Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 30
Föstudagur 27. apríl 200738 Helgarblað DV Bikarúrslitaleikurinn á laugar- dag verður fyrsti alvöruleikurinn á nýjum og glæsilegum Wembley-leik- vangi. Þetta gæti orðið síðasti leikur Chel- sea undir stjórn Joses Mourinho en þeir blá- klæddu hafa nú verið þekktir fyrir það í gegnum tíðina að láta stjóra sína taka pokann þegar enginn á von á því. Gianluca Vialli, Ruud Gullit og fleiri hafa farið frá félaginu á furðulegum tímum. Nánast allt tímabilið hefur verið rætt um að sam- band þeirra Mourinhos og eiganda Chelsea Rom- ans Abramovich sé orðið stirt og því ætti ekki að koma mörgum á óvart, tapi Chelsea, að Portúgal- inn verði látinn taka pokann sinn. Það yrði slæmt fyrir fótboltann á Englandi því þótt Mourinho sé umdeildur maður verður það ekki frá honum tek- ið að hann er einn litríkasti karakterinn í deild- inni. John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur fulla trú á sín- um mönnum. Eftir að hafa tapað Englandsmeist- aratitlinum til Manchester United segir Terry að lið sitt muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að United lyfti bikarnum á laugardag. „Þetta verður frábær leikur og við hlökkum öll til hans. Það er ekki nokkur spurning að þessi bikar skiptir okkur miklu máli, aðdáendur Chelsea og klúbbinn sjálfan.“ Jose Mourinho hefur ýjað að því að hann hafi aðeins 15 leik- menn heila fyrir leikinn en Terry býst þó við að stjórinn hans hafi úr fleiri leikmönnum að velja þegar stóra stund- in rennur upp. „Það er vesen eins og er en ég er viss um að strákarnir sem eru fyrir utan núna munu hrista af sér slenið og verða tilbúnir í slaginn á laugardag,“ sagði harðjaxlinn Terry. Mourinho hefur sagt að hann gæti jafnvel notað vara- markvörðinn Hilario sem framherja í úrslitaleiknum. Andrei Shevchenko, Michael Ballack, Ricardo Carval- ho, Arjen Robben og John Obi Mikel eru allir frá og þá er spurning hvort Ashley Cole verði orðinn klár. „Ef Ashley verður klár í slaginn verðum við með 15 leikfæra leikmenn. Það gæti farið svo að ég þyrfti að nota Hilario á bekkinn, hann er ekki slæmur framherji, eða ég mun þurfa að setja einn af unglingunum inn til að ná í 16 leikmenn.“ Mourinho hefur alltaf sagt að hann vilji aðeins 24 manna hóp frá því að hann tók við sem stjóri Chelsea. Það kemur því svolítið á óvart hvað hann er búinn að væla mikið út af meiðslum. Hann ákvað að vera með lítinn hóp og vissi að svona gæti farið. Neville meiddur Það eru einnig meiðsli í herbúðum Manchester Unit- ed. Luis Saha og Gary Neville fyrirliði þeirra munu missa af leiknum. Neville hafði gert sér vonir um að vera orð- inn heill heilsu fyrir leikinn og leiða liðið inn á nýjan Wembley en þess í stað verður Ryan Giggs væntan- lega fyrirliði. Alex Ferguson stjóri Manchester hef- ur sagt að vonandi verði Manchest- er United aftur það veldi sem það eitt sinn var. Hann trúir því að lið sitt geti aðeins orðið betra og hefur sett pressu á liðið að ná langt í Evrópu. „Þegar við unnum árið 1993 opnuðust margar dyr fyrir okk- ur. Við unnum tvennuna, bæði deild og bikar, árið eftir og það er ekki nokk- ur spurning að þessir leikmenn geta afrek- að margt í framtíðinni. Þeir vita um hvað þetta snýst. Þeir hafa sýnt að taugarnar eru í lagi og ég er viss um að liðið á bara eftir að verða betra. Ég get varla beðið eftir næsta ári. Ég hlakka til að sjá liðið vaxa og dafna og gera góða hluti í Evrvópu auk þess að vinna deildina heima fyrir.“ Ferguson hefur fengið vilyrði frá stjórn United að hann fái nýja leikmenn til liðsins. Þetta staðfesti David Gill stjórnarmaður Manchester United í viðtali við útvarpsstöð liðsins. „Það er ekki hægt að taka árangnum sem náðist sem sjálfsögðum hlut og að liðið haldi áfram á sömu braut. Það verður alltaf að reyna að bæta sig og fjárfesta og það er það sem við ætlum að gera. Við erum með gott lið í höndunum og munum styrkja það hér og þar. Manchester United hef- ur verið og mun verða félag sem gefur ungum leikmönn- um tækifæri auk þess að kaupa gæðaleikmenn. Það er það sem við munum sjá í framtíðinni,“ sagði Gill. SÍÐASTI LEIKUR Það ríkir mikil eftirvænting fyrir bikarúrslitaleikinn á Englandi þar sem tvö bestu lið landsins leiða saman hesta sína. Nýkrýndir Englandsmeistarar í Manchester United taka á móti Chelsea. Loksins, loksins verður spilað á nýjum og glæsilegum Wembley. MOURINHOS? © GRAPHIC NEWS F.A. bikarinn snýr aftur á Wembley CHELSEA Nýr Wembley Kostnaður við Wembley samtals 760 milljónir punda Færanlegt þak sem lokast á 15 mínútum til að halda áhorfendum þurrum en sólin skín á völlinn sjálfan Skálin: Tekur 90 þúsund manns í sæti þar sem sami hljómburður og á gamla Wembley MANCHESTER UNITED Þjálfari: Jose Mourinho fyrirliði: John Terry Unnið bikarinn þrisvar sinnum 1970, 97, 2000 Unnið bikarinn11 sinnum 1909, 48, 63, 77, 83, 85, 90, 94, 96, 99, 2004Leiðin í úrslitin Þriðja umferð Maccleseld (h) 6-1 Fjórða umferð Nottingham Forest (h) 3-0 Þriðja umferð Aston Villa (h) 2-1 Fjórða umferð Portsmouth (h) 2-1 Undanúrslit Blackburn 2-1 Undanúrslit Watford 4-1 Fimmta umferð Norwich (h) 4-0 Fimmta umferð Reading (ú) Reading (h) 1-1 2-3Sjötta umferð Tottenham (h) Tottenham (ú) 3-3 2-1 Sjötta umferð Middlesbrough (h) 1-0Líkleg byrjunarlið Dóamri: Steve Bennett Aðstoðardómarar: Peter Kirkup, Dave Bryan. Fjórði dómari: Howard Webb Burðar virkið 1750 tonn 315 metra langt Styður norður þakið færanlegt þak og 60% af þyngd suður þaksins Gerir það að verkum að aldrei er skyggt á útsýni 7.4m í þvermál Búið til úr sterku stáli Boginn: 133 metra hár 52 metrum fyrir ofan völlinn sjálfan. Norður þakið Suður þakið Völlurinn: Fjórum metrum neðar en gamli völlurinn en jafn stór. 105 metra langur 68 metra breiður Völlurinn Fráfall: Getur tekið allt að 227 þúsund lítrum á klukkustund Undirlag: Þræðir settir í grasið til að koma í veg fyrir rótarslit Loftæði: Heitu lofti er dælt inn til að koma í veg fyrir frostbit Þjálfari: Sir Alex Ferguson Fyrirliði: Ryan Giggs Cech van der Saar Terry Boulahrouz Ferreira A. Cole J. Cole Ronaldo Smith Carrick Scholes Rooney Giggs Drogba Makalele Essien Lampard Robben Ferdinand Brown Vidic Heinze Varamenn: Cudicini Bridge Mikel Diarra Geremi Kalou Wright-Phillips Varamenn: Kuszczak Eagles O’Shea Richardson Fletcher Solskjær Dong Gras frá Suður Frakklandi Hart barist didier drogba og rio Ferdinand að berjast um boltann. Dómarinn steve Bennet kemur til með að dæma leikinn. Kröftugur skalli Wayne rooney er kröftugur leikmaður. Forvitnileg barátta Michael Carrick og Frank lampard eru báðir frábærir leikmenn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.