Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Síða 41
Starfsferill
Þórunn fæddist í Reykjavík 29.9.
1944. Hún lauk prófi frá Leiklistarskóla
LR 1967 og var í framhaldsnámi í leik-
list í Stokkhólmi 1970-1971.
Þórunn var blaðamaður á Vísi
1967-74, á Þjóðviljanum 1974-86 og
ritstjóri sunnudagsblaðs þar um tíma
og fararstjóri á Spáni 1987-89.
Þórunn var leikari hjá LR og Þjóð-
leikhúsinu 1967-82, kenndi leiklist í
Leiklistarskóla Íslands, Fósturskólan-
um og KHÍ og hefur verið leikstjóri hjá
LR, LA, Leiklistarskóla Íslands, RÚV,
Þjóðleikhúsinu, áhugafélögum og er-
lendis. Hún hefur samið átta leikrit
sem sýnd hafa verið hjá LR, Þjóðleik-
húsinu og víðar eða flutt í útvarp. Hún
var verkefnisstjóri hjá Barnaheillum
1996, stjórnandi Reykjavíkur – menn-
ingarborgar Evrópu 2000 á árunum
1998-2000, og hefur verið listrænn
stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík frá
2000.
Þórunn sat í stjórn Félags leikstjóra
á Íslandi 1979-82, í þjóðhátíðarnefnd
Reykjavíkur 1978-83, í ritnefnd 19. júní
1979-80, var fulltrúi Íslands í Norræna
leikstjóraráðinu 1991-94, sat í stjórn
Listahátíðar í Reykjavík 1994–2000,
ýmist sem formaður eða varaformað-
ur, sat í ritnefnd Nordic Theatre Review
1990–95, var formaður Barnamenn-
ingarnefndar menntamálaráðuneytis-
ins, sat í stjórn Menningarborgarsjóðs
og í stjórn Félags leikstjóra á Íslandi.
Þá situr hún í stjórn UNICEF og í stjórn
Velgerðarsjóðs Ólafs og Ingibjargar
sem stofnaður var um síðustu áramót.
Fjölskylda
Þórunn giftist 11.8. 1972 Stefáni
Baldurssyni, f. 18.6. 1944, fyrrverandi
Þjóðleikhússtjóra og núverandi óp-
erustjóra Íslensku óperunnar. For-
eldrar Stefáns: Baldur Stefánsson, f.
22.8. 1920, nú látinn, verkstjóri hjá
ÁTVR, og kona hans, Margrét Sigur-
lína Stefánsdóttir, f. 18.8. 1917, hús-
móðir.
Börn Þórunnar og Stefáns eru
Baldur, f. 2.4. 1971, sérfræðingur hjá
Landsbanka Íslands, kvæntur Þóru
Björk Ólafsdóttur háskólanema og
eru synir þeirra Stefán Logi og Kol-
beinn Óli; Unnur Ösp, f. 6.4. 1976,
leikkona og leikstjóri en sambýlis-
maður hennar er Björn Thors leikari.
Systkini Þórunnar eru Kolbeinn,
f. 11.8. 1943, flugstjóri í Lúxemborg;
Jón, f. 23.8. 1946, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins; Guðbjartur, f. 7.12.
1949, prentfræðingur í Reykjavík;
Guðrún Sigríður, f. 23.9. 1956, fram-
kvæmdastjóri Íslandtours í Lecco á Ít-
alíu; Katrín, f. 28.2. 1967, myndlistar-
maður í New York.
Foreldrar Þórunnar: Sigurður Óla-
son, f. 19.1. 1907, d. 18.1. 1988, hrl.,
og k.h., Unnur Kolbeinsdóttir, f. 27.7.
1922, kennari og bókasafnsfræðingur.
Ætt
Meðal föðursystkina Þórunnar:
Ágúst, afi Sturlu Böðvarssonar sam-
gönguráðherra; Tómas verslunar-
maður, afi Sturlu Tómasar Gunnars-
sonar, kvikmyndaleikstjóra í Kanada;
Kristín kennari, amma Sjafnar Ing-
ólfsdóttur, formanns Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar; Unnur
frá Gröf, móðir Halldórs, Hauks og
Hilmars sem hafa starfrækt Sérleyfis-
og hópferðabíla Helga Péturssonar.
Sigurður var sonur Óla, oddvita
á Stakkhamri, bróður Jóns, bónda
í Borgarholti, Jónssonar, bónda í
Borgarholti, Jónssonar, bróður Krist-
ínar, langömmu Ólafs Thors forsæt-
isráðherra. Önnur systir Jóns var
Kristín, langamma Ingunnar, móður
Sturlaugs H. Böðvarssonar á Akra-
nesi. Móðir Sigurðar var Þórunn
Sigurðardóttir, bónda á Skeggstöð-
um Sigurðssonar, og Margrétar Þor-
steinsdóttur, bónda á Æsustöðum
Ólafssonar, bróður Guðmundar, afa
Ólafs Davíðssonar þjóðsagnasafnara
og langafa Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi.
Unnur er dóttir Kolbeins, skálds
í Kollafirði Högnasonar, trésmiðs í
Reykjavík, bróður Ólafs, afa listmál-
aranna Steingríms og Örlygs Sigurðs-
sona. Högni var sonur Finns, bónda á
Meðalfelli í Kjós Einarssonar, prests á
Reynivöllum, bróður Björns, langafa
Baldvins, föður Björns Th. Björns-
sonar listfræðings. Einar var sonur
Páls, prests á Þingvöllum Þorláks-
sonar, bróður Jóns prests og skálds
á Bægisá. Móðir Högna var Kristín,
systir Hans, afa Þorsteins Ö., leiklist-
arstjóra RÚV. Kristín var dóttir Stef-
áns Stephensens, prests á Reynivöll-
um Stefánssonar. Móðir Kristínar var
Guðrún, systir Þuríðar, langömmu
Vigdísar, fyrrverandi forseta. Guðrún
var dóttir Þorvalds, prófasts og skálds
í Holti Böðvarssonar. Móðir Kolbeins
var Katrín, systir Guðmundar, afa
Hans G. Andersens sendiherra. Katr-
ín var dóttir Kolbeins, bónda í Kolla-
firði Eyjólfssonar.
Móðir Unnar var Guðrún, kenn-
ari við Miðbæjarskólann Jóhanns-
dóttir, b. í Krókshúsum og á Hnjóti
Jónssonar, vinnumanns í Tungu í Ör-
lygshöfn Jónssonar. Móðir Guðrúnar
var Kristín Jónsdóttir, b. í Hænuvík
Bjarnasonar.
DV Ættfræði föstudagur 4. maí 2007 41
MAÐUR VIKUNNAR
Þórunn Sigurðardóttir
listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík
Magnús Torfi Ólafsson
f. 5. maí 1923, d. 3. nóvember 1998
Magnús Torfi Ólafsson mennta-
málaráðherra fæddist á Lambavatni á
Rauðasandi. Hann lauk stúdentsprófi
frá MA 1944 og hugði á nám í læknis-
fræði en ílengdist í blaðamennsku fyr-
ir Þjóðviljann. Þar hóf hann störf 1945,
var lengst af fréttastjóri erlendra frétta
og ritstjóri blaðsins 1959-1962. Þá var
hann deildarstjóri erlendrar deildar
Máls og menningar 1963-71.
Magnús Torfi var vinstrisinnaður
en ósáttur við hvort tveggja, kommak-
reddur í Alþýðubandalaginu og tólf
ára viðreisnarsamstarf Alþýðuflokks-
ins við Sjálfstæðisflokkinn. Hann gekk
því til liðs við Hannibalsista og aðra
frjálslynda jafnaðarmenn sem stofn-
uðu Samtök frjálslyndra og vinstri-
manna. Varð hann strax í upphafi einn
af forystumönnum samtakanna og
ekki dró úr áhrifum hans er Hanni-
bal Valdimarsson hætti skyndilega við
framboð í Reykjavík og fór þess í stað
fram á Vestfjörðum. Magnús Torfi varð
þá efstur á lista Samtakanna í Reykja-
vík. Í kosningunum 1971 voru það
fyrst og síðast Samtök frjálslyndra og
vinstrimanna sem felldu Viðreisnar-
stjórnina.
Magnús Torfi var alþingismaður
1971-1978, menntamálaráðherra í
fyrri ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar
1971-1974, er grunnskólalögin tóku
gildi, og samgönguráðherra 1974 er
hringvegurinn var opnaður. Hann
var alla tíð heill í stuðningi sínum við
vinstristjórn Ólafs Jóhannessonar og
lenti því í andstöðu við Hannibal og
Björn Jónsson sem studdu og mynd-
uðu þá stjórn með hangandi hendi
en vildu frekar mynda stjórn með
Sjálfstæðisflokknum og Alþýðuflokki.
Er Magnús Torfi hætti á Alþingi varð
hann blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar
og gegndi því starfi til 1989.
Magnús Torfi var vandvirkur
blaðamaður, sjálfstæður í skoðun-
um og fróður um margvísleg mál-
efni, ekki síst á sviði bókmennta og
alþjóðastjórnmála. Hann skrifaði
dagblaðsgreinar um alþjóðastjórn-
mál og erlend málefni í tæp fjöru-
tíu ár, í Þjóðviljann, Helgarblaðið
og loks DV um árabil. Þessar grein-
ar báru af sambærilegum skrifum
vegna yfirgripsmikillar þekkingar
hans.
Magnús Torfi var vel liðinn og naut
almennrar virðingar. Hann gaf af sér
góðan þokka enda grandvar maður,
hægur og háttvís, þótt undir niðri væri
hann skapheitur og fastur fyrir.
MeRKIR ÍsleNdINgAR:
Þórunn Sigurðardóttir, leik-
stjóri og listrænn stjórnandi
Listahátíðar í Reykjavík, hef-
ur haft í mörg horn að líta að
undanförnu enda styttist óðum
í Listahátíð í Reykjavík sem
haldin verður dagana 10. til 26.
maí. Sjónvarpsþáttur um alla
viðburði hátíðarinnar, þrjátíu
talsins, sem var á dagskrá Sjón-
varpsins, sunnudagskvöldið
29. apríl verður endursýnd-
ur að morgni sunnudagsins
6. maí kl. 10.45. Þátturinn er
einnig aðgengilegur á vef Rík-
isútvarpsins, ruv.is.