð
fyrir því að Skagamenn hafi orðið at-
vinnumenn í knattspyrnu og því hafa
krakkarnir fyrirmyndir sem koma frá
bæjarfélaginu. Þeir leikmenn hafa ein-
mitt verið duglegir við að koma á æf-
ingar hjá krökkunum í gegnum tíðina
sem hefur mikla þýðingu.“
Beið í hálft ár eftir
að fá útborgað
Þorlákur hafði ekki gert ráð fyr-
ir öðru en að vera þjálfari á Akranesi.
Það breyttist hins vegar þegar Valur
féll úr úrvalsdeildinni í annað sinn á
þremur árum. Þorlákur var beðinn um
að taka að sér þjálfun liðsins og hann
segist einfaldlega ekki hafa getað sagt
nei.
„Ég hafði nú hugsað mér að vera
lengur uppi á Skaga en þegar kallið
kom um að þjálfa meistarflokk Vals þá
gat ég ekki sagt nei. Félagið stóð mér
næst, það var engin spurning. Aðkom-
an að félaginu var hins vegar sorg-
leg. Eftir fall í 1. deild þar sem félagið
notaði hátt í 10 erlenda leikmenn þá
var alveg ljóst að verkefnið yrði erfitt.
Skuldir höfðu safnast upp og ég man
að ég fékk útborgað fyrsta mánuðinn á
réttum tíma en síðan beið ég í 5 eða 6
mánuði eftir næstu greiðslu. Hátt í 20
leikmenn yfirgáfu félagið og í staðinn
var síminn tekinn upp og hringt í unga
stráka sem höfðu spilað undir minni
stjórn í 3. og 2. flokki.
Útkoman var ótrúleg, við vorum
komnir upp þegar 4 umferðir voru
eftir og vegna peningaleysis ákváðum
við að lána þá Ármann Smára Björns-
son og Guðna Rúnar Helgason til Nor-
egs. Við héldum flestum leikmönnum
áfram en við bættum litlu við okkur; ég
man að dýrasti leikmaðurinn sem við
fengum fyrir tímabilið kostaði 600.000
krónur fyrir árið. Þetta var árið 2003,
þetta hefur aldeilis breyst síðustu ár.
Við spiluðum þokkalega í Lands-
bankadeildinni en féllum í síðasta leik
niður um deild. Það var þvílíkt svekk-
elsi en fyrst og fremst var það vegna
þess að liðsstyrkurinn var lítill sem
enginn við liðið sem fór upp. Sigur-
björn Hreiðarsson var elsti leikmað-
urinn í liðinu 27 ára gamall. Maður
nagar sig ennþá í handarbökin fyrir
að hafa ekki farið fram á meiri pen-
inga til að kaupa leikmenn. Hópurinn
var nefnlega mjög efnilegur og með
nokkra reyndari og betri spilara þá
hefðum við náð langt.
Á þessum árum var ekki eins mik-
ill munur á bestu liðum deildarinnar
og þeim veikari enda voru liðin ekki
að eyða eins miklum peningum í leik-
menn.“
Átti ekki skap saman
við formanninn
Eftir að Valur féll úr Landsbanka-
deildinni lá leið Þorláks í Fylki, liðið
sem hafði sent Val niður um deild í
lokaleiknum. Hann var töluvert gagn-
rýndur af stuðningsmönnum Vals sem
vildu meina að hann væri að yfirgefa
sökkvandi skip og fégræðgi hefði kom-
ið við sögu. Þorlákur þvertekur fyrir
það.
„Ástæðan fyrir því að ég fór í Fylki
var ósköp einföld. Það voru fyrirsjá-
anlegar breytingar á stjórn Vals og ég
hafði ekki áhuga á að vinna með þeim
sem átti að vera formaður.
Ég sagði mönnum mína skoðun
eins og ég geri nú oftast með misjöfn-
um árangri. Það getur vel verið að það
hafi verið mistök, ég var einnig orðinn
hrikalega þreyttur á peningaleysinu
hjá félaginu. Hins vegar er alveg ljóst
að núverandi formaður gerði hárrétt í
að fjárfesta loksins í liðinu og umgjörð
þeirra Valsmanna hefur verið til fyrir-
myndar. Hins vegar er ég frekar gamal-
dags og vill alltaf sjá sem flesta heima-
menn í liðinu mínu en því miður eru
tímarnir að breytast. Ég og formaður-
inn áttum sem sagt ekki skap saman
en margir héldu að ég hefði flutt mig
um set til að hækka launin mín. Vals-
menn borguðu hins vegar ágætlega
og ég lækkaði töluvert í launum við að
fara til Fylkis.“
Meiðslasagan ótrúlega og
valdabarátta bak við tjöldin
Þorlákur tók við Fylki sem hafði
náð góðum árangri á skömmum tíma.
Tveir bikartitlar og liðið búið að festa
sig í deild þeirra bestu. En árangur
kostar sitt, Fylkir var með elsta liðið
í deildinni þegar Þorlákur tók við og
hann fór því að vinna í því að yngja lið-
ið upp.
„Umhverfið hjá Fylki var ágætt þeg-
ar ég kom þangað. Liðið var hins veg-
ar að falla á tíma í bókstaflegri merk-
ingu, það var langelsta liðið í deildinni
árið á undan og það var alveg ljóst að
auk þess að ná árangri þá yrðum við að
yngja liðið upp. Það tókst ágætlega, við
tókum inn fullt af efnilegum strákum,
sumir spjöruðu sig en aðrir ekki.
Ég var svona þokkalega sáttur við
tímabilið 2004, við stefndum á 3. sæti
þannig að við vorum aðeins undir
væntingum. Það var hins vegar alveg
ljóst að félagið varð að haga rekstrin-
um betur ef að vel átti að fara.
Þetta var gert, það segir sig svo sem
sjálft að yngri leikmennirnir eru jafn-
an ódýrari og síðan minnkuðum við
hópinn til að hleypa 2. flokks strák-
um að ef á þurfti að halda. Þannig að
hugmyndafræðin var til staðar, hins
vegar var alveg ljóst að margir stuðn-
ingsmenn félagsins voru ekki sáttir við
þetta, eða kannski fámennur hávær
hópur stuðningsmanna.
Það var deginum ljósara að þetta
varð að gerast og þeir Ásgeir formað-
ur meistarflokksráðs og Jón Þór gjald-
keri unnu gríðarlega gott starf. Síðara
árið mitt með Fylki var hins vegar ein
hrakfallaferð!
Þó svo að margir burðarásar hafi
meiðst alvarlega árið 2004 þá átti það
bara eftir að versna. Við fengum ein-
ungis vondar fréttir þetta árið. Aðgerð
á Hauk Inga Guðnasyni mistókst sem
og á Hrafnkatli Helgasyni. Sævar Þór
Gíslason meiðist í 3. umferð og spil-
ar ekki meira og Finnur Kolbeinsson
stuttu seinna og spilar einnig ekki
meira. Þetta var sagan endalausa.
Verst var þó mál Argentínumann-
anna svokölluðu. Við héldum gjörsam-
lega að okkur höndunum í leikmanna-
málum vegna þess að við áttum von á
tveimur afar sterkum leikmönnum frá
Argentínu. Upplýsingarnar komu með
frekar vafasömum hætti og við vorum
teymdir á asnaeyrunum í marga mán-
uði. Það fyndna er að við spiluðum
ótrúlega vel þetta tímabil, það nennir
hins vegar enginn að upphefja lið sem
nær ekki að vinna leiki þrátt fyrir yfir-
burði úti á vellinum.“
Sagt upp þegar tvær
umferðir voru eftir
Þorlákur upplýsir að fyrir tímabil-
ið 2005 hafi óprúttnir menn reynt að
komast inn í stjórn knattspyrnudeildar
Fylkis, eitthvað sem honum leist illa á
„Vinnuaðstaðan fyrir mig sem
þjálfara var í einu orði sagt ömurleg og
einnig fyrir meistaraflokksráð en fyrir
tímabilið reyndu einhverjir óprúttn-
ir menn að koma Ásgeiri meistara-
flokksformanni frá. Ég skammast mín
ennþá fyrir þessar aðgerðir því Ásgeir
vann frábært starf fyrir Fylki á gríðar-
lega erfiðum tímum.
Ekkert lið á landinu hefði stað-
ið þau meiðsli af sér þetta árið nema
kannski FH.
Endirinn var ekki að mínu frum-
kvæði en var að mínu mati langbesta
lausnin til að höggva á þann hnút sem
var kominn upp hjá félaginu. Ég hefði
aldrei sagt upp sjálfur enda voru ein-
ungis tveir leikir eftir í mótinu.
Þetta var gríðarlega erfiður tími hjá
félaginu en einnig mjög ánægjulegur.
Við spiluðum með svo mörgum ung-
um leikmönnum á þessum tveim-
ur árum að ég hef ekki tölu á þeim.
Við hefðum kannski átt að láta suma
þeirra bíða lengur fyrir utan því þetta
kallaði á miklar væntingar frá bæði
leikmönnunum og foreldrum þeirra.
Tveir af þessum leikmönnum þeir
Eyjólfur Héðinsson og Ragnar Sig-
urðsson eru atvinnumenn í dag og ég
er nú á því að Bjarni Þórður Halldórs-
son væri það einnig ef ekki væri fyrir
þau meiðsli sem hann hefur glímt við
undanfarið ár.“
Missti áhugann á meistara-
flokksþjálfun en er sáttur í dag
Þorlákur dró sig úr meistaraflokks-
þjálfun vegna þess að hann missti
áhugann á því eins og hann segir sjálf-
ur frá. Hann færði sig um set, leitaði
aftur til upprunans og fór að þjálfa
yngri flokka, nú í Stjörnunni.
„Það voru nú margir sem fannst
metnaður minn hafa minnkað alls-
vakalega með því að fara í Stjörnuna.
Mörgum fannst félagið frekar metn-
aðarlaust. Stærsta ástæðan fyrir því
að ég fór í yngri flokka þjálfunina var
einfaldlega strákarnir mínir. Ég hafði
kynnst Stjörnunni í gegnum strák-
ana mína en þeir spiluðu með Stjörn-
unni. Ég sá fram á að geta eytt meiri
tíma með þeim á þennan hátt enda
bjuggu þeir hjá mér allt síðasta sumar
og verða einnig hjá mér í sumar.
Ég missti einfaldlega allan áhuga á
meistaraflokksþjálfun síðasta árið hjá
Fylki. Ég er nú mjög jákvæður maður
að eðlisfari og ég held að ég hafi bara
fengið nóg af neikvæðninni í kringum
starfið.
Ég er á réttum stað í dag og það er
gríðarlega mikilvægt að maður sé sátt-
ur við að þjálfa þann flokk sem maður
er með hverju sinni í stað þess að vera
alltaf sækjast eftir einhverju öðru.
Stjarnan er félag á uppleið og ég
er ánægður í vinnunni, það hafa hins
vegar verið miklar breytingar á yngri
flokka starfinu undanfarið ár vegna
mikillar fjölgunar iðkenda og því er
starf mitt sem yfirþjálfara mjög breyti-
legt frá degi til dags.“
Í dag mun Þorlákur skrifa und-
ir nýjan samning við Stjörnuna sem
gildir til 2009. Hann segist ánægður
með starfið í Garðabæ enda sé margt
gott starf í gangi þar á bæ. Á næsta
ári munu til dæmis krakkar í tveimur
efstu bekkjum grunnskólans geta æft
knattspyrnu undir leiðsögn þjálfara
inni í stundartöflu.
„Það kom ekkert til annað til greina
en að bæta við þá vinnu sem við höf-
um lagt í starfið undanfarið eitt og hálft
ár. Ástæðan fyrir því að við kláruðum
samning þetta snemma er að barna-
og unglingaráð er að taka yfir rekstur
2. flokks einnig frá og með haustinu.
Þetta hefur í för með sér ýmsar
skipulagsbreytingar sem við þurfum
að byrja að undirbúa. Einnig munum
við vera með valáfanga í samvinnu við
Garðaskóla þar sem krakkar í 9. og 10.
bekk geta stundað knattspyrnu inni
í stundatöflu undir leiðsögn þjálfara
Stjörnunnar. Starfið er alltaf að verða
betra og betra hjá okkur enda höfum
við hæfa þjálfara og svo höfum við
Maríu Grétarsdóttur sem formann
barna- og unglingaráðs en hún hefur
unnið frábært starf á undanförnum
árum hjá Stjörnunni.
Einnig erum við að fá fleira gott fólk
til starfa í ráðið enda er umfang þess
að aukast. Við erum alltaf að reyna að
gera betur og vonandi skilar það sér á
næstu árum.“
Þorlákur segir að þegar samning-
ur hans við Stjörnuna rennur út ætli
hann að skoða sín mál, stefnan hjá
honum hefur alltaf að komast að hjá
liði erlendis.
„Þegar samningnum við Stjörnuna
lýkur þá er ég búinn að starfa hjá félag-
inu í 4 ár, þá tekur maður bara stöð-
una og skoðar framhaldið. Það hef-
ur nú alltaf staðið til að fara erlendis
að þjálfa en svo gæti ég allt eins verið
lengur hjá Stjörnunni.
Annars er lífið ekki einungis fót-
bolti. Ég er að skrifa barnabók sem
kemur út í haust og svo væri ég alveg til
í að fjölga mannkyninu á næstu árum.
Það er reyndar háð samþykki annarra,“
segir Þorlákur og brosir
Stjórnaði æfingum hjá Chelsea
Þorlákur dvaldi fyrir skemmstu hjá
stórliði Chelsea þar sem hann stjórn-
aði tveimur æfingum hjá unglinga-
deild félagsins.
„Arnór Guðjohnsen hefur haft
milligöngu um að ég hafi kynnt mér
þjálfun hjá liðinu. Í síðustu viku fór
síðan einn leikmaður 3. flokks karla og
æfði hjá Chelsea. Ég hef reynt að fara á
ári hverju til að kynna mér þjálfun er-
lendis og hef orðið góð tengsl við tvo
þjálfara hjá Chelsea. Ég er nú að von-
ast til að þeir komi til Íslands í sumar.
Annars var ferðin til Chelsea frábær
enda fékk ég allan aðgang að upplýs-
ingum um yngri flokka starfið og þjálf-
aði meira að segja á tveimur æfingum.
Það er ótrúlegt hvað þarf að hyggja að
mörgu hjá svona stóru félagi og það er
ekki allt betra hjá atvinnumannalið-
um erlendis. Eitt sem fólk áttar sig ekki
á eru fjarlægðirnar, það tekur suma
drengi marga klukkutíma að koma sér
til og frá æfingum. En aðstaðan er að
sjálfsögðu miklu betri og sama á við
um veðrið,“ sagði Þorlákur að lokum.
benni@dv.is
LEITAÐI AFTUR TIL UPPRUNANS
Sigursæll Þorlákur Árnason hefur notið mikillar velgengni sem þjálfari yngri flokka.