Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Síða 41
Starfsferill Ellert fæddist í Reykjavík 10. 10. 1939. Hann lauk stúdentsprófi frá VÍ 1959, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1966 og öðlaðist héraðsdómslög- mannsréttindi 1966. Ellert var blaðamaður hjá Vísi og jafnframt starfsmaður við heildversl- un föður síns 1961-64, fulltrúi á málflutningsskrifstofu Eyjólfs K. Jónssonar og fleiri1965 og 1966, skrifstofustjóri borgarverk- fræðingsins í Reykjavík 1966-71, al- þingismaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 1971-79 og 1983-87, rit- stjóri Vísis 1980-81, ritstjóri DV 1982- 1995, formaður KSÍ 1973-89, varafor- seti ÍSÍ 1990-91, forseti ÍSÍ 1991-97 og forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands 1997-2006. Hann sat í stjórn Íslenskrar Getspár 2003 til 2007, þar af sem formaður síðustu tvö árin. Ellert var ritstjóri KR-blaðsins 1960-69, ritstjóri Úlfljóts, tímarits laganema og jafnframt varaformað- ur Orators 1963-64 og ritstjóri bókar í tilefni aldarafmælis KR 1999. Hann var formaður Stúdenta- ráðs HÍ 1964-65, formaður SUS 1969-73, formaður fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík 1977- 80, sat í miðstjórn Sjálfstæðisflokks- ins 1969-73 og 1978-81, átti sæti í Rannsóknaráði ríkisins 1971-80 og sat í framkvæmdanefnd þess 1971- 78, var fulltrúi Alþingis á allsherj- arþingi Sameinuðu þjóðanna 1972, sat á þingi Alþjóðaþingmannasam- takanna 1971 og 1976-79, og var for- maður íslensku sendinefndarinnar frá 1976, var fulltrúi Íslands á fundi þingmannanefndar EFTA 1983, sat í Útvarpsráði 1975-83 og var varafor- maður þess 1975-79 og var stjórnar- maður í Knattspyrnusambandi Evr- ópu (UEFA) 1982-86 og 1990-94. Bækur eftir Ellert eru Eins og fólk er flest, greinasafn 1991, og Á und- an sinni samtíð, 2006. Þá hefur hann skrifað fjölmargar greinar í blöð og tímarit. Ellert æfði og keppti í knatt- spyrnu með KR í öllum aldursflokk- um og lék með meistaraflokki KR um árabil. Hann var Íslandsmeistari með meistaraflokki KR í knattspyrnu 1959, 1961, 1963, 1965 og 1968. Hann varð bikarmeistari 1960, 1961, 1962, 1963, 1964, 1966 og 1967. Hann er markahæsti KR-ingur frá stofnun fé- lagsins. Þá lék hann tuttugu og þrjá landsleiki í knattspyrnu á árunum 1959-70. Ellert hefur verið sæmdur gull- merki KR, heiðurskrossi ÍSÍ, heið- urskrossi KSÍ, Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 2001 og er heið- ursformaður KSÍ sem og heiðursfor- seti ÍSÍ. Fjölskylda Eiginkona Ellerts er Ágústa Jó- hannsdóttir, f. 25. 10. 1957, fram- haldsskólakennari, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur. Hún er dótt- ir Jóhanns Pálssonar, f. 28. 11. 1920, verkamanns, og Huldu Sigurbjörns- dóttur, f. 1. 10. 1917, d. 26. 4 .2003, húsmóður. Börn Ellerts og fyrri konu hans, Önnu Guðlaugar Ásgeirsdóttur, eru Ásdís Björg, f. 30. 5. 1963, kennari og flugfreyja, en maður hennar var Árni Snævarr en þau skildu og eiga þau tvö börn; Arna, f. 15.3. 1968, félags- fræðingur, blaðamaður og formaður BÍ, en maður hennar var Ketill Magn- ússon og eiga þau eina dóttur; Aldís Brynja, f. 5. 5. 1969, leiðsögumaður; Höskuldur Kári, f. 21. 2. 1972, BA í bókmenntum en sambýliskona hans er Sigríður Guðmundsdóttir Sonur Ellerts og Ásdísar Þórðar- dóttur, er Arnar Þór Jónsson, f. 2.5. 1971, lögfræðingur en kona hans er Hrafnhildur Sigurðardóttir og eiga þau þrjú börn. Börn Ellerts og Ágústu eru Eva Þorbjörg, f. 23. 3. 1990, menntaskóla- nemi; Ellert Björgvin, f. 5. 12. 1991, grunnskólanemi. Systkini Ellerts: Bryndís, f. 9. 7. 1938, fyrrverandi sendiherrafrú, dagskrárgerðarmaður og skólastjóri; Margrét, f. 18. 1. 1943, sjúkraliði; Björgvin, f. 6. 6. 1945, kerfisfræðing- ur; Magdalena, f. 11. 8. 1948, d. 10. 7. 1993, heimspekingur og blaðakona; Ólafur Magnús, f. 25. 5. 1950, fram- kvæmdastjóri; Anna Helga, f. 25. 9. 1957, húsmóðir. Foreldrar Ellerts voru Björgvin Ellertsson Schram, f. 3. 10. 1912, d. 24. 3. 2001, stórkaupmaður og forseti KSÍ, og kona hans, Aldís Þorbjörg Brynjólfsdóttir Schram, f. 23. 3. 1918, d. 5. 5. 1991, húsmóðir. Ætt Björgvin var sonur Ellerts Schram, skipstjóra í Reykjavík Kristjánsson- ar Schram, bónda og timbursmiðs í Innri-Njarðvík Ellertssonar Schram, formanns í Vestmannaeyjum Christi- anssonar Schram, kaupmanns á Skagaströnd, ættföður Schramætt- arinnar á Íslandi. Móðir Björgvins var Magdalena Árnadóttir, fræði- manns í Reykjavík Hannessonar, lyfjafræðings í Syðri-Görðum Árna- sonar, prests á Hálsi í Hamarsfirði Skaftasonar. Móðir Árna var Guðríð- ur, systir Ragnheiðar, ömmu Jóhanns Gunnars Sigurðssonar skálds. Guð- ríður var dóttir Árna, skálds á Borg í Miklaholtshreppi Jónssonar og Guð- ríðar Káradóttur, bónda í Munaðar- nesi Ólafssonar, bróður Þorbjarnar afa Ólafs, langafa Bjarna Benedikts- sonar forsætisráðherra, föður Björns dómsmálaráðherra. Móðir Magda- lenu var Margrét Gestsdóttir, bóndi á Innra-Hólmi Jónssonar og Helgu Halldórsdóttur, prófasts á Melstað Ámundasonar, smiðs og málara í Syðri-Langholti og vefara í Innrétt- ingunum í Reykjavík Jónssonar, föð- ur Guðrúnar, langömmu Jóhanns, afa Jóhanns Hjartarsonar stórmeist- ara. Aldís var dóttir Brynjólfs, bónda og síðar sjómanns í Reykjavík Jóns- sonar, bónda í Klauf í Landeyjum Brynjólfssonar, bónda á Fornu- Söndum undir Eyjafjöllum, bróður Hlaðgerðar, langömmu Guðrúnar, móður Ragnars Arnalds. Brynjólfur var sonur Þórðar, bónda í Hvammi undir Eyjafjöllum Þorlákssonar, klausturhaldara í Teigi í Fljótshlíð Þórðarsonar Thorlaciusar, klaustur- haldara í Teigi Brynjólfssonar Thorl- aciusar, sýslumanns á Hlíðarenda í Fljótshlíð Þórðarsonar, biskups í Skálholti Þorlákssonar, biskups á Hólum Skúlasonar. Móðir Þorláks var Steinunn Guðbrandsdóttir, bisk- ups á Hólum Þorlákssonar. Móð- ir Brynjólfs Jónssonar var Þorbjörg Nikulásdóttir, systir Jóns, langafa Magnúsar L. Sveinssonar, fyrrver- andi formanns VR. Móðir Aldísar var Margrét Magnúsdóttir, bónda á Litlalandi í Ölfusi, langafa Magn- úsar H. Magnússonar, bæjarstjóra og ráðherra, föður Páls útvarps- stjóra. Magnús var bróðir Guðrúnar, langömmu Kristjönu, móður Garð- ars Cortes óperusöngvara, föður Garðars Thors Cortes óperusöngv- ara. Magnús var sonur Magnúsar, bónda á Hrauni í Ölfusi, bróður Jór- unnar, langömmu Salvarar, móð- ur Hannesar Hólmsteins Gissurar- sonar prófessors. Jórunn var einnig langamma Steindórs bílakóngs, afa Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Magnús var sonur Magnúsar, bónda í Þorlákshöfn Beinteinssonar, lrm. á Breiðabólstað í Ölfusi, Ingimund- arsonar, bónda í Hólum Bergsson- ar, ættföður Bergsættarinnar, Stur- laugssonar. DV Ættfræði fimmtudagur 17. maí 2007 41 MAÐUR VIKUNNAR Ættfræðisetur Íslands: Lagt á ráðin Oddur Friðrik Helgason ættfræð- ingur, sem komið hefur upp og starf- rækt hið feikilega viðamikla og sívax- andi ættfræði- og þjóðfræðisafn ORG, hefur ásamt ýmsum félögum sínum og velunnurum safnsins, verið að leggja á ráðin með stofnun samtaka sögu-, fræða- og átthagafélaga víðs vegar um landið. Tilgangurinn með slíkum sam- tökum yrði sá að auka samvinnu og upplýsingaflæði milli þeirra aðila sem vinna að söfnun og varðveislu upplýs- inga um ættfræði og þjóðfræði. Þá hafa Oddur og ýmsir félagar hans verið að leggja á ráðin um fyrir- hugað Ættfræðisetur Íslands. Slík stofnun hefði að þeirra sögn það meginmarkmið að vera vett- vangur rannsókna á ættfræði Íslend- inga og annast miðlun á ættfræð- iupplýsingum til áhugafólks á því sviði. Auk þess sjá þeir fyrir sér að slík stofnun gæti aflað ættfræðiupp- lýsinga um afkomendur Íslendinga í öðrum ríkjum og um áa fólks af er- lendu bergi brotnu sem sest hefur að á Íslandi. Þá þykir sjálfsagt að slík stofnun skipuleggi námskeið og fyr- irlestrahald á sviði ættfræði. Stofnuninni er ætlað að vera sjálfseignarstofnun og starfa sam- kvæmt lögum nr. 33 19. mars 1999 um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur. Oddur segir þessar hugmynd- ir hafa verið kynntar ýmsum ráða- mönnum og fengið þar góðar undir- tektir. Oddur Helgason ættfræðingur Hefur safnað í og starfrækt stærsta ætt- fræðigrunn landsins þegar íslendingabók er undanskilin. Ellert B. Schram er kominn á þing í þriðja sinn. Hann varð fyrst alþingismaður 1971, þrjátíu og eins árs að aldri, þá formaður SUS. Hann hafði þá farið fyrir ungum sjálfstæðis- mönnum sem beittu sér mjög fyrir prófkjörum, tók sjálfur þátt í fyrsta prófkjöri flokksins og náði góðum árangri á sama tíma og þrír sitjandi þingmenn hurfu af listanum. Ellert vann einnig góðan próf- kjörssigur 1979 en gaf þá eftir sæti sitt til Péturs sjómanns Sigurðssonar. Enn vann Ellert prjófkjörssigur 1983 og var þingmaður næstu fjögur árin. Þá hætti hann á þingi enda annar ritstjóri DV sem var frjálst og óháð blað. Hann gekk síðar til liðs við Samfylkinguna og er nú þingmaður hennar. Fyrir þrjátíu og sex árum var Ellert yngsti alþingismaður- inn. Nú er hann hins vegar elsti þingmaðurinn. Ellert B. Schram alþingismaður HPI Savage X 4,1 RTR Fjarstýrður bensín-torfærutrukkur Nú á lækkuðu verði 48.900,- Tómstundahúsið Nethyl 2 Sími 5870600 www.tomstundahusid.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.