Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 35
DV Sport fimmtudagur 17. maí 2007 35
as Bjärsmyr og er jafngamall mér.
Hann er mjög góður leikmaður. Svo
er Hjálmar þarna í vinstri bakverð-
inum og sænskur leikmaður í hægri
bakverðinum,“ segir Ragnar.
Anfield er draumurinn
Ragnar á nítján leiki að baki fyr-
ir yngri landslið Íslands, þar á meðal
þrjá fyrir U21 landsliðið. Hann stefn-
ir að því að komast í A-landsliðið eins
og margir aðrir atvinnumenn. „Mað-
ur vill náttúrulega alltaf spila fyrir
landsliðið og þá er draumurinn að
spila í ensku deildinni,“ segir Ragnar
en hans lið á Englandi er Liverpool og
má segja að æðsti draumur hans sé að
spila á Anfield.
Eins og áður sagði kemur Ragn-
ar úr röðum Fylkis en þar er hann
uppalinn. Hann fylgist vel með gangi
mála hjá uppeldisfélagi sínu. „Ég var
einmitt að uppgötva það að ég fylgist
betur með íslenska boltanum núna
en þegar ég var sjálfur að spila í hon-
um. Ég hef mikið verið að fylgjast með
á netinu gegnum heimasíðu KSÍ og
fótbolta.net. „Svo hringdi pabbi í mig
eftir leikinn og sagði að Fylkir hefði
verið að spila alveg skelfilegan bolta.
En sigur vannst og það er það sem
mestu máli skiptir.“
Spilamennska IFK Gautaborgar er
öðruvísi í ár en hún hefur verið. „Und-
anfarin ár hefur liðið víst verið að
spila nokkurs konar „kick-and-run“
fótbolta og verið mjög varnarsinn-
að. Nú eru hins vegar komnir þjálfar-
ar sem vilja láta það spila alvöru fót-
bolta og við erum mikið á æfingum
að halda bolta innan liðs. Þetta er allt í
áttina og í síðasta leik stjórnuðum við
leiknum allan tímann. Gamla taktík-
in er ennþá svolítið föst í sumum leik-
mönnum en þetta er allt að koma,“
segir Ragnar.
Íslenskir fótboltamenn eru komnir
á kortið í Svíþjóð og segir Ragnar það
ekki leyna sér. „Það er vel tekið eftir Ís-
lendingum hérna. Ég hef spjallað við
þónokkra fótboltaáhugamenn hérna
sem tala allir um það að Íslendingum
í sænsku deildinni fjölgi. Það er því
alveg greinilegt að Ísland er komið á
kortið hérna hvað varðar fótboltann.“
Ragnar er ungur að árum og segir
að sænski boltinn henti mjög vel fyr-
ir unga íslenska leikmenn. „Það tek-
ur ekki langan tíma fyrir íslenska leik-
menn að aðlagast sænska boltanum.
Eyjó hefur til dæmis verið meiddur en
kom síðan inn sem varamaður í síð-
asta leik hjá GAIS. Hann var ekki lengi
að finna taktinn og spilaði mjög vel,
það hefur verið talað um það,“ segir
Ragnar.
Þrátt fyrir að vera í skýjunum með
dvöl sína í Gautaborg stefnir hugur
Ragnars enn hærra. „Auðvitað vill
maður komast enn lengra. En það er
ljóst að það mun ekkert gerast nema
ég standi mig mjög vel hérna og ein-
beiti mér að því verkefni. Ég er að
gera mitt besta, legg mig allan fram
og svo vonandi í framtíðinni gerist
eitthvað annað. Maður þarf að taka
þessi litlu skref,“ segir Ragnar Sig-
urðsson. elvargeir@dv.is
Fylgist núna betur með boltanum heima
England er draumurinn
draumur ragnars er að spila einn daginn
í ensku úrvalsdeildinni
Líkar vel við lífið í Gautaborg
ragnar er mjög ánægður í Svíþjóð og segist ástfanginn af gautaborg.