Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 56
föstudagur 4. maí 200756 Helgarblað DV TónlisT Stórsveitin Hjaltalín heldur tón- leika í 12 tónum við Skólavörðu- stíg í dag (föstudag). Hjaltalín hef- ur vakið mikla athygli undanfarið og hefur lagið þeirra Goodbye July/ Margt að ugga, fengið væna spilun í útvarpsstöðvum landsins. „Við höf- um verið að spila saman í þessari mynd sem svona fjölmennt band í rúmt ár en hljómsveitin Hjaltalín hefur hins vegar verið til síðan árið 2005,“ segir Guðmundur bassaleik- ari hljómsveitarinnar. Sveitin hefur haft nóg fyrir stafni upp á síðkastið en síðastliðið föstudagskvöld spil- aði Hjaltalín á tvennum tónleik- um, fyrst sem gestasveit á Plokkað hringinn tónleikunum á NASA og seinna um kvöldið á Grand Rokk ásamt hljómsveitinni Dikta. „Það er ekkert mál að spila svona á tvenn- um tónleikum enda var þetta bara hálftími á hvorum stað svo þetta var langt frá því að vera óbærilegt, bara gaman,“ segir Guðmundur. Jafn- framt segir hann að ekkert sé neglt niður í sambandi við tónleikahald í sumar. „Við ætlum allavega að setja stefnuna á að klára plötuna okkar í sumar,“ segir hinn hressi söngvari gleðistórsveitarinnar Hjaltalín að lokum. Tónleikarnir hefjast klukk- an 17 og er frítt inn. krista@dv.is Besta indí-lagið Noel gallagher, söngvari bresku sveitarinnar Oasis, hefur nú viðurkennt að hafa samið lagið Live forever sem mótsvar við þunglyndislegu lagi með Nirvana. „Þetta var um miðjan tíunda áratuginn og grunge-rokkið var að tröllríða öllu. í lagi með Nirvana söng Kurt Cobain: I hate myself and I want to die, þá hugsaði ég með mér að ég vildi ekki senda svona neikvæða tónlist frá mér og í kjölfarið varð lagið okkar Live forever til,“ segir söngvarinn en umtalað Oasis-lag var nýlega kosið besta indí-lag allra tíma af tónlistar- tímaritinu Nme. Tónlistarakademía DV segir: Hlustaðu á þessa! favourite Worst Nightmare með arctic monkeys Yours truly, angry mob með Kaiser Chiefs robbers & Cowards með the Cold War Kids Collie Buddz með Collie Buddz Person Pitch með Panda Bear Enginn söngur mike d. meðlimur hljómsveitarinnar Beastie Boys ræðir um nýjustu plötu sveitarinnar the mix up í nýlegu viðtali við Pitchforkmedia. Þar kemur fram að platan sem kemur út þann tuttugasta og sjötta júni sé seinni tíma pönkplata með engum söng og engum tölvutöktum heldur leiki þeir sjálfir á hljóðfæri allt efnið á plötunni. mike segir þó að þrátt fyrir að ekkert sé sungið á plötunni sé það ekki ætlunin í framtíðinni, þeir séu nú þegar byrjaðir að skipuleggja aðra útgáfu af the mix up þar sem þeir fái til liðs við sig ýmsa söngvara sem lítið hafi heyrst til áður. Rappkeppni ungir og efnilegir rapparar geta átt von á glæsilegum vinningum og þeim heiðri að fá að rappa á einu af stóru sviðunum á Hróarskelduhátíðinni í júlí. Það eina sem þarf að gera er að mæta í áheyrnarprufurnar sem fram fara við hjólabrettasvæðið á Hróarskelduhátíð- inni á hverju kvöldi í þá fjóra daga sem upphitun er í gangi áður en aðaldag- skráin hefst þann fimmta júlí. Á hverju kvöldi stendur einn uppi sem sigurvegari og að lokum verða fjórir rapparar sem stíga á svið og skemmta gestum hátíðarinnar. Á endanum er einn krýndur aðalsigurvegari og hlýtur sá að launum tvo miða á hátíðina á næsta ári, dýrindis máltíð fyrir tvo og annan varning. Hjaltalín í 12 tónum í dag Hæfileikakeppnin Krúnk fór fram á mánudagskvöldið í Iðnó. Ellefu sveitir kepptu um plötusamning hjá Cod Music og var það blúsbandið Johnny and The Rest sem bar sigur úr býtum. Hæfileikakeppnin Krúnk sem fram fór mánu- dagskvöldið 30. apríl í Iðnó gekk gríðarlega vel, að sögn Carmenar Jóhannsdóttur tónleikahald- ara. Áheyrnarprufurnar gengu vonum framar og sökum þess hve erfitt var að velja einungis tíu hljómsveitir sem kæmust alla leið á úrslitakvöld- ið var einni aukahljómsveit bætt við. Á endanum voru það því ellefu hljómsveitir sem hófu upp raust sína í von um vegleg verðlaun. Það var svo blúsbandið Johnny and The Rest sem bar sigur úr býtum og hlaut þar af leiðandi plötusamning hjá Cod Music. Í öðru sæti lenti tónlistarmaður- inn Jón Tryggvi sem hlaut að launum Logic Pro- tónlistarforrit frá Apple-umboðinu. Tóku þátt með stuttum fyrirvara „Við erum búnir að spila saman í tæp tvö ár, við þekktumst ekkert í byrjun heldur vorum við bara nokkrir strákar með sameiginlegan áhuga á blús sem ákvöddum að stofna band,“ segir Bragi Jóhannsson, söngvari sveitarinnar. Hann segir það hafa komið mjög skyndilega upp á að fara í áheyrnarprufurnar en hann og Hrafnkell Már voru tveir að glamra eitthvað þegar þeir fengu símhringingu. „Villi á Dillon hringdi í okkur og sagði okkur frá áheyrnarprufunum. Trommarinn okkar var þá með gubbupest og fjórði aðilinn vant við látinn svo við mættum bara tveir og spiluð- um smá blús,“ segir söngvarinn og bætir svo við: „Við gerðum þetta með gamla klisjukennda hug- arfarinu, að það sé gaman að taka þátt og áttum alls ekki von á því að sigra.“ Allt efnið frá hljóm- sveitinni er frumsamið og segir Bragi keppni sem þessa vera frábært tækifæri fyrir hljómsveitir að koma sér á framfæri og verðlaunin í Krúnk hafi verið mjög vegleg og góð. Reknir úr skúrnum Nú æfa strákarnir í Tónlistarþróunarmið- stöðinni en eins og aðrar almennilegar íslenskar hljómsveitir byrjuðu þeir sem bílskúrsband. „Það var reyndar stutt stopp því í húsunum í kring bjuggu: lögga, prestur og lesbíupar sem ráku okk- ur fljótlega úr skúrnum,“ segir hann hlæjandi. Þegar talið berst að plötusamningnum hjá Cod Music segir Bragi að þeir séu frekar jarðbundnir og rólegir yfir þessu öllu saman og ekkert sé kom- ið almennilega á hreint um hvenær platan komi út. „Það kemur bara allt í ljós, erum að semja efni núna og sjáum svo til hvenær við ráðumst í upptökur,“ segir hressi blúsarinn Bragi að lokum. Áhugasömum er bent á síðuna myspace.com/ johnnyandtherest en þar má heyra nokkur lög frá þessari stórskemmtilegu hljómsveit. krista@dv.is Hjaltalín stórsveit sem kynntist í mH. Stórsveitin Hjaltalín heldur gleðitónleika klukkan 17 í dag: „Lögga, prestur og lesbíupar ráku okkur úr skúrnum“Johnny and The Rest Hæfileikaríkt blúsband af bestu gerð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.