Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Page 8
fimmtudagur 17. maí 20078 Helgarblað DV Ómar Ragnarsson, formaður Íslands- hreyfingarinnar, flaggaði þeirri hug- mynd á kosninganótt að þrátt fyrir að flokkur hans hefði hlotið lítið kjör- fylgi hefði samherjum hans tekist að gera alla íslensku stjórnmálaflokk- ana græna, eða umhverfisverndars- innaða. Ólafur segist hafa fylgst með áherslum stjórnmálaflokkanna fyrir kosningar með augum þess sem hef- ur áhuga á umhverfisvernd yfir höf- uð. „Það er nokkuð ljóst að allir flokk- ar gáfu sig út fyrir að vera grænir að einhverju leyti og ef til vill mætti segja að það hafi verið græn slikja á flestum flokkanna, en það er spurn- ing hversu djúpt þessi græni litur ristir,“ segir Ólafur Páll Jónsson, lekt- or í heimspeki við Kennaraháskóla Íslands. Ástæðuna fyrir efasemd- um sínum segir Ólafur Páll vera þá staðreynd að umhverfisvernd hefur ekki átt upp á pallborðið í íslensk- um stjórnmálum síðasta áratuginn eða svo. „Umhverfisvernd hefur um langan tíma verið einskorðuð við jaðarhópa. En fyrir nýafstaðnar þing- kosningar virðast umhverfissinnum hafa tekist að gera grænu málin að almennum málaflokki sem öllum komi við og má því segja að hér hafi orðið bylting í umræðum um þessi mál,“ segir Ólafur Páll. Til hvers að viðhalda fornbílum? „Náttúruvernd er annars vegar sú tilhneiging til að frysta náttúr- una í þeim tilgangi að halda henni óbreyttri til lengri tíma. Að því leyti svipar henni til þess að viðhalda fornbíl. Þar sem fornbílar eru ekki almennt friðaðir er ekkert sem stöðvar fólk í að láta þá grotna nið- ur, en samt virðist fólk hafa áhuga á því að gera slíka bíla upp og þar með viðhalda þeim til lengri tíma svo hægt sé að nota eða horfa á í upprunalegri mynd,“ segir Ólafur Páll og bendir á að þarna sé nýt- ingarhugmyndin lögð til grundvall- ar friðun. Þessa hugmynd má yfir- færa á Vatnajökulssvæðið, sem gæti orðið stærsti þjóðgarður í Evrópu. Vatnajökull sem slíkur er ekki mesta náttúruauðlind sem við eigum en það sem af honum leiðir, jökulsárn- ar, dalirnir, stöðuvötnin og fjöllin eru að margra mati ómetanleg. „Því skýtur það skökku við að Langisjór, sem aldrei hefði orðið til án Vatna- jökuls, er ekki friðaður. Ástæðan fyr- ir því gæti verið sá að möguleiki er að veita Skaftá í Langasjó og virkja hann síðan,“ segir Ólafur Páll. Slík hlunnindi myndu auka verðmæti Landsvirkjunar stórkostlega og því má spyrja sig hvort hugsanleg sala á fyrirtækinu sé ástæða þess að Lang- isjór verði ekki friðaður og sé heldur ekki á lista þeirra svæða sem hugs- anlega gætu orðið hluti Vatnajök- ulsþjóðgarðs. Þarna stangast á gam- aldags hagnýtingarsjónarmið og tilfinningarök og þeir sem valdið hafa leggja hagnýtingarsjónarmið til grundvallar friðun. Framkvæmdir þurfa enga réttlætingu Ólafi finnst það merkilegt hversu sterkt rök þarf til að vernda umhverf- ið en á móti hversu algengt það sé að ekki þurfi sérstök rök til að eyðleggja það. „Það er gamaldags hugsunar- háttur að líta á stjórnvöld sem ein- hvers konar framkvæmdavald sem eigi fyrst og fremst að keyra mál í gegn og framkvæma með efnahag þjóðarinnar að leiðarljósi.“ Ólafur Páll telur þetta ekki vera sérstaklega íslenskt fyrirbrigði en bendir þó á að við séum vön því að líta á náttúruna sem hráefni sem sé sjálfsagt að nýta. „Ein skýrasta birtingarmynd þessa sjónarmiðs er umræðan, eða kapp- ræðan, um malarnám í Ingólfsfjalli sem einkenndist af því hvort ætti að framkvæma eða ekki. Framkvæmdir þurftu enga sérstaka réttlætingu, en fyrir stöðvun framkvæmda þurfti aft- ur á móti sérstök rök því hún var ekki hagnýt. Þessi umræða er á villigötum því það er misskilningur að halda að stöðvun malarnáms sé ekki fram- kvæmd engu síður en malarnámið sjálft,“ segir Ólafur Páll. Aðspurður hvort réttast væri að vernda náttúr- una fyrir aðgerðum stjórnvalda með stjórnarskrárbreytingu segir Ólafur Páll að slík vernd ætti að einhverju leyti heima í stjórnarskránni með- al annars vegna þess að náttúran er sá höfuðstóll sem við skiljum eft- ir handa komandi kynslóðum og það ber að verja þann höfuðstól fyr- ir ágangi núverandi kynslóða, hvort heldur í stjórnarskrá eða almennum lögum. Kappræður nýtast ekki umhverfisvernd Heimspekingurinn Ólafur Páll tók fljótlega eftir því við endur- komuna til landsins að loknu námi árið 2001 að íslenskir stjórnmála- menn virðast ganga að því vísu að kappræður séu besta leiðin til að komast að vitrænni niðurstöðu. „Það er gegnumgangandi í fram- sögu stjórnmálamanna að þeir mæti í viðtöl, einir eða með öðr- um, með það eitt að leiðarljósi að verja sína afstöðu með kjafti og klóm,“ segir Ólafur Páll og bendir á að þegar kappræður fari fram sigri sá sem á síðasta orðið en málefnin sitja oft eftir órökrædd. Ólafur segir að eina leiðin til að komast upp úr kappræðupollinum sé að hefja rök- ræðuna upp á æðra plan. „Það sem stjórnmálamenn og ekki síst stjórn- arflokkarnir hafa verið að gera er að einskorða umræðuna við fáa sér- fræðinga sem margir hverjir leggja mikla áherslu á hagnýt rök. En í eðli sínu er rökræða byggð á þátt- töku fjöldans og krefst mikils sveigj- anleika sem stjórnvöld virðast síð- ur vilja binda sig við,“ segir Ólafur Páll og bendir á orðtak sem Geir H. Haarde notaði nýverið þegar hann var spurður hvort eins þingmanns meirihluti væri nægur til að mynda stjórn, en þá sagði forsætisráðherr- ann að það yrði erfitt að keyra mál í gegnum þingið. „Þessi tilhneiging til að keyra mál í gegn vinnur gegn rökræðunni og því á hún líklega ekki upp á pallborð stjórnvalda að sinni,“ segir Ólafur Páll. Við skuldum náttúrunni Ginnungagapið sem virðist skilja að tilfinningarök og hagnýtisrök virðist illbrúanlegt og hefur leitt til þess að stríðandi fylkingar virðast oft ekki tala sama tungumálið. Ólaf- ur Páll bendir á að mikilvægt sé að meta hversu mikið við skuldum nátt- úrunni fyrir hennar störf. „Við hleyp- um skólpi út í sjóinn sem hreinsar það fyrir okkur án endurgjalds. Slíka þjónustu er hægt að meta til fjár allt eins og hægt er að meta hversu mik- ið menn græða á því að moka sund- ur fjöll,“ bendir Ólafur Páll á. Nið- urstaða af viðlíka rannsókn birtist árið 1997 í hinu fræga vísindariti Nature þar sem reiknað var út verð- gildi þjónustu sem vistkerfi heimsins veita mannfólkinu og var niðurstað- an sú að við skuldum jörðinni meira en sem nemur allri heimsframleiðsl- unni á einu ári. Þetta er tilraun til að leggja kalt hagfræðilegt mat á gildi náttúrunnar. „Niðurstaðan er ekki nákvæm en hún segir okkur að verð- mæti náttúrunnar eins og hún er og burtséð frá því hvernig má nýta hana með hefðbundnum hætti er gífur- lega mikið,“ segir Ólafur Páll. Þjórsárver eru næst Þjórsárver eru bæði vernduð með íslenskum náttúruverndarlögum og alþjóðlegum náttúrverndarlögum þar sem svæðið hefur viðurkennt alþjóðlegt verndargildi og Ólafur Páll veltir því fyrir sér af hverju ver- ið sé að stefna að virkjun þess svæðis sem yrði auk þess orkuver af smærri gerðinni. „Þjórsárorkuver yrði hag- kvæmt með þeim rökum að einung- is yrði tekið tillit til væntanlegs hagn- aðar án þess að taka umhverfisspjöll með í reikninginn. Landsvirkjun hef- ur komist upp með slíka reikninga um árabil og líklega má rekja það til þess gamaldags hugsunarháttar að ríkisvaldið sé fyrst og fremst fram- kvæmdavald í umboði Íslendinga,“ bendir Ólafur Páll á. Íslendingar treysta bókum Erlendis er nokkuð algengt að stjórnmálamenn gefi út bækur fyrir kosningar til að vekja athygli á mál- stað sínum. Bók Andra Snæs Magna- sonar Draumalandið: Sjálfshjálp- arbók handa hræddri þjóð, vakti þjóðina til umhugsunar en þar bend- ir höfundur á almennar staðreyndir sem lesendur hefðu margir hverjir geta orðið sér út um á annan hátt auk þess sem algild sannindi voru sett í nýtt samhengi. Því er lag að spyrja Ólaf Pál hvort það hafi sérstakt gildi að ræða umhverfismál á prenti frek- ar en í ræðu. „Bækur eins og Náttúra, vald og verðmæti, hafa þann kost að þar hefur lesandinn hugmyndirnar í hendi sér og getur leitað til þeirra þegar honum hentar. Andri Snær reyndi í sinni bók að setja hversdags- lega hluti í samhengi og það kom mörgum lesandanum að óvörum. Aftur á móti er hægt að spyrja sig hvað sé hversdagslegra en náttúran. Hún er alls staðar í kringum okkur og hún er jafnvel svo hversdagsleg að margir taka ekki eftir henni. Við tök- um ekki eftir andrúmsloftinu fyrr en það er mengað,“ segir Ólafur Páll að lokum. Tilfinningarök má meTa Til fjár Ólafur Páll Jónsson, lektor í heimspeki við Kennaraháskóla Íslands, hefur gefið út bók sem nefnist Náttúra, vald og verðmæti, þar sem hann glímir við ýmsar grundvallarspurningar um samband manns og náttúru og meðferð valds í lýðræðissamfélagi. Í samtali við DV fer Ólafur Páll um víðan völl og gerir meðal annars grein fyrir hvað náttúruvernd er og hvernig umræða um hana hefur færst frá jaðri samfélagsins inn í hringiðu stjórnmálanna. blaðamaður skrifar: skorri@dv.is SKorri GÍSlaSon Ólafur Páll Jónsson, lektor í heimspeki við Kennaraháskóla Íslands „Við tökum ekki eftir andrúmsloftinu fyrr en það er orðið mengað.“ Herðubreið Verðhugmynd?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.