Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Síða 44
Kim Crawford Sauvignon blanc 2005
Þegar Erica Crawford varð ólétt fyrir rúmum áratug ákvað hún að stofna vínfyrirtæki með manni sínum
Kim. Hann sér um víngerðina, hún um markaðsmálin og fyrirtækið er nú orðið eitt það stærsta á Nýja-
Sjálandi. Þau voru til að mynda fyrst til að innleiða skrúftappa þar í landi. Af þessu víni er ótrúlega
mikil og góð angan af hitabeltisgróðri. Einnig má greina rúsínur eða sólber. Framandi hitabeltisávextir
í munni. Mangó, fíkjur, græn epli og mandarínur komu upp í hugann. Einstaklega gott vín á afar
hagstæðu verði. 1.390 krónur. Flöskunum hefur verið að fækka að undanförnu og eru jafnvel uppurnar
á sumum útsölustöðum. Ég vona að það þýði að 2006 árgangurinn sé á leið til landsins. 1.390 krónur.
FiMMtudAgur 17. MAí 200744 Helgarblað DV
Ferskju- og
jarðarberjaterta
Má EKKi FryStA
1 tilbúinn tertubotn
1 poki vanillusósuduft
1 dós ferskjur (um 350 g)
um 350 g fersk jarðarber
1 pakki hlaup með jarðarberjabragði
um 25 g möndluflögur
Lagið vanillukrem eftir leiðbeiningum á
pakka og kælið. Sigtið ferskjur og
geymið safann. Jafnið kreminu yfir
botninn og raðið ferskjubátunum og
berjunum ofan á. Lagið hlaupið eftir
leiðbeiningum en notið ferskjusafann í
stað vatns. Ausið hlaupinu hálfstífu yfir
ávextina. ristið möndluflögurnar á þurri
pönnu og festið þær utan á kökuna.
Stingið kökunni í kæliskáp uns hlaupið
stífnar (um það bil 2 klukkustundir).
U m s j ó n : Þ ó r u n n S t e f á n s d ó t t i r . N e t f a n g t h o r u n n @ d v . i s
&Matur vín
Þórarinn Eggertsson yfirmatreiðslumeistari á Salt:
Lárperu- og
pestópasta
Blandið lárperu saman við basil og búið
þannig til spennandi tilbreytingu frá
venjulegu pestói. Hrærið saman við
pasta og málsverðurinn verður tilbúinn
á 20 mínútum.
uppSKriFt (Fyrir FJórA):
400 g þurrkað linguine-pasta (flatir,
fíngerðir strimlar)
2 lárperur (avókadó)
2 hvítlauksgeirar
Safi úr hálfri sítrónu
20 g fersk steinselja
80 g ferskt basil
1 rauður eldpipar (chili), fræin tekin úr
og saxaður
2 msk. ólífuolía
50 g ferskur, rifinn parmesan
25 g ristaðar furuhnetur
Falesco Umbria Vitiano 2005
ricardo Cottarella er aðalvíngerðarmaður hjá Falesco í umbríu. Falesco er
skemmtilegt vín úr Bordeaux-blöndu með Sangiovese, Merlot og Cabernet
Sauvignon. Mikil og margslungin angan, dökk ber, bláber og krydd en einnig
keimur af kakó og lakkrís. Súkkulaði í munni, kirsuber, plómur, kaffi og rúsínur.
Mjúkt vín með góðri fyllingu. Skilur eftir örlítið tannín í gómi. Eftirbragðið lifir
nokkuð lengi. gott vín sem er á mörkum 3 og 4 glasa. 1.590 krónur.
Quinta do Crasto Reserva Old Vines 2004
dumbrautt og bráðskemmtilegt vín frá portúgal sem ég er sannfærður um að eldist vel í vínkjallara
í nokkur ár. Lykt af plómum í púrtvíni, fíkjum og dökkum skógarberjum. Bragðmikið og ávaxtaríkt
með jarðarberjum, karmellu, kryddi, sveskjusteini og plómum. Vínið er í góðu jafnvægi með mjúku
og góðu tanníni. áfeng sulta, dökkt súkkulaði og eik í eftirbragði sem minnir jafnvel á Freyju
lakkrísdraum. Frábært vín sem gott væri að eiga til næstu jóla – eða þarnæstu. 2.090 krónur.
Bestu vín veraldar koma enn frá Frakklandi ef marka má lista Wine Spectator yfir 100 bestu vín síðasta árs. 27 vín koma frá Frakklandi, þar af
tíu frá Bordeaux og níu frá
rínardalnum. Bandaríkin koma fast
á hæla Frakklands með 25 vín á
listanum. fjórtán koma frá Kaliforníu,
aðallega úr pinot Noir og
Chardonnay, sjö frá Oregon og
fjögur frá Washington. Þessi tvö
lönd eru í algerum sérflokki,
þótt hafa verði í huga að
stundum er sagt að Wine
Spectator dragi taum
bandarískra vína á kostnað
annarra. tvö lönd komast í
hálfkvisti við risana tvo.
ástralía á tólf vín á
listanum, þar af níu úr
Shiraz-þrúgunni. Ellefu
vín koma frá ítalíu og
þar af eru átta frá
toskaníu. Níu lönd til
viðbótar komast á
listann. Fimm vín koma
frá Argentínu og
fjögur frá Spáni, Chile
og portúgal. Þrjú vín
eru frá Nýja-Sjálandi
og tvö frá Þýskalandi.
Austurríki, ungverjaland og Suður-
Afríka eiga svo eitt vín hvert á listanum.
Ekki eru mörg af þessum gæðavínum í
almennri sölu hér á landi. Númer 64 á
listanum má þó sjá Quinta do
Crasto reserva frá portúgal
sem fær 93 í einkunn hjá Wine
Spectator og Kim Crawford
Sauvignon blanc 2006 sem fær
92 í einkunn er númer 40. Sá
árgangur er vonandi að taka við
af 2005 sem verið hefur í
sölu. tekið er tillit til
verðs vínanna. á
lista tímaritsins
yfir hagkvæmustu
kaupin má einnig
sjá til dæmis
Columbia Crest
grand Estates
Merlot, sem var í
sölu á Amerískum
dögum en er því
miður ekki lengur
í hillum átVr. á
þeim lista er einnig
Falesco Vitiano 2004
en bæði þessi vín
fengu 90 í einkunn af
100 mögulegum. Ég
prófaði þau þrjú sem
voru fáanleg, þótt
árgangarnir væru ekki
alltaf réttir.Pálmi jónasson
vínsérfræðingur DV
Einkunn í vínglösum:
IIIII Stórkostlegt
IIII Mjög gott
III Gott
II Sæmilegt
I Slakt
100 bestu vínin
HægELdAður ÞOrSKur
200 g þorskur
15 g ólífuolía
1 laukur
Hálfur hvítlaukur
50 g sellerí
300 ml vatn
AðFErð
Steikið lauk, hvítlauk og sellerí á
pönnu við vægan hita, bætið vatn-
inu út í og látið suðuna koma upp.
Takið pönnuna til hliðar og látið
fiskinn ofan í pottinn og látið standa
í 4 til 5 mínútur.
SuLtAðir tóMAtAr
2 plómutómatar
20 ml jómfrúarólífuolía
1 hvítlauksrif
10 g flórsykur
1 grein timjan
AðFErð:
Tómatarnir eru blanseraðir og
kjarninn tekinn úr. Því næst lagðir
á bakka, olíu hellt yfir ásamt
fínt skornum hvítlauk og timjan.
Flórsykri stráð yfir, kryddað með
salti og eldað í ofni við 150°C í 1 klst.
Kældir og mótaðir.
ASpASMAuK
100 g grænn aspas
1/2 skarlottulaukur
80 ml. kjúklingasoð
1 grein timjan
1 hvítlauksgeiri
50 ml rjómi
AðFErð
Laukur, aspas, timjan,
skarlottulaukur og hvítlaukur er létt
steikt, kjúklingasoði og rjóma bætt út
í. Eldað þar til aspasinn er mjúkur.
Þórarinn Eggertsson yfirmat-
reiðslumeistari á Salt býður
upp á sumarsalat með
hægelduðum þorski, sultuðum
tómat og lime-dressingu og
grillaða dádýralund með
hvítum aspas, hnetukartöflum
og sveppasósu.
1 flaska kampavín
1 flaska appelsínudjús
Appelsínulíkjör
Hálfur bolli af ferskum hindberjum
Fyllið hálft glas af ísköldu kampavíni og bætið við
kældum appelsínusafa. Bætið 1-2 matskeiðum af
appelsínulíkjör út í og blandið vel saman. til þess
að bæta punktinum yfir i-ið er hindberjaklaka
bætt við rétt áður en drykkurinn er borinn fram.
Aðferð: Stappið fersk hindber og látið í hvert hólf
í ísmolabakkanum. Fyllið hólfin með vatni og
stingið í frystinn.
Mama mímósa
og hægeldaður þorskurGrilluð dádýralund