Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2007, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 20074
INNLENDARFRÉTTIR
ritstjorn@dv.is
Fréttir DV
Stór heræfing
Dagana 13. til 16. ágúst fer
fram fyrsta varnaræfingin á Ís-
landi á grundvelli samkomu-
lags íslenskra og bandarískra
stjórnvalda frá því á síðasta ári
um varnir landsins. Á æfing-
unni verður meðal annars æfður
flutningur liðsafla til landsins
á hættu- og ófriðartímum. Auk
þess verða varnarviðbúnaður,
ákvarðanataka og samræming
við íslensk stjórnvöld æfð. Æf-
ingin mun skiptast í tvo hluta,
annars vegar gegn hermdar- og
hryðjuverkum og hins veg-
ar loftvarnaræfingu. Þrjár F-15
orrustuvélar taka þátt og tvær F-
16 orrustuvélar. Áætlaður fjöldi
þátttakenda er 240.
Kviknaði í
dráttarvél
Lögreglunni á Akureyri
var tilkynnt um eld og mikinn
reyk sem vegfarendur urðu
varir við rétt fyrir ofan Akur-
eyri í fyrrinótt. Kviknað hafði í
22 ára gamalli dráttarvél sem
stóð óhreyfð og telur lögregl-
an á Akureyri að rekja megi
upptök eldsins til bilunar í vél.
Slökkviliðið á Akureyri var
kallað út um rétt fyrir eitt um
nóttina og gekk slökkvistarf
greiðlega og var því lokið um
hálf þrjúleytið. Að sögn lög-
reglunnar á Akureyri var ekki
mikil hætta á ferðum þar sem
eldurinn barst ekki víðar og
voru önnur verðmæti eða tún
ekki í mikilli hættu.
Búið að veiða
makrílinn
Fiskistofa hefur fellt úr gildi
veiðileyfi þeirra íslensku skipa
sem verið hafa að veiðum í
færeyskri lögsögu. Ástæðan
er sú að starfsmenn Fiskistofu
áætla að skipin séu búin að
veiða þau 1.300 tonn af makríl
sem þeim er heimilt að veiða.
Því ber skipum að hætta veið-
um þegar í stað.
Makríllinn hefur verið með-
afli með norsk-íslensku síld-
inni sem veidd er í flotvörpu
innan færeysku lögsögunnar.
Hefur hlutur makríls í aflanum
aukist mjög síðustu daga.
Söfnun mætti
ganga betur
Búist er við að söfnunar-
ferð slökkviliðsmanna ljúki við
Reykjanestá klukkan tvö í dag.
Níu slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamenn lögðu upp í hjólaferð
fyrir tíu dögum til að safna fyrir
sjúkra- og líknarsjóði sínum.
Lárus Steindór Baldursson
slökkviliðsmaður sem sér um vist-
ir hjólreiðagarpanna segir ferðina
hafa gengið vel. „Þetta hefur tek-
ið á en þeir halda einbeittir áfram
þar til verkefninu lýkur. Söfnun-
in hefur gengið ágætlega en bet-
ur má ef duga skal.“ Þegar á leið-
arenda er komið hafa þeir lagt að
baki um 750 kílómetra.
Hamstramaðurinn reyndist saklaus og hefur verið látinn laus úr gæsluvarðhaldi:
Vildi bara eignast nýja leikfélaga
„Við komum hömstrunum til
ættingja mannsins,“ segir Björg-
vin Björgvinsson, yfirmaður kyn-
ferðisbrotadeildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Hamstrana
notaði andlega vanheill maður til
að eignast vini í Breiðholtinu í þar-
síðustu viku. Maðurinn var hand-
tekinn í kjölfarið grunaður um að
hafa reynt að lokka börn inn í rjóð-
ur til að misnota þau. Við rannsókn
kom í ljós að maðurinn er andlega
vanheill. Svo virðist sem hann hafi
viljað eignast leikfélaga.
Lögreglan fékk ábendingu þann
4. júlí um að maður væri að lokka
börn inn í rjóður og notaðist við
hamstra til að fanga athygli þeirra.
Alls fóru fjögur börn með honum
inn í rjóðrið, maðurinn er á þrí-
tugsaldri. Lögreglan kom á svæð-
ið og taldi sig hafa gripið hann
glóðvolgan. Hann var hnepptur í
gæsluvarðhald í kjölfarið.
Fljótlega eftir að yfirheyrslur hóf-
ust kom í ljós að maðurinn gengur
ekki heill til skógar. Þó taldi lögregla
ekki hægt að vista hann á geðdeild
þar sem það þótti raska rannsókn-
arhagsmunum lögreglunnar.
Eftir að skýrslur voru teknar af
fórnarlömbum kom í ljós að mál-
ið gæti allt verið misskilningur.
Tveimur vikum síðar var ákveðið
að ræða við manninn og samið við
hann um að hann færi á geðdeild
Landspítalans þar sem hann dvel-
ur núna.
Maðurinn bjó einn í Breiðholt-
inu og getur séð um sig sjálfur.
Hömstrunum var aftur á móti kom-
ið fyrir hjá ættingjum mannsins.
Málið telst upplýst en það verður
sent til ákæruvaldsins sem tekur
ákvörðun um hvort ákært verður
í málinu eða það látið niður falla.
Björgvini þykir líklegra að málið
verði látið niður falla. Hann sagði
einmanaleika hafi drifið manninn
áfram sem vildi bara eignast leik-
félaga.
valur@dv.is
Hamstur Maðurinn
notaði hamstra til þess að
fá börn til þess að leika
við sig. Í fyrstu lék grunur
á að maðurinn hygðist
skaða börnin en svo
reyndist ekki vera.
Fjórum mönnum var bjargað úr
þyrlunni TF-SIF eftir að hún brotlenti
í sjónum rétt fyrir utan Straumsvík
um kvöldmatarleytið í gær. Þyrlan var
við æfingar ásamt björgunarbátnum
Einari J. Sigurjónssyni. Björgunar-
menn í bátnum gátu því brugðist
skjótt við og bjargað mönnunum eft-
ir að þeir fóru í sjóinn.
Varðstjóri hjá Landhelgisgæsl-
unni sagði í gærkvöld að í raun hefði
engin hætta verið á ferðum. Mönn-
unum fjórum var snarað um borð í
bátinn og siglt með þá í höfnina hjá
álverinu í Straumsvík. Þeir komu
þangað milli klukkan átta og níu í
gærkvöld.
Drunur og golf
Um hálf átta leytið mátti sjá flot-
holt þyrlunnar frá golfvelli Keilis í
Hafnarfirði. Sjónarvottur, sem var
að spila golf þegar slysið varð, segist
hafa heyrt miklar drunur í þyrlunni
sem var þá við æfingar. Sjónarvottur-
inn segir að drunurnar hafi skyndi-
lega hljóðnað en segist ekki hafa átt-
að sig á hvað gerðist fyrr en síðar.
Það var þá sem þyrlan steypt-
ist niður þegar hún var við æfing-
ar ásamt björgunarbátnum Einari J.
Sigurjónssyni. Mönnunum var strax
bjargað um borð í Einar og siglt rak-
leiðis í höfn hjá álverinu í Straums-
vík. Margt fólk fylgdist með björgun-
araðgerðunum hjá Keili og var veður
með besta móti.
Verst frétta
„Núna er þetta í höndum Rann-
sóknarnefndar flugslysa,“ sagði
Georg Lárusson, forstjóri Landhelg-
isgæslunnar. Að öðru leyti varðist
hann frétta af málinu.
Þyrlan er orðin hátt í þrjátíu ára
gömul og hefur verið notuð til að
bjarga mörgum mannslífum í gegn-
um tíðina.
Ekki var ljóst í gær hvenær þyrlan
yrði dregin til hafnar en búist var við
að hún yrði hífð upp á pramma og
þaðan siglt til næstu hafnar. Rann-
sóknarnefnd flugslysa mun ræða
við flugáhöfnina og í kjölfarið mun
rannsókn leiða í ljós hvers vegna
þyrlan hrapaði.
Ljóst má vera að þyrlan er mjög
mikið skemmd, ef ekki gjörónýt, eftir
að hafa brotlent í sjónum í gær. Þyrl-
an fór alveg á kaf. Það eina sem kom í
veg fyrir að hún sykki var að áhafnar-
mönnum tókst að blása upp belgi á
botni þyrlunnar. Þeir héldu þyrlunni
við yfirborð sjávar þar sem björgun-
arbátar gátu athafnað sig.
Ekki í fyrsta sinn
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
TF-SIF lendir í vandræðum á flugi.
Áhöfn þyrlunnar lenti í hremming-
um í maí 2001 þegar þyrlan bilaði í
flugi. Þyrlan varð stjórnlaus í nokkrar
sekúndur áður en Hafsteinn Heiðars-
son, sem var flugmaður í þeirri ferð,
náði stjórn á henni. Hann neydd-
ist til að nauðlenda þyrlunni á túni
Stekkjarvalla á Snæfellsnesi eftir að
stjórn náðist á henni eftir nokkurra
sekúndna stjórnleysi. Þyrlan bilaði
snögglega þegar flogið var yfir fjalls-
brún og rykktist upp og niður. Vélin
skemmdist þegar þyrluspaðar fóru í
stélið og brutu hluta þess.
Valur grEttisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-SIF hrapaði í sjóinn rétt utan við Straumsvík við
björgunaræfingar í gær. Flotholt héldu þyrlunni við yfirborð sjávar þrátt fyrir að
hún færi á kaf. Áhöfnin slapp heilu og höldnu. Þetta er í annað sinn sem þyrlan
lendir í hremmingum. Það gerðist áður árið 2001.
Sluppu heiliR úR
bRotlendingu
slysstaðurinn Fjölmargir Hafnfirðingar fylgdust með frá golfvelli Keilis, þar á meðal
bæjarstjórinn Lúðvík Geirsson sem hafði verið í golfi fyrr um kvöldið.
„Núna er þetta í
höndum Rannsókn-
arnefndar flugslysa.“
Björgun Bjarga þurfti björgunarsveitar-
mönnum eftir að þeir lentu í sjónum
ásamt þyrlunni TF-SIF. Engum varð meint
af og voru mennirnir fluttir til hafnar við
álverið í Straumsvík. DV-MYNDIR ÁSGEIR