Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2007, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2007, Síða 20
þriðjudagur 17. júlí 200720 Morgunstundin DV Svefninn endurnærir og gefur okkur kraft til að takast á við gleði og amstur daglegs lífs og er nauðsynlegur þáttur heilbrigðra lífshátta. Sefninn hefur áhrif á liðan okkar, samskipti við annað fólk, starfshæfni og lífsgæðin almennt. Við getum ekki lifað af án svefns og hvíldar, hvað sem öllum sögum líður um fólk sem þarf ekki nema nokkurra klukkustunda hvíld á hverjum sólarhring. þrátt fyrir að við eyðum um það bil þriðjungi ævinnar í svefn hugum við ekki að mikilvægi hans fyrr en svefnleysi fer að hrjá okkur. þegar svo er komið fer öll hugsunin að snúast um það á hvern hátt hægt sé að ná góðum svefni. Á vefsíðu lýðheilsu- stöðvar veita Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkrunarfræðingur og Anna Björg Aradóttir yfirhjúkrunarfræð- ingur, sem báðar starfa hjá landlæknis- embættinu, góð ráð til að ráða bót á svefnleysi. þær ráðleggja fólki meðal annars að hafa það að reglu að vakna á sama tíma á hverjum degi, þótt auðvitað megi gera undantekningar svona stundum, til dæmis þegar við eigum frí. þeir segja líka að iðjuleysi og svefn á miðjum degi geti truflað svefninn og gæði hans þótt stuttur lúr eða slökun í 20 mínútur eða svo bætt líðanina. Hreyfing bætir líka bæði lengd og gæði svefnsins en þó ber að gæta þess að hreyfa sig ekki of mikið áður en gengið er til náða. það sama má segja um át og drykkju rétt fyrir svefn og gott er að draga úr neyslu örvandi efna, svo sem nikótíns, koffíns, áfengis og lyfja. Svo er um að gera að ganga áhyggju- laus og sáttur til svefns í svefnvænu umhverfi því hiti, lýsing og hljóð geta haft áhrif á svefninn. þær Salbjörg og anna Björg benda einnig á að rúmið sé ætlað til vissra hluta; það sé til þess að sofa í, hvílast og eiga góðar stundir með bólfélaga sínum. að lokum benda þær Salbjörg og anna Björg á að svefninn sé ekki allt, við þurfum líka að finna hvíld og sálarró. það er ekki síður mikilvægt að staldra við í amstri dagsins og njóta samvista við vini og vandamenn og horfa gagnrýnum augum á auglýsingar og annað áreiti sem hvetur okkur til að taka þátt í lífsgæðakapphlaupinu. Slökun veitir okkur vellíðan, hvíld, frið og endurnæringu. Til þess að okkur líði vel í amstri dagsins er mikilvægt að fá nægan svefn, hvíld og sálarró. Salbjörg Bjarna- dóttir geðhjúkrunarfræðingur og Anna Björg Aradóttir yfirhjúkrunarfræðingur, sem báðar starfa hjá Land- læknisembættinu, gefa landsmönnum góð ráð um hvernig sé best að forðast svefnleysi. GÓÐUR SVEFN ER GULLS ÍGILDI Að sögn Smára er hreyfing mjög mikilvæg fyrir heilsuna ekki síður en mataræði, góð hvíld og lífsgleði. „Ef við vanrækjum allt eða eitthvað af þessum þáttum daglegs lífs getur heilsunni hrakað. Þá er nauðsynlegt að grípa til góðra ráða og þar er dagleg hreyfing mjög ofarlega á lista. Það skiptir ekki máli hvort við kjósum að fara út að hlaupa, í líkamsræktarsalinn, göngutúrinn eða sundlaug- ina á morgnana eða kvöldin. Sumir eru hressari á morgn- ana en öðrum hentar betur að hreyfa sig síðdegis eða á kvöldin. Það er engin ein regla um hvaða tími er bestur, aðalmálið er að stunda hreyfingu þegar fólk er best upp- lagt til þess. Þó er ekki ráðlegt að stunda erfiða hreyfingu rétt fyrir svefn því líkaminn þarf að fá tækifæri að hægja vel á sér áður en lagst er til svefns.“ Smári segir að allir geti stundað líkamsrækt, burtséð frá aldri og líkamlegu ástandi. „Málið er að finna hreyfinguna sem hentar aldri, lík- amlegu ástandi og áhugamáli og fara rólega af stað. Lík- amsrækt þarf að vera eða verða skemmtileg með tíman- um. Ef ekki, er hætta á að fólk gefist upp og hætti.“ Hreyfi-lyfseðlar Smári segir að regluleg hreyfing komi svo sannarlega heilsunni til góða, að svo til öllu leyti. „Læknar ættu kannski að gera meira af því að ráð- leggja skjólstæðingum sínum að hreyfa sig og skrifa upp á „hreyfi-lyfseðla“, hvort sem vandamálið er andlegt eða líkamlegt. Meginreglan er sú að hreyfing einu sinni í viku er heilsubæting, hreyfing tvisvar í viku stuðlar að betri heilsu og hreyfing oftar en þrisvar í viku stuðlar að enn betri heilsu. Holl og hæfilega mikil hreyfing er ein- hver besta forvörn gegn heilsuleysi sem til er, auk góðs mataræðis og hvíldar. Þeir sem stunda reglulega hreyf- ingu njóta betur lífsins og líðandi stundar.“ HREYFING KEMUR Í VEG FYRIR HEILSU- LEYSI Það ættu allir að vera bú nir að átta sig á því að lan gvarandi sófa- setur gera lítið fyrir heils u og vellíðan. Samt eru þ eir til sem líta á líkamsrækt eingöngu æ tlaða þeim sem hafa sífel ldar áhyggjur af aukakílóunum. En dag leg hreyfing snýst um svo margt annað. Smári Jósafatsson, einkaþjá lfari og Pilates-kennari, v eit allt um mikilvægi góðrar hreyfin gar. Smári Jósafatsson „þeir sem stunda reglulega hreyfingu njóta betur lífsins og líðandi stundar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.