Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Page 62

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Page 62
föstudagur 4. maí 200762 Síðast en ekki síst DV veðrið ritstjorn@dv.is laugardagurföstudagur svæsnar sögur Sjónvarpsþulan og fyrrum ritstjór- inn Ellý Ármannsdóttir er dugleg við að blogga og heldur úti síðunni ellyar- manns.blog.is. Færslur Ellýar einkennast af samræðum milli hennar og vinkvenna hennar og bein- ar tilvitnanir í þessar samræður. Til dæmis er ein vinkonan sem er að hitta einkaþjálfara sem vill ekki njóta ásta nema þau séu útmökuð í skyri. Kallinn er sá að vinkonan fær svo slæm útbrot af vaniluskyrinu. Þá er önnur vinkona hennar sem reyndi að fanga athygli eiginmanns síns og vina sem horfðu á undan- úrslitaleik Liverpool og Chelsea í meistaradeildinni. Vinkonan beraði á sér brjóstin fyrir frama sjónvarpið en var vinsamlegast beðin um að færa sig. samskipti kynjanna Björn Ingi Hrafnsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og formað- ur borgarráðs skýtur kald- hæðnisskoti á Ellý Ármanns á bloginu sínu bingi.blog.is. Björn nefnir sjónvarpsþuluna „Ofurbloggarinn Ellý“ og talar um pistil þar sem vinkona Ellýar reyndi að keppa um athygli við undan- úrslitaleik Liverpool og Chelsea í Meistaradeildinni í gær og beið ósigur. Þá segir Björn orðrétt á blogi sínu, „Af því að allir pistlar Ellýar eru örugglega dagsannir og vinkon- ur hennar eru eins og villta útgáfan af vinkvennahópnum í Beðmál- um í borginni, er ekki úr vegi að maður bæti við tveimur léttum um samskipti kynjanna og fótboltann,“ sagði Björn og kom svo með tvær gamansögur um fótbolta og sam- skipti kynjanna. Kemur sér í vígaform Inn á heimsíðu bardagaíþrótta- félagsins Mjölnis má sjá mynd- ir af leikaran- um Ingvari E. Sigurðsyni að taka þátt í nýju námskeið sem ber yfirskrift- ina „Combat Conditioning“. Á námskeiðinu fólk þjálfað eins og alvöru keppendur fyrir mót. Árni „úr járni“ Ísaksson er meðal þjálf- ara en hann hefur verið fremstur á sviði blandaðara bardagalista hér á landi. Það er greinilegt að Ingvar ætlar að koma sér í hörkuform. senjoríta Jónína? Vefurinn barnaland.is hefur oft verið gagnrýndur fyrir það að þar getur fólk sagt hvað sem því sýnist í skjóli nafnleyndar. Með dugleg- ustu skrifur- um á síðum barnalands er svokölluð senjóríta og hafa verið uppi getgátur um hvaða manneskja skrifi undir því dulnefni. Athygli hefur vakið að málefni Baugs eru viðkomandi afar hugleikin og er senjorítan oft fyrst með fréttirnar af málefn- um og dómum í Baugsmálinu. Þannig skrifaði senjorítan um sakfellingu á hendur þeim Jóni Ásgeiri og Tryggva Jónssyni kl. 12.17 í dag eða skömmu eftir að fréttirnar bárust fjölmiðlum. Eftir að „sönnunum“ um að senjór- ítan væri í raun Jónína Bene- diktsdóttir, er hins vegar fullyrt á barnalandi að á bak við nikkið standi fjórar manneskjur. Sandkorn Tengsl garðar thor Cortesstórsöngvari á það sameiginlegt með ... ...lárusi Welding forstjóra glitnis að bera eftirnafn. ...lárus á það sameiginlegt með andreu Jónsdótt- ur rokkömmu að vera gráhærð- ur ...andrea á það sameiginlegt með Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur að vinna hjá rÚV ohf. ...Jóhanna Vigdís á það sameiginlegt með Nönnu rögnvaldardóttur að hafa gefið út matreiðslubók. ...Nanna á það sameiginlegt með agli Ólafssyni að búa við grettis- götu. ...Egill á það sameiginlegt með Jakobi frímanni Magnússyni að vera í stuðmönnum ...Jakob á það sameiginlegt með Þorgerði Katrínu gunnarsdóttur að skipa fyrsta sæti á framboðslista í suðvesturkjör- dæmi ...Þorgerður Katrín á það sameigin- legt með siv friðleifsdóttur að vera ráðherra ...siv á það sameiginlegt með garðari thor að eiga foreldri sem ber erlent eftirnafn. Skoðanakannanir setja svip sinn á lífið þessa dagana. En óvana- legasta skoðanakönnunin er sennilega framkvæmd af tólf ára reykvískum dreng, goða Hrafni, sem gengur milli kosninga- skrifstofa og kannar hvernig flokkarnir koma fram við börn. Goði Hrafn er að verða þrettán ára og hefur heimsótt þrjár kosn- ingaskrifstofur í Reykjavík en ætlar að heimsækja þær allar. Hann segist tala um stjórnmál við móður sína og velta fyrir sér komandi kosningum. „Ég er nú bara aðallega að kanna hvernig er komið fram við börn,” sagði Goði Hrafn þegar við inntum hann eftir áhuga hans á kosning- unum. „Við mamma erum að velta fyrir okkur stjórnmálunum og töl- um stundum um þau. Ég horfi líka á stjórnmálamennina í sjónvarpinu en held að þeir séu almennilegri þegar maður hittir þá en þeir virka í sjón- varpinu.“ Goði Hrafn segir að sér sé vel tekið á kosningaskrifstofunum. En hann er bara hálfnaður með heimsóknir sínar. „Ég er búinn að fara á skrifstof- urnar hjá x-V, x-D og x-F,“ segir hann. „Stundum hef ég þurft að bíða eft- ir að einhver geti talað við mig. Það er þá bara ef fólkið er upptekið við að tala við einhvern annan. Ég á eftir að heimsækja x-S, x-B og Íslandshreyf- inguna og ætla að gera það í næstu viku.“ Hann segist ekki vera með spurn- ingalista á sér heldur spyrji bara um það sem honum dettur í hug þegar hann sest niður með starfsfólki eða frambjóðendum. „Svo er ég með blokk og penna með mér og gef þeim einkunn eft- ir því hvernig þeir koma fram við mig,” segir hann. „Mér var lang best tekið hjá x-F. Þar fékk ég kakó og smákökur og talaði við mann sem ég held að sé frambjóðandi. Hann benti mér á hvaða smákaka honum þætti best!“ Þegar Goði Hrafn er spurður hverju hann myndi breyta á Íslandi ef hann væri stjórnmálamaður seg- ir hann að það sé svo margt að hann muni ekki í augnablikinu hvað sé næst mest áríðandi. En hann veit hvað honum finnst mest áríðandi. „Mér finnst mest áríðandi að það sé minni mengun hér,“ sagði þessi ungi maður, sem ætlar að setjast nið- ur með mömmu sinni í næstu viku og upplýsa hana um hvaða flokki hann treysti best til að koma vel fram við börn. „Það skiptir miklu máli að stjórnmálaflokkarnir komi vel fram við börn og eldri borgara.“ annakristine@dv.is 1 4 4 3 2 5 2 12 8 18 1 7 1 6 7 76 4 1 7 7 4 19 7 4 4 7 4 7 3 5 9 7 6 5 7 4 5 3 FRJÁLSLYNDIR FÁ BESTU EINKUNNINA goði Hrafn „Það skiptir miklu máli hvernig stjórnmálamenn koma fram við börn og eldri borgara“, segir þessi þrettán ára herramaður sem hefur ákveðnar skoðanir á lífinu og tilverunni. Veðrið aftur “eðlilegt” „Er nema furða að spurt sé hvort að allar þessar fréttir af hitamet- um sem sett hafa verið í V-Evrópu og hér á landi í apríl séu ekki birt- ingarmynd aukinna gróðurhúsa- áhrifa,“ segir Einar Sveinbjörns- son veðurfræðingurl. „Ég hef sagt á móti að hitabylgjan í hluta Evrópu og teygði anga sína til okkar síðustu þrjá daga mánaðrins sé einkum af völdum nokkuð óvenjulegrar stöðu veðurkerfanna. Nálgast það reyndar að vera einsdæmi ef litið er til þess hversu lengi ástandi varði. Segja má að þurr og hlýr loftmassi sem gjarn- an hefur komið sér fyrir yfir N-Afr- íku og Miðjarðahafi hafi fært sig um set mun norðar. Í staðinn var fremur svalt og óvenjuúrkomusamt á sól- arströndum Spánar og þar um kring. Annar fylgifiskur voru kuldar við Eystrasaltið og vest- ast í Rússlandi.“ „En þessir sæludagar í veðr- inu eru liðnir. Nú horfum við fram á öllu hefðbundnari maí- daga. Nú kólnar og sums staðar frystir yfir nóttina. Á laugar- dag lítur út fyrir rigningu sunnan- og suðaustan- lands, en bjart veður verður norð- antil á landinu og sæmilegur hiti að deginum. Á sunnudag og mánudag hallar hann sér yfir í NA- og N-átt með slydduéljum norðan- og norðaustantil, en þá léttir til sunnanlands og vestan. Lík- ast til gerir snjóföl á víða á fjallvegum norðaustantil á landinu. Ekki er annað að sjá í kortunum en að frekar svalt verði alveg fram í miðja næstu viku,“ segir Einar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.