Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Page 58
Myndin Zodiac er byggð á sannsögulegum atburðum um alræmdan morðingja sem var
uppi á sjöunda áratugnum í San Francisco:
Myndin Zodiac sem er frumsýnd
um helgina fjallar um sannsögulega
atburði sem áttu sér stað í San Fran-
cisco og nágrenni á sjöunda áratugn-
um. Þá var uppi hinn alræmdi morð-
ingi The Zodiac sem gengur laus enn
þann dag í dag.
Morðinginn sem er aðeins þekkt-
ur sem The Zodiac réðst á sjö fórn-
arlömb sem vitað er um á tímabilinu
desember 1968 til október 1969. Hann
myrti fimm þessara fórnarlamba en
tvö þeirra lifðu árásina af. Þá voru þó
nokkur fórnalömb í viðbót sem líklegt
var talið að tengdust Zodiac-morð-
ingjanum þótt það hafi aldrei verið
staðfest. Þrátt fyrir þessa áætluðu tölu
lögreglunnar hélt Zodiac-morðing-
inn því fram að hann hefði myrt 37
manneskjur.
Zodiac-morðinginn var einna
þekktastur fyrir að senda bréf til San
Francisco Chronicle og annarra dag-
blaða. 1.ágúst 1969 sendi hann þrjú
bréf þar sem hann sagðist vera ger-
andinn í þremur morðmálum. Zod-
iac-morðinginn heimtaði að bréfin
yrðu birt á forsíðu blaðsins ella myndi
renna á hann morðæði sem hann
tæki út á íbúum San Francisco. Ekkert
varð úr hótununum en öll bréfin voru
birt á endanum.
Morðinginn tók það fram að bréfin
væru dulkóðuð og ef að kóðinn væri
leystur myndi hann finnast. Það tókst
hins vegar ekki og eru sum bréfanna
enn óráðin í dag. Í einu þeirra seg-
ir The Zodiac að hann elski að drepa
og að hann muni endurfæðast í para-
dís. Þar muni fórnarlömb hans vera
þrælar hans og að ástæðan fyrir því
að hann gefi ekki upp nafn sitt sé svo
að lögreglan tefji hann ekki í að safna
þrælum.
Myndin sem skartar Jake Gyllen-
haal í aðalhlutverki er byggð á tveim-
ur sannsögulegum bókum sem rithöf-
undurinn Robert Graysmith skrifaði
um Zodiac-morðingjann. Graysmith
sem er leikin af Gyllenhaal kynntist
málinu fyrst þegar hann vann sem
teiknimyndateiknari hjá dagblaðinu
San Francisco Chronicle. Graysmith
er talinn einn af helstu sérfræðingun-
um um Zodiac-morðin og var með-
al annars haft samband við hann í
kringum 1990 þegar eftirhermum-
orðingi eða svokallaður „copycat kill-
er“ var á stjái í New York.
Myndin hefur fengið frábæra
dóma um allan heim en aðsóknin
hefur ekki verið eftir því. Myndin þén-
aði til dæmis aðeins um 33 milljónir
dollara í Bandaríkjunum með áætl-
aðan framleiðslukostnað upp á um
60 milljónir dollara. asgeir@dv.is
Point Break 2
í vændum
Spennumyndin Point Break með
þeim Keanu Reeves og Patric Swayze í
aðalhlutverkum sló öll met árið 1991.
Nú hefur verið ákveðið að gera
framhaldsmynd og er það handrits-
höfundurinn Peter Liff sem á bæði að
skrifa myndina og leikstýra henni.
Point Break fjallaði um brimbretta-
gengi sem einnig rændi banka og
mun framhaldið rekja sögu Bodhis,
sem leikinn var af Patrick Swayze.
Myndin verður tekin upp í Indónesíu
og Singapore og kemur út á næsta ári.
Cameron
og Kutcher
Þau Cameron Diaz og Ashton Kutcher
eru um þessar mundir í viðræðum við
20th Century Fox um að leika í
myndinni What Happens in Vegas.
Það er rómantísk gamanmynd sem
fjallar um tvær manneskjur sem á
fylleríi í Las Vegas bæði giftast og
vinna fúlgur í fjárhættuspili. Þau deila
svo um hver er rétthafi vinningsins og
í leiðinni verða þau ástfangin. Það er
Dana Fox sem skrifar handritið og
leikstjóri er Julian Farino, sem
leikstýrt hefur meðal annars hinum
bandarísku Office-þáttum.
The PainTed Veil
naomi Watts leikur unga
enska konu sem þráir
rómantík og spennu en
er föst í ástlausu hjóna-
bandi með manni sem
edward norton leikur.
Þegar norton kemst á
snoðir um framhjáhald
eiginkonunnar neyðir
hann hana með sér í hættulega för.
iMdb: 7,7/100
Rottentomatoes.com: 75%/100
Metacritic: 69/100
Zodiac
Mynd byggð á bók
Roberts Graysmith um
morðingjann Zodiac sem
skelfdi íbúa San Francisco
í kringum 1960 og 70.
Jake Gyllenhaal, Robert
downey Jr, Brian cox og
Mark Ruffalo eru meðal
leikenda.
iMdb: 8,3/100
Rottentomatoes.com: 87%/100
Metacritic: 77/100
SeVeRance
Þegar fjölþjóða vopnasölu-
fyrirtæki sendir starfsfólk
sitt í einni deildinni í hvata-
ferð upp í fjöll fer allt
úrskeiðis. Þau verða fórnar-
lömb hóps brjálaðra morð-
inga sem láta ekkert stöðva
sig.
iMdb: 6,9/100
Rottentomatoes.com:
76%/100
Metacritic: 65/100
Frumsýningar helgarinnar
Morðinginn
enn ófundinn
Jake Gyllenhaal Leikur rithöfundinn sem skrifaði bækurnar um Zodiac-morðingjann.
Zodiac-morðinginn Er enn ófundinn og
ekki er vitað hvort hann sé lífs eða liðinn.