Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Síða 44
Beringer Napa Valley Fumé Blanc 2004
Vín frá Beringer hafa notið mikillar hylli hér á landi um langt árabil en vínhúsið var stofnað 1876
af bræðrunum Jacob og Frederick Beringer. Þeir fluttu frá Mainz í Þýskalandi og fundu í Napa
Valley kjöraðstæður til víngerðar. Fumé Blanc er úr þrúgunni Sauvignon blanc. Mikil og góð
blómalykt en ananas og suðrænir ávextir í munni, jafnvel hunang. 1490 krónur.
FöStudagur 4. Maí 200744 Helgarblað DV
Eðalkjúklinga-
réttur
4 kjúklingabringur
100 g smjör
1 bolli hvítvín
1 krukka mangó-chutney (græna
Sharwoods)
1 msk karrý
ferskt kóríander
kókosmjöl
Skerið bringurnar í tvennt og setjið þær
í eldfast mót. Bræðið smjörið í potti,
setjið hvítvín og karrý saman við og láta
malla í nokkrar mínútur.
Hellið þessu svo yfir kjúklinginn og látið
í mótið í 180 gráðu heitan ofn í fimmtán
mínútur. takið úr ofninum og hrærið
mangó-chutneyinu vel saman við
sósuna. Setjið aftur í ofninn og bakið í
15 mínútur. takið úr ofninum og dreifið
kókósmjöli og kóríander yfir eftir smekk.
gott að bera fram með hrísgrjónum,
naanbrauði og salati.
U m s j ó n : Þ ó r u n n S t e f á n s d ó t t i r . N e t f a n g t h o r u n n @ d v . i s
&Matur vín
Brúðarskál eða fordrykkur
Munið að fordrykkurinn gefur tóninn fyrir veisluna og því er
mikilvægt að vanda valið þannig að gestir fái góða upplifun strax í
byrjun veislunnar. Veljið millisætt eða þurrt freyðivín eða ósvikið
kampavín. Fyrir þá sem vilja breyta til frá freyðivínum hefur Mateus
rósavín notið nokkurra vinsælda sem fordrykkur og er það þá borið
fram í háum freyðivínsglösum og er það þá ekki síst bleiki liturinn
sem heillar.
Gunnar Karl Gíslason, yfirmatreiðslumaður á Vox
Frumskógardjús
Frumskógardjús er tilvalið í partíið og er
einfaldlega blanda af hverju sem er.
Hver gestur kemur með vínflösku að
eigin vali. gestgjafinn hefur tilbúna
stóra skál með
niðurskornum
ávöxtum (til dæmis
appelsínum, perum,
vatnsmelónu og
banönum) og
ávaxtasafa.
gestirnir búa til sitt
eigið frumskógardjús.
Það er um að gera að leyfa sköpunar-
gáfunni að ráða og það er ekki hægt að
gefa ákveðna uppskrift að frumskógar-
djúsinu. Mörgum finnst gott að nota
mikið af ávöxtum, ananas- og
appelsínusafa og bæta vodka, rommi
eða tequila út í. gætið þess bara að hafa
blönduna ekki of sterka og munið að
eftir einn ei aki neinn!
Turning Leaf Chardonnay 2005
Bræðurnir Ernest og Julio gallo stofnuðu víngerðina E. & J. gallo 1933, tveimur
mánuðum eftir að faðir þeirra myrti móður þeirra og framdi svo sjálfsmorð. Julio
sá um víngerðina en Ernest um markaðssetninguna. Julio lést 1993 en Ernest fyrr
á þessu ári. Fyrirtækið framleiðir milljarð flaskna á ári. Ég sat á dögunum
hádegisverð með yfirvíngerðarmanni gallo, Cal dennison, og fyrirlestur og
vínsmökkun um kvöldið. Hann segir að í munni og nefi megi helst greina peru og
ferskju, en einnig sítrusávexti og smá krydd. Ekki ætla ég að rengja þann ágæta
mann, þótt ég þykist að auki greina epli. Ágætis vín sem kostar ekki mikið. 1220
krónur.
Montes Alpha Chardonnay 2005
Hinn þekkti víngerðarmaður aurelio Montes stofnaði Montes-víngerðarhúsið með nokkrum öðrum
og það er nú eitt þekktasta vínfyrirtæki Chile. aurelio er enn aðalvíngerðarmaður Montes. Montes
alpha Chardonnay er frá Casablanca Valley. Smjör og vanilla eru það sem manni dettur fyrst í hug,
eins og svo oft með eikuð vín úr Chardonnay-þrúgunni. Einnig má greina epli og perur. traust vín á
ágætu verði. 1590 krónur.
Ákvörðun Jean-Claude Boisset á dögunum að setja skrúftappa á Búrg-úndarvínið Chambertin 2005 hefur vakið mikla at-
hygli. Hann ákvað að hafa aðra hverja
flösku af ofurvíninu með skrúftappa,
hinn helminginn með hefðbundnum
korktappa. Þetta mun vera í fyrsta
skipti sem skrúftappi er settur á
franskt grand Cru rauðvín en
dæmigerð flaska kostar ekki
undir 200 dollurum. Þetta vín er
ekki selt á íslandi en 15 þúsund
krónur eru rétt rúmlega 200
bandaríkjadalir.
Boisset segir að virða eigi
hefðir en jafnframt hvetja
fólk til nýrrar nálgunar til
að tryggja aukin gæði
víns. Hann gefur ekkert
uppi um hvort eða hve-
nær alfarið verður skipt
yfir í skrúftappa en á
síðustu misserum hef-
ur hann fjölgað þeim
tegundum sem fá
skrúftappa.
Þetta er þó engin
skyndiákvörðun því
framleiðandinn hefur
gert samanburðartil-
raunir í fjóra áratugi. Ákvörðunin nú
var tekin eftir að borin voru saman
víntegundir með málmtappa annars
vegar en korki hins vegar. Elstu vínin
voru Nuits-St. georges Premier Cru
frá 1964 og Mercurey frá 1966. í ljós
kom að málmurinn hélt ferskleika
betur en korkur. En það sem mestu
skipti. gæðin reyndust alltaf þau
sömu undir málmtappa, en vín
með korktappa reyndust afar
misjöfn að gæðum. Niðurstaðan
var því sú að gæði og stöðug-
leiki skiptu meira máli en gaml-
ar hefðir.
Skrúftappar verða sífellt
algengari á gæðavín-
um í Ástralíu, Nýja-
Sjálandi, Suður-afr-
íku og jafnvel
Kaliforníu, en Evr-
ópubúar hafa lengst
af haldið fast í hefð-
ina. Þar til nú hefur til
dæmis aðeins sést
skrúftappi á grand
Cru hvítvínsflöskum.
Boisset og félagar segj-
ast nú sannfærðir um
ágæti skrúftappanna og
fullyrða að í framtíðinni
verði ofurvín almennt
með skrúftappa. Vín-
áhugamenn verða hins veg-
ar seint sammála um þetta!
Pálmi jónasson
vínsérfræðingur DV
Einkunn í vínglösum:
IIIII Stórkostlegt
IIII Mjög gott
III Gott
II Sæmilegt
I Slakt
Skrúftappi eða korkur?
UPPskrift að forrétti fyrir 4
l 450 gr. smálúða, roðlaus
og beinlaus
l 50 gr. sykur
l 50 gr. salt
l 200 gr. túnsúra
l 2 dl. ólífuolía
l 1 stk. fennika
l 2 stk. skarlottulaukur
l 1 stk. sítrónusafi
l ½ búnt ferskt dill
l 4 stk. lítil egg
l ½ óskorið maltbrauð eða rúgbrauð
l Maldon eða annað gott grófmulið
salt og nýmulinn pipar
smálúðan
Blandið saman salti og sykri til
helminga. Hyljið smálúðuna alger-
lega í böndunni og látið standa í 15
mín. Þá er saltið og sykurinn skol-
að af og smálúðan þerruð. Takið
túnsúrur og setjið í blandara ásamt
kaldri ólífuolíu og blandið uns flau-
elsáferð er komin á maukið, smakkið
til með salti og pipar. Marínerið því
næst smálúðuna í sólarhring og bak-
ið svo í ofni við 100°C.
Túnsúrugrafin smálúða með
fenniku, þurrkuðu malt-
brauði, hægsoðinni eggja-
rauðu og dillismálúða Túnsúrugrafin