Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2007, Qupperneq 22
Sigyn er með ofnæmi fyrir mót-orhjólum. Líkamlegt ofnæmi. Hún fær pirringskast í hvert
sinn sem hún heyrir í mótorhjólum
og finnst hreinlega að það eigi að
banna mótorhjól innan bæjarmark-
anna.
Sigyn er ekki fasisti á neinn hátt. Hún hefur ekkert á móti leð-urklæddum
mönnum – ekki
einu sinni þótt
þeir séu komnir
hátt á sjötugs-
aldur. Henni
finnst konur í
leðri meira að
segja flottar. Það er
ekki ástæðan fyrir ofnæminu.
Hún hefur ekkert á móti því að fólk dundi sér við áhugamál sín og henni finnst ekkert
að því að gera mótorhjólaiðkun að
áhugamáli – þótt hún myndi aldrei
velja það sjálf. Það sem pirrar Sigyn
er hávaðinn í bansettum hjólunum!
Það vill svo til að Sigyn býr í hjarta borgarinnar og einhvern veginn í leið mótorhjólamanna
til og frá samkomustað sínum, Ing-
ólfstorgi. Hún hefur ekkert á móti
því að mótorhjólamenn hittist. Þeir
þurfa auðvitað að geta rætt sín hjart-
ans mál – nýjustu hjólin, aukabún-
aðinn, hestöflin og hvað þetta nú allt
heitir. Henni finnst bara að hittingur
þeirra eigi að fara fram utanbæjar.
Það er hvort eð er hálfhallæris-legt að krúsa innanbæjar og kraftur hjólanna fær alls ekki
að njóta sín þannig. Eða þannig ætti
það að minnsta kosti að vera. En nei,
nei. Mótorhjólamenn þurfa náttúru-
lega að hittast í alfaraleið. Svo þeir
dáist ekki einvörðungu að hjólum
hvers annars – heldur eygi þeir von
um að utanaðkomandi láti svo sem
eitt og eitt hrósyrði falla um tryllitæk-
in. Gott og vel. Skiljanlegt að menn
þrái athygli.
Það sem Sigyn þolir hins vegar ekki er að á leiðinni til og frá samkomustaðnum – og fram
hjá húsi Sigynar meðal
annarra – geta
mótorhjóla-
menn ekki hald-
ið aftur af sér og
þurfa endilega AÐ
GEFA Í! Og inn-
gjöfinni fylgir þvílíkur hávaði að Sig-
yn fyllist pirringi. Það hefur ósjaldan
komið fyrir að hún er vakin af værum
nætursvefni við útrásarþörf mótor-
hjólamanns – sem tekur ekki nokk-
uð tillit til þess að hann er að gefa í
beint undir svefnherbergisglugg-
um sofandi fólks. Gjörsamlega
óþolandi tillitsleysi.
Sigyn er búin að velta fyrir sér ýmsum leiðum til þess að binda enda á ofnæm-
ið. Hún hefur íhugað að flytja
– en finnst það algjörlega
óhugsandi að vandlega
ígrunduðu máli
að láta mótorhjóla-
menn í spreng
fæla sig úr húsi
sínu. Auk
þess er bara
rándýrt að
skipta
um hús-
næði.
Það hefur aftur á móti einnig hvarflað að henni að „gleyma“ vökvunargræjunum á á nótt-
unni og láta þær „óvart“ sprauta
yfir götuna. Það gæti vonandi
orðið til þess að mótor-
hjólakapparnir velji
aðrar ökuleiðir. Hún
hefur einnig skoð-
að þann möguleika
að vakta götuna og
skrifa niður númer
hjólanna sem valda
svona miklum ofnæm-
isviðbrögðum og heim-
sækja eigendur þeirra nótt eftir nótt
og vekja þá með hávaða. Það ætti
að kenna þeim dýrmæta lexíu. En
nýjasta hugmyndin er samt best.
Svo góð að Sigyn er byrjuð að und-
irbúa framkvæmd hennar. Hún ætl-
ar að búa til fullt af pappalöggum
með radarmæla og stilla þeim upp
með reglulegu millibili við götuna.
Ætli mótorhjólatöffararnir verði ekki
fljótir að láta sig hverfa!
ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 200722 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal
ritStjóri og áByrgðarmaður:
Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir
auglýSingaStjóri: auður Húnfjörð
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
AÐALnÚMeR 512 7000, RItstJóRn 512 7010,
ÁskRIftARsÍMI 512 7005, AUGLýsInGAR 512 70 40.
Malandi Mótorfákar
Sigyn
Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. En umfram allt, ábyrgðin er stjórnvalda og mest þegar kemur að landbúnaðarvörum.
Blaður
Leiðari
Hvað ætli formanni Neytendasamtak-anna gangi til þegar hann segir Bón-us bera höfuðábyrgð á háu verðlagi á Íslandi. Vissulega er það rétt hjá for-
manni Neytendasamtakanna að Bónus er stór
verslun og það munar um Bónus. En má vera að
formaður Neytendasamtakanna hafi gengið of
langt þegar hann segir Bónus bera mesta ábyrgð á
háu vöruverði á Íslandi? Já, það hefur hann gert og
eflaust er það svo að það trúir honum ekki nokkur
maður. Neytendasamtökin hafa látið á sjá og þau
þurfa örugglega meira á traustum málflutningi að halda en þeim
sem formaður Neytendasamtakanna viðhafði í sjónvarpsviðtali.
Lægsta vöruverð á Íslandi er í verslunum Bónuss. Það sýna
verðkannanir stöðugt og þess vegna er ekki hægt að fallast á
rök formanns Neytendasamtakanna. Neytendur finna það á
innkaupum hvar lægsta verðið er og það hæsta. Hafi Jóhannes
Gunnarsson rétt fyrir sér, að Bónus beri ábyrgðina á háu vöru-
verði á Íslandi, verður hann að rökstyðja orð sín. Meðan hann
gerir það ekki stendur hann eftir ómarktækur. Eitt af því sem Jó-
hannes nefndi var að ef Bónus lækkar verð, lækki aðrir líka og ef
Bónus hækkar verð, hækki aðrir líka. Þetta eru ekki nokkur rök
og hafa ekkert gildi.
Gagn væri að Neytendasamtökunum ef
þau litu til þess hversu stóran hlut stjórn-
völd eiga í háu vöruverði og sýndu fram á
raunhæfar leiðir til lækkunar í stað þess að
höggva í þann sem mest hefur gert til að
lækka vöruverðið. Þar sem augljóst er að
lönd innan Evrópusambandsins geta boð-
ið þegnum sínum mun lægra vöruverð en
lönd utan þess hlýtur að vakna krafa um
að íslensk stjórnvöld kanni hver hagur
okkar gæti orðið innan Evrópusambands-
ins. Betur færi fyrir Neytendasamtökin að boða stefnu, benda
á leiðir og finna farveg fyrir bættan hag neytenda í stað þess að
gera eins og formaður samtakanna hefur gert. Enginn er yfir
gagnrýni hafinn og það á líka við um Bónus. Eflaust er hægt að
finna að einu og öðru hjá því fyrirtæki. En málflutningur um að
Bónus beri höfuðábyrgð á háu matarverði er ekki trúverðugur.
Hann skaðar ekki Bónus en hann stórskaðar Neytendasamtök-
in þar til formaður þeirra bendir á í hverju ábyrgðin er falin og
hvernig forsvarsmenn Bónuss hafi haldið uppi háu vöruverði
á Íslandi. Ábyrgðin hlýtur frekar að vera þeirra sem elta Bón-
us, einkum þegar verð þar hækkar. En umfram allt, ábyrgðin er
stjórnvalda og mest þegar kemur að landbúnaðarvörum.
DómStóLL götunnar
Hvað finnst þér um framgöngu mótmælenda á Íslandi?
„Mér finnst gott að vekja athygli á
þessum málaflokki. Þó það megi alltaf
gera hlutina öðruvísi þá finnst mér ekk-
ert að mótmælendunum. Það stafar
enginn hætta af því sem þau eru að
gera. náttúran er ekki okkar einkamál
þannig mér finnst það skemmtilegt að
erlendir mótmælendur séu þarna líka.
Mér finnst hins vegar gróft að það sé
verið að handtaka fólkið.“
Ólöf Kristín Helgadóttir, 17 ára
nemi
„Agalegt ástand eins og það er. Það er
ómaklega vegið að mótmælendunum
því fólk á rétt á því að fá að tjá skoðanir
sínar. Málfrelsið skiptir öllu máli og ég
vil ekki sjá lögregluna handtaka þetta
ágæta fólk.“
Jón Jónsson, 49 ára atvinnulaus
„Mér finnst allt í lagi að vekja athygli á
þesum málaflokki. Þetta lífgar upp á
tilveruna og að auki eru þetta nú ekki
beinlínis hættulegir einstaklingar. Þau
koma sínum áróðri áleiðis hvernig sem
komið er fram við þau.“
Axel Valur Davíðsson, 20 ára nemi
„Mér finnst það allt í lagi að þau komi
sínum skilaboðum á framfæri.
stundum finnst manni þau fara svolítið
út í öfgar en á heildina litið þá finnst
mér Þetta allt í lagi. Það getur kannski
verið slæmt að stoppa umferðina.
Annars er þetta ágætis leið til þess að
segja sína skoðun.“
Sif Pétursdóttir, 15 ára nemi
SanDkorn
n Orð og gjörðir
Ögmundur Jónasson, þingflokks-
formaður vinstri grænna, er ekki
alls kostar sáttur við Jóhönnu Sig-
urðardóttur félagsmálaráðherra
þessa dagana
og telur hol-
an hljóm í
orðum henn-
ar um að
Seðlabank-
inn verði að
lækka vexti.
Þetta segir
hann vera
vegna fyrri hvatningar hennar
til bankanna þegar hún afnam
90 prósenta lánin og bankarnir
fylgdu í kjölfarið með vaxtahækk-
anir. Hvers vegna að hvetja einn
til hækkunar en annan til lækk-
unar, spyr Ögmundur.
n Bensínverðið undarlega
Bensínið virðist vera ódýrara á
landsbyggðinni en höfuðborg-
arsvæðinu, segir Sigurður Kári
Kristjánsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, sem er byrjað-
ur að blogga
á ný eftir
að hafa lagt
land undir
fót. Komst
hann að því á
ferðalagi sínu
um land-
ið að hæsta
bensínverð-
ið borgaði hann í upphafi og við
lok ferðar, nefnilega þegar hann
lagði af stað úr Reykjavík og þegar
hann kom þangað aftur.
n Verðugur arftaki
Einstaka sinnum spretta upp
vangaveltur um hvort Ólafur
Ragnar Grímsson forseti gefi kost
á sér til endurkjörs á næsta ári
og hverjir kynnu að verða líkleg
forsetaefni. Svo eru aðrir sem
nálgast þetta
út frá öðru
sjónarhorni.
Þannig veltir
laganeminn
Anna Pála
Sverrisdótt-
ir því upp á
vef sínum
hvernig væri
ef Ísland eignaðist fyrsta sam-
kynhneigða forsetann. Hún segir
sjálfstæðismenn vera farna að
leita að sínum kandídat og spyr
hvort Samtökin ’78 geti ekki gert
það sama.
n Bjargvættarins minnst
Margir hafa orðið til að minn-
ast Einars Odds Kristjánssonar
að undanförnu, mannsins sem
varð þekktur sem bjargvætturinn
í baráttunni við verðbólguna og
féll frá um helgina. Þeirra á meðal
er Björn Ingi Hrafnsson, fram-
sóknarmaður
úr Reykjavík.
„Seinni árin
varð sérstaða
Einars Odds
í íslenskum
stjórnmál-
um æ meira
áberandi.
Hann var
það sem danskurinn myndi kalla
folketaler, sagði það sem hann
meinti og meinti það sem hann
sagði. Gegn pólitískum rétttrún-
aði; gegn ríkjandi viðhorfum, eini
vinur ríkissjóðs á stundum.“