Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 18
Hlustandi hringdi í Sigurð G. Tómasson á Útvarpi Sögu síðastliðinn þriðjudag. Hann kvaðst hafa geng� ið úr Framsóknarflokknum þegar Halldór Ásgríms� son, þá nýkjörinn formaður flokksins, boðaði stefnu sem hlustandinn staðsetti hægra megin við Sjálf� stæðisflokkinn. Formaðurinn hefði boðað fráhvarf frá samvinnuhugsjónum og félagshyggju. Ef rétt er skilið var þetta árið 1994 en það ár tók Halldór við formennsku í Framsóknarflokknum. Nýi formaðurinn vann ágætan sigur í þingkosn� ingunum 1995. Framsóknarflokkurinn hlaut 23,3 prósent atkvæða og 15 þingmenn kjörna. Síðan hef� ur leiðin legið niður á við og er kjörfylgi flokksins ná� kvæmlega helmingi minna nú en þegar flokkurinn hóf 12 ára stjórnarsetu með Sjálfstæðisflokknum. Bjórfylgi í þéttbýli Andstreymi á valdastóli með Sjálfstæðisflokkn� um varð til þess að Halldór Ásgrímsson dró sig í hlé í fyrra. Hann vissi að honum hafði mistekist að finna fótfestu fyrir Framsóknarflokkinn í þéttbýlinu. Jón Sigurðsson, eftirmaður hans, gat þar litlu um breytt. Samanlagt hlaut Fram� sóknarflokkurinn 4.266 atkvæði í Reykjavík í ný� afstöðnum þingkosningum. Flokkurinn á ekki þing� mann í höfuðborginni og stendur tæpt í Kraganum, fjölmennasta kjördæminu, með 7,2 prósenta fylgi. Flokknum er mikill vandi á höndum. �að skynj� ar Valgerður Sverrisdóttir mjög vel. Fyrir kosningar lagðist hún gegn áframhaldandi stjórnarsetu ef kjós� endur höfnuðu flokknum með afgerandi hætti. Sú varð raunin og undir orð hennar hafa tek� ið hugsandi framsóknarmenn eins og Einar Svein� björnsson. „Allar hugmyndir þess efnis að Fram� sóknarflokkurinn haldi áfram ríkisstjórnarþátttöku eru fráleitar. Að sama skapi er tal um annars konar stjórnarþátttöku út í hött,“ skrifar Einar í Morgun� blaðið síðastliðinn þriðjudag og bætir við: „Í mín� um huga væri framhald núverandi stjórnarsamstarfs vanhugsað feigðarflan fyrir Framsóknarflokkinn. �að fer ekkert á milli mála að fjölmargir framsóknar� menn úr grasrótinni eru á þessari sömu skoðun.“ Róttæk frjálshyggja Hvað sem öllum fagurgala í stefnuskrám og flokkssamþykktum líður hefur raunin verið sú að Framsóknarflokkurinn hefur á tólf ára stjórnarferli tekið lit af Sjálfstæðisflokknum og er í rauninni gegn� sýrður af honum. �annig var holur hljómur í yfirlýs� ingum Halldórs í fyrra þegar hann sté af valdastóli. Hann auðkenndi stefnu stjórnarflokkanna sem vel� ferðarstjórnmál. Í fræðibókum framtíðarinnar verður hins vegar stjórnarseta Framsóknarflokksins með Sjálfstæð� isflokknum í tólf ár gerð upp sem róttækasta, um� fangsmesta og best heppnaða frjálshyggjutilraun sem gerð hefur verið í veröldinni á síðari tímum. Orðalagið er fengið úr grein Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar sem hann ritaði í Wall Street Journal í janúar 2004. Hannes Hólmsteinn hefur nefnilega rétt fyr� ir sér. �að sést til dæmis best á skattastefnunni gagnvart hinum ríkustu og tilraunum til að koma sameiginlegum auðlindum í einkaeign. Margir eru fylgjandi frjálshyggjunni og ekkert nema gott um það að segja. En menn eiga að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir. Líka framsóknarmenn. Hafi þeir í rauninni verið leiðitamir taglhnýtingar frjálshyggjunnar undanfarin ár ættu þeir að við� urkenna það og leiðrétta stefnu sína á meðvitað� an hátt. �eim er jafn hollt og okkur hinum að hafa hug� fast það sem John Maynard Keynes, einn frægasti hagfræðingur síðustu aldar, sagði eitt sinn: „Hug� myndir hagfræðinga og stjórnmálaspekinga eru yfirleitt áhrifameiri en fólk gerir sér grein fyrir og má þá einu gilda hvort þeir hafa á réttu eða röngu að standa. Menn sem telja sig hafa góðar varnir gegn hvers kyns áhrifavaldi og hafa báða fætur á jörðinni, eru iðulega þrælar einhvers aflóga hag� fræðings.“ Fljóta að feigðarósi Í stuttu máli hefur miðja stjórnmálanna, sem Jón Sigurðsson vill fyrir alla muni verja gegn eftir� líkingum, færst til hægri. �að fellur vel saman við þá skoðun Hannesar Hólmsteins að megindrætt� ir frjálshyggjunnar hafi náð sterkri fótfestu hér á landi og fært allar viðmiðanir til hægri. Árum saman hafa því framsóknarmenn verið lítt meðvitaðir um að þeir hafa verið nytsamir sak� leysingjar í höndum Sjálfstæðisflokksins og fylgt í aðalatriðum frjálshyggjufræðum Miltons Fried� man og Friedrichs Hayek. Enn skal tekið fram að sú stefna á fullan rétt á sér, en hún er áreiðanlega ekki inntakið í 90 ára hefðum Framsóknarflokks� ins. Hægristefnan sem Halldór Ásgrímsson boðaði að mati hlustandans, sem getið er um hér í upp� hafi, tók á sig annan búning í samstarfinu við Sjálf� stæðisflokkinn en framsóknarmenn upp til hópa gátu þolað. Stríðið fram undan varð því ægilegra en Halldór gat þolað. �ví hvarf hann á braut. Er auðnin í þéttbýlinu ekki næg ástæða fyrir framsóknarmenn að hugsa sinn gang utan stjórn� ar næstu fjögur árin? fimmtudagur 17. maí 200718 Umræða DV Kosningarnar voru ekki síst merkilegar fyrir þær sakir að þeir sem mestu réðu, og réðu oftast öllu, eru farnir og eiga ekki lengur beina aðild að stjórn lands og þjóðar. Í lok stjórnartíma Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgríms� sonar bar mikið á óvild og átökum milli manna og hópa. �eir Íslendingar sem ekki kyngdu öllu sem gert var og sagt var, fengu oft að finna fyrir því með einhverjum hætti. Einna grófust var aðförin sem reynd var gegn þeim fjölmiðlum sem voru ráðamönnunum tveimur ekki að skapi. Ofsinn sem var ráðandi lék marga illa, sennilega þegar upp er staðið þáverandi formenn stjórnarflokkanna verst. �eir eiga það sameiginlegt að hafa hrakist úr stjórnmálum. Halldór fór frá Framsóknarflokknum í afleitri stöðu, flokkurinn var í frjálsu falli og brotthvarf Halldórs var eflaust með allt öðrum hætti en hann hefði kosið. Af� leiðingar síðustu ára Halldórs í stjórn� málum sköðuðu ekki bara hann. �ær sköðuðu flokkinn og flokksmenn. Af� neitunin er samt til staðar og nýkjör� inn alþingismaður fyrir Framsókn, Höskuldur �ór �órhallsson, segir Hall� dór hafa verið góðan formann og það sem afvega hefur farið hjá honum og Framsóknarflokknum sé vegna ósann� gjarnra árása. Meðan þetta viðhorf er uppi er ekki bjart framundan hjá Framsókn. Davíð Oddsson hraktist burt og kom sér fyrir í Seðlabankanum. Starfslok hans voru í skugga afleitra kosninga 2003, hrakfara í árásum gegn frjálsum fjölmiðlum og sífellt minna persónufylgis. Davíð og Halldór hefðu senni� lega báðir betur hætt fyrir kosningarnar 2003. �eir stóðu of lengi á sviðinu, flestir höfðu fengið nóg og það pirraði þá báða. Nú þegar þeir eru hættir er trúlegast að ekki verði eins mikil heift milli þess fólks sem hefur ólíkar lífsskoðanir og metur menn og málefni með ólíkum hætti. Núverandi leiðtogar í stjórnmálum hafa mikla möguleika til að róa samfélagið og þeir verða að þola umræðu sem ekki er þeim alltaf að skapi. Aðhald og gagnrýni fjölmiðla eru ekki árásir. �að er búið að láta sem svo sé í svo langan tíma að rétt er að linni. �eir sem þannig brugðust við eru farnir af sviðinu og vonandi verður sá ósiður ekki tekinn upp af öðrum. �að er ekki laust við að vondar minningar streymi um hugann þegar óstaðfestar fréttir af aðkomu þeirra innmúruðu og innvígðu að stjórnar� myndun í landinu berast milli manna. �að er vonandi rangt, það má aldrei aftur verða. Sá tími verður að heyra sögunni til. Aðrir stjórnmálaforingjar hafa tækifæri til að koma jafnt fram við öll okkar, sama hvaða skoðanir hvert og eitt okkar hefur. Sigurjón M. Egilsson Kaflaskil Fórnarlamb frjálshyggjunnar Kjallari Það er ekki laust við að vondar minnin�ar streymi um hu�ann þe�ar óstaðfestar fréttir af aðkomu þeirra inn- múruðu o� innví�ðu að stjórnarmyndun í land- inu berast milli manna. „Hvað sem öllum fa�ur�ala í stefnuskrám o� flokkssamþykktum líður hefur raunin verið sú að Framsóknarflokk- urinn hefur á tólf ára stjórn- arferli tekið lit af Sjálfstæð- isflokknum o� er í rauninni �e�nsýrður af honum.“ Jóhann hauksson útvarpsmaður skrifar ÚtgáFuFélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. StjórnarFormaður: Hreinn loftsson FramKVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal ritStjóri og áByrgðarmaður: Sigurjón m. Egilsson FulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. FréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson aðStoðarritjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir auglýSingaStjóri: auður Húnfjörð Útvatnaður saltfiskur án beina til að sjóða Sérútvatn. saltfiskur án beina til að steikja Saltfisksteikur (Lomos) fyrir veitingahús Dugguvogi 12 - 104 Reykjavík - S: 517 7040 - www.hobbyhusid.is Opnunartími: mán-föst 10.00-18.00, laugard 13.00-17.00, sunnud 13.00-16.00 Mikið úRval af hjólhýSuM verð frá 1.690.000 og húsbílar verð frá 4.990.000 Skoðaðu úrvalið hjá okkur. Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.