Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Page 39
uður er miðbæjarbarn og segist hafa meiri unun af húsum og marglitum þökum þeirra en fallegri fjallasýn. „Þegar annað fólk bendir á fallega fjallasýn bendi ég á húsin. Ég segi oft: „Sjáðu fallegu blokkina þarna.“ Ég elska stórar blokkarbyggingar, sérstaklega ef þær eru grænar.“ Þetta sjónarhorn er líklega dæmi- gert fyrir Auði sem er ekki þekkt fyr- ir að sitja á skoðunum sínum og er óhrædd við að tjá sig. Það hefur ekk- ert breyst með árunum. Nú er hún orðin sjötug, komin á aldurinn þeg- ar fólk er skikkað til þess að setjast í helgan stein. „Mér finnst alveg prýðilegt að vera orðin sjötug og mér finnst fá- ránlegt að leggja fólk á mínum aldri til hliðar. Sjálf hugsa ég svo sem ekk- ert um það að eldast en auðvitað eld- ist ég eins og allt annað fólk. En ég tel skynsamlegt að við sem gegnum op- inberum störfum hættum á þessum aldri. Einhvern tímann þurfum við öll að hætta að vinna og mér finnst það bara gera efri árin meira þokka- full. Okkur bíður nýtt líf, við fáum tækifæri til þess að finna okkur aðr- ar brautir og við getum haft það enn skemmtilegra en fyrr. Sjálf ætla ég að halda áfram að vinna við Kvenna- kirkjuna sem sjálfboðaliði, eins og við allar sem störfum við Kvenna- kirkjuna. Við þurfum bara að endur- skipuleggja starfið að einhverju leyti. Þegar ég var stelpa gerði ég mér ekki grein fyrir því hvort fólk væri sjötugt, fimmtugt eða hundrað ára. Líklega hefur mér fundist margt fólk á besta aldri vera æði gamalt þegar ég lít til baka. En aðallega fannst mér það flott fólk.“ Auður er vinamörg kona og er þekkt fyrir að rækta vináttuna. Hún er til dæmis ennþá í saumaklúbbi sem hún stofnaði ásamt skólasystr- um sínum í Verzlunarskólanum fyr- ir fimmtíu árum. Hún þvertekur fyrir það að vináttan sé á undanhaldi. „Ég held að fólk rækti vináttuna, svona almennt séð. Fólk hittist og borðar saman, heimsækir hvert ann- að og ferðast til útlanda til þess að hitta vini sína. Ég held að fólk sjái að vináttan er eitt það dýrmætasta sem við eigum. Ég held að vináttan haldist þótt nú sé talað mikið um firringu og tímaleysi. Ég held að við tölum of mikið um þessa firringu og þennan hraða. Sjálfsagt lifum við of hratt. En ef við komum auga á það þá er trúlegt að við gerum eitthvað til þess að breyta því. Þetta er samt eitthvað í sambandi við atvinnulífið. Fólk segir að það verði bara að vinna svona mikið því annars missi það af lestinni. Atvinnulífið þarf að breyta þessu því við getum það ekki sem einstaklingar. Við verðum öll að sjá fyrir okkur.“ Konur og kirkjan Við höldum áfram að tala um tíma, eða réttara sagt skort á honum og ég spyr Auði hvort hún telji að trú- in verði útundan í hraða nútímans? Hvort hún telji að fólk trúi minna en áður á Guð og meira á eignir og pen- inga. Auður vill ekki meina að svo sé. „Ég held að það hafi ekkert með tíma að gera hvort við ræktum trú okkar eða ekki. Ég held að það sé frekar að þetta sé í rauninni spurning um það hvort að við komum auga á það í kristnum löndum þar sem önn- ur trúarbrögð flæða inn til okkar að hin kristna trú er það aldýrmætasta sem við eigum. Ég held að þau okkar sem komi auga á það ræki trú sína. Allir biðja til Guðs þegar þeir lenda í hremmingum og það sýnir að trúin býr í hjarta okkar.“ Auður lagði grunninn fyrir konur í prestastétt og hún er fyrsta konan sem vígðist til prestsstarfa eftir nám í Háskóla Íslands. Hún segir að það hafi aldrei komið til greina að hún sneri sér að einhverju öðru og segist aldrei hafa séð eftir því að hafa ekki valið aðra leið. Nú eru breyttir tímar og konur streyma í guðfræðina. Ég spyr Auði hvort það breyti ekki þeirri ímynd sem við höfum flest að kirkjan sé mikið karlaveldi. „Ég hugsa að konur velji guðfræð- ina vegna þess að þær sjá þá heillandi möguleika sem námið býður upp á. Ég hef þá trú að það sé ekki leng- ur erfitt að vera kona innan presta- stéttarinnar. En staðreyndin er samt sú að við konurnar höfum ekki sömu möguleika og karlar þegar á reyn- ir. Látum það vera að ég hafi mætt tómlæti þegar ég bauð mig fram til að vera biskup en þegar Dalla dóttir mín bauð sig seinna fram til að vera vígslubiskup þá gerði ég mér fulla grein fyrir því hvað kirkjan er í raun- inni mikið karlaveldi. Karlmenn inn- an stéttarinnar spyrja oft af hverju við höfum kvennakirkju og hvort það væri þá ekki rétt að þeir karl- arnir stofnuðu karlakirkju. Ég svara þeirri spurningu á þennan hátt: Þú þarft þess ekki vinur, þú ert nú þegar í karlakirkju.“ Málefni samkynhneigðra Auður Eir er nýkomin af presta- stefnu á Húsavík þar sem hún var ein þeirra rúmlega fjörutíu presta og guðfræðinga sem báru fram til- lögu um að prestum yrði heimilað að annast hjónavígslu samkynhneigðra. Tillagan var felld með 64 aktvæðum gegn 22. Afstaðan er því mjög afger- andi, sérstaklega þegar haft er í huga að réttindi samkynhneigðra jukust með lögum ríkisstjórnarinnar um að kirkjan gengi skrefið til fulls. „Við bárum fram þessa tillögu vegna þess að við teljum að það sé kirkjunni sem stofnun, og öllum þeim sem starfa innan kirkjunnar, fyrir bestu að stíga þetta skref. Það verður stigið fyrr eða síðar. Við höf- um haft góðan aðdraganda og rætt þessi mál. Kirkjan hefur staðið vel að umræðunni og við vildum leggja til- löguna fram núna. Á prestastefnunni fóru fram góðar umræður, heiðarleg- ar, skarpar og skynsamlegar umræð- ur sem við megum vera ánægð með. Þetta var engin þvæla og klofningur heldur bara umræður.“ Auður segist hafa trú á því að það líði ekki langur tími þar til samkyn- hneigðir búi við sömu réttindi og gagnkynhneigðir. „Ég gæti trúað því að það tæki svona tvö til þrjú ár en ég gæti líka trúað því að það taki hundrað ár,“ segir Auður og hlær. Svo verður hún aftur alvarleg og segist halda að búið verði að setja ný lög innan næstu tíu ára. Aðspurð hvort hún hafi það á til- finningunni að einhvers konar múg- æsing sé í gangi, að fólk flykkist til þess að segja sig úr Þjóðkirkjunni og nútímafólk afneiti kirkju sem leyfi ekki öllum að hafa sama aðgang að Guði segir Auður að reyndin sé sú að við höfum öll sama aðgang að Guði. Hún trúi því vissulega að þannig horfi málið við Guði. Ég held að ungt samkynhneigt fólk hafi það frekar á tilfinningunni að prestarnir séu að svíkja það. En viðhorfin hafa vissu- lega breyst og það líka innan presta- stéttarinnar. Það sýnir það að við þurfum að ræða málin og það höfum við svo sannarlega gert innan kirkj- unnar, bæði í prestastéttinni og inni í söfnuðunum, eins og kirkjustjórnin lagði til að við gerðum.“ Besti vinur Laugavegarins Auður er lífsglöð kona. Hún er hláturmild og skrifstofan hennar lýs- ir afslappaðri konu. Á fundarborðinu úir öllu saman; litum og litabókum, hnetum, póstkortum og pappírum. „Ég þakka Guði fyrir lífsgleðina. Það sem mér finnst skemmtilegast að gera er eiginlega það að gera ekki neitt sérstakt. Bara að vakna og vera til og labba niður Laugaveginn. Það er mér ævinlega mikið gleðiefni. Ég hef líka afskaplega gaman af því að vinna og hef alltaf unnið mikið. Mér finnst yndislegt að vera með fólki og starf mitt býður upp á það. Svo hlakka ég alltaf til að borða kvöld- matinn heima með Þórði manninum mínum. Nú þegar ég er orðin sjötug hef ég tíma til þess að lesa frönsku kokkabækurnar mínar og ætla að taka oftar fram sparistellið og spari- dúkana sem maður gerir sjaldan því það er svo tímafrekt að strauja þá. Nú ætla ég að strauja og strauja. Þegar ég strauja tek ég fram sálmaplöturn- ar mínar til þess að efla trú mína. Því meira sem ég strauja því meira eflist trúin,“ segir Auður og skellihlær. Talið berst aftur að Laugavegin- um. „Tölum um Laugaveginn,“ segir Auður og brosir breitt. „Það er mitt eilífa áhugamál. Ég elska þennan Laugaveg og tel að hann sé ein af hin- um dýrmætu eigum okkar. Það hefur góð áhrif á hjartað að ganga Lauga- veginn. Þess vegna held ég að við eigum að byggja hann upp í sínum gamla stíl í stað kassanna sem stend- ur til að byggja. Ég get horfst í augu við þá staðreynd að þeir verði byggð- ir vegna þess að ég er þess fullviss að þeir verða rifnir aftur af þriðju kyn- slóð og Laugavegurinn aftur byggður upp í gamla, lágvaxna stílnum. Ég lít svo á að það eigi að styðja við bakið á miðbænum og Grjótaþorpinu. Ég er viss um að sá tími komi áður en langt um líður að litlu matvörubúð- irnar spretti aftur upp á hornunum. Það má segja að það sé bara hluti af heilbrigðiskerfinu því okkur líður betur þegar við erum í nánum sam- skiptum við annað fólk. Annars er ég á því að það eigi ekki að þétta byggð- ina í borginni. Það á að lofa henni að breiða úr sér og byggja hana í þorp- um. Innan hvers þorps yrði allt það sem krakkarnir þurfa á að halda; skólinn, íþróttirnar, kirkjan og skát- arnir. Það myndi auðvelda samskipti krakkanna og pabbar og mömmur þyrftu ekki að þeytast um allan bæ til þess að keyra þá. Foreldrarnir geta svo unnið í hvaða þorpum sem er.“ Unga fólkið og framtíðin Auður hefur áhyggjur af auknum afbrotum ungs fólks og segir að nú verði að taka í taumana. „Margt ungt fólk er yndislegt en svo heyrum við þessar skelfilegu sögur um ungt fólk sem ræðst á ann- að ungt fólk. Þetta er skelfilegt og nú verður að taka í taumana. Nú hef- ur aldrei verið beinlínis vinsælt að taka í taumana og til þess þarf mik- inn kjark. En það verður að hjálpa þessu unga fólki að átta sig á því hvað í ósköpunum knýr það til að fremja þessi hryllilegu verk. Líklega tengist þetta líka því sem ég sagði áðan, atvinnulífinu, afkomu okk- ar og röngum áherslum. En hver er þess tilkominn að segja mér og þér að við höfum rangar áherslur? En við verðum að breyta vinnumynstr- inu og þeim sem stjórna vinnunni okkar. Þetta er líka spurning um að breyta hugsunarhættinum. Ég hef trú á því að ef við gáum vel þá kom- um við auga á að líf okkar flestra er á einhvern hátt yndislegt og við ættum að hvetja hvert annað til þess að sjá það. Það er það sem kristin trú hvet- ur okkur til að gera. Regnið bylur á marglitu þökun- um fyrir utan gluggann hennar Auð- ar þegar við kveðjumst. Ég spyr hana hvort hún vilji segja eitthvað að lok- um og hún svarar að bragði: „Lokaorðin eru þau sem við segj- um alltaf í Kvennakirkjunni: Njóttu lífsins og gleðstu í lífinu og notaðu lífið því þú ert yndisleg manneskja og vinkona Guðs. Er þetta ekki fal- legt?!“ thorunn@dv.is DV Helgarblað Föstudagur 4. maí 2007 39 Auður Eir Vilhjálmsdóttir Kom aldrei annað til greina en að verða prestur.Elskar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.