Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 54
Fyrir gamla kempu eins og mig hljómaði leikurinn EA Replay nokk- uð vel. Heilir 14 leikir frá EA fyrir- tækinu sem allir komu út á árunum 1990–1994. Ég er ekki alveg viss um að ég sé að fara með rétt mál, en það er eins og mig minni að leikirnir hafi flestir komið út á Nintendo, allavega man ég eftir að hafa spilað megnið af þessu við helvítis þrjótinn hann Ara frænda minn. Þarna eru leikur á borð við Jungle Strike, DEser Strike, Road Rash 1–3, Wing Commander, Budokan, Syndicate og Virtual Pin- ball. Það er skemmst frá því að segja að leikirnir í Replay ullu mér miklum vonbrigðum. Þeir voru auðvitað frá- bærir á sínum tíma, en ég er einfald- lega ekki viss um að þarna leynist einhver sígildur tölvuleikur. Enginn Mario Bros, Pacman, Tetris, Mega- man, Zelda eða því um líkt. Ekki misskilja mig það var auðvitað gam- an að spila smá Syndicate þó þetta sé öfga frumstæð útgáfa að leiknum, Budokan var fjör en lengra náði það eiginlega ekki. Þessir leikir eiga því varla erindi upp á borð í dag, þó að einhverjir fötuhausar í Breiðholtinu hafi eflaust grátið þagar þeir komust að því að Road Rash væri fáanlegur aftur. Ég brosti alveg í fyrstu 20 mín- úturnar í Replay, en svo langaði mig að skjóta mig í hausinn. Þessir leikir eru þó ekkert slæmir svo sem, bara gamlir. dori@dv.is dóri dna segir: & U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s fimmtudagur 17. maí 200754 Helgarblað DV leikirtölvu ratchet & Clank : Size matters - PSPSO ice age 2 - PCSO Caesar iV - PCSOCOm Combined assault - PS2 SOCOm fireteam Bravo 2 - PSP Kíktu á þessa leiKjatölvur Medal of Honor Airborne er væntanlegur á bæði Playstation 3, PC og Xbox360. Leikur- inn gerist eins og fyrri Medal of Honor leikir í seinni heimsstyrjöldinni en að þessu sinni stýra menn fallhlífarhermönnum sem lenda í hjarta átakanna hverju sinni. Sony Stórtapar Sony mun kynna veltu fyrirtækisins fyrsta ársfjórðunginn á næstu dögum og er búist við því að um töluvert tap sé að ræða sökum PS3. Þessu greinir heimasíðan bloomb- erg.com frá. Þar spá fjármálasérfræð- ingar síðunar að Sony muni hafa tapað um einum milljarð dollara á fyrsta ársfjórðungnum. Sala á PS3 hefur ekki staðist undir væntingum en rúmlega 3 milljónir eintaka hafa verið seld. Til dæmis setti PS3 sölumet á fyrstu helgi sinni í Bretlandi en svo féll sala tölvunar um 80% í vikunum á eftir. Lara Croft á Wii Það er í tísku þessa dagana að yfirfæra fræga leiki yfir á hina litlu og skemmti- legu Nintendo Wii. tölvuleikja- framleiðendur vilja ólmir nýta sér eiginleika Wii remote og Nunchuk- stýripinnans. Núna er leikurinn Lara Croft tomb raider: annivers- ary með hinni kynþokkafullu Löru Croft væntanlegur á Wii en hann hefur áður komið út á PC, PS2 og PSP. Leikir sem eru þegar komnir á Wii eða á eftir að yfirfæra eru til dæmis mortal Kombat, Prince of Persia, resident Evil og WWE Smackdown! vs. raW 2008. HaLo í September Þremur árum eftir Halo 2 og sex eftir þeim fyrsta er Halo 3 væntanlegur í búðir í september. Leikurinn er settur á 25.september í Bandaríkjunum og má því búast við honum í byrjun október hér heima. Leikurinn verður fáanlegur í þremur mismunandi útgáfum. Venjulegri útgáfu sem kostar 59.99 dollara, takmarkaða útgáfu sem kostar 69.99 dollara og svo hina svokölluðu „legendery edition“. Hún mun kosta 129.99 dollara og kemur í sérstökum umbúðum. Búast má við því að töluvert bætist ofan á verðið hér heima. Medal of Honor tölvuleikirn- ir hafa heldur betur slegið í gegn. Um er að ræða skotleiki sem all- ir gerast í seinni heimstyrjöldinni og stýra leikmenn hermönnum á átakasvæðum Evrópu. Ef vinna á verkefnin í leiknum geta menn að- eins stýrt bandamönnum, enda væri hálf rangt að leiða nasista til sigurs. En ef spila á leikinn á net- inu, sem er einn helsti styrkleiki Medal of Honor leikjanna er einn- ig hægt að stýra nasistum. Fyrsti Medal-leikurinn kom út á Playstat- ion 2 en síðan þá hafa leikir verið gefnir út á fleiri stýrikerfi, nú síð- ast á Playstation Portable. Vænt- anlegur er leikurinn Medal of Hon- or: Airborne og mun hann spilast á hina nýútgefnu Playstation 3. Stýra þá leikmenn sérstöum fallhlífar- hermönnum, sem þjóðverjar köll- uðu, „djöflanna í víðu buxunum“ í seinni heimstyrjöldinni. Fallhlífar- hermenn þurftu þá oftast að lenda á hættumestu svæðunum og reyna ryðja brautina fyrir komandi fé- laga sína. Í leiknum munu því leik- menn geta tekið þátt í stærstu bar- dögum seinni heimstyrjaldarinnar, sem fallhlífarhermenn. Það þýð- ir að nú geta leikmenn byrjað hvar sem er í borðunum og, en ekki að- eins á tilteknum stöðum. Gefur það því augaleið að auðveldara er að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Þá hafa þeir sem leikinn hafa prófað sagt að fallhlífarþátt- urinn geri það einnig að verkum að borðin endist lengur og veiti manni fleiri valmöguleika til þess að leysa hvert verkefni. Til dæmis geta menn reynt að lenda á húsþökum sem eru kjörin fyrir leyniskyttur eða nálægt loftvarnarbyssum. Þá mun fallhlíf- arþátturinn einnig ýta undir sam- vinnu í multiplayer-spilun leiksins. Oftar en ekki lenda menn í miðjum skotbardögum í miðju Arnarhreiðr- inu og þá þurfa allir meðlimir liðs- ins að standa klárir á því hvað þeir þurfa að gera og hvaða herkænsku- bragð virki best. Airborne kemur út á PC, Playstation 3 og Xbox 360 seinna á þessu ári. dori@dv.is 101 airborne: HeLvíti að ofan Ógn úr háloftunum Nú geta menn lent hvar sem er og þannig beitt meiri herkænsku. Nasistabaninn medal of Honor er stórgóðir leikir. Medal of Honor Airborne Leikmenn stýra fallhlífarher- mönnum að þessu sinni. Fötuhausarnir í Breiðholti verða Fegnir EA ReplayGamlir Nintendo-leikir PSP tölvuleiKur H H H H H
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.