Innsýn - 01.08.1976, Qupperneq 34
26
sem alltaf fær að hírast
eitt yfir súrmjólk og
kornflögum á hvíldardögom,
á meðan safnaðarfjölskyld-
urnar stynja. undan krásun-
um, en það er best að fara
ekki nánar út í þá sálma
hér.
Eitt má ég þó til með
að segja að lokum. Fyrr
en kærleikurinn og
umhyggjan fær að fylla rúm
illgirninnar og baktalsins
í huga okkar, þá mun
ekkert okkar "fara til
fundar við föðurinn, sem
er á himnum".
Kæri ritstjóri,
Mig langar að láta nokkur
orð falla varðandi grein
Ellu Jack sem birtist í 1.
tb. 3.árg.1976 af INNSÝN.
Ella Jack segir þar frá
reynslu sinni sem Sjöunda
dags aðventisti á meðal
þeirra sem ekki eru aðvent-
istar. Eitt af aðalatriðum
hennar er hvort hún eigi að
vera djörf og opinská með
að kynna sig sem Sjöunda
dags aðventista, eða hvort
hún eigi að láta fólk. komast
að því sjálft hverju hún
trúi, með tímanum.
Samanborið við flest
"heimslega sinnað fólk" eru
Sjöunda dags aðventistar
"sérstakt fólk", þ.e.a.s.
skrítið, og því miður hafa
þeir oft unnið til þessa
álits með þeim hætti sem
þeir kynna trú sína. Til
dæmis: Flestir vita að
Sjöunda dags aðventistar
reykja ekki, drekka ekki,
spila ekki fjárhættuspil,
og borða ekki óhreina fæðu
(vissa dýrafæðu). Þegar
spurt er út í þetta svörum
við gjarnan á þessa leið:
"Trú mín bannar mér", sem
oft skilur neikvæð áhrif
eftir í huga spyrjenda.
Hefðum við hins vegar sagt:
"Ég geri þetta ekki vegna
þess að þetta er óheilnæmt,
og ég, sem kristinn maður
(eða kona) vil fara sem best
með líkama minn", þá myndi
það hafa allt önnur áhrif á
þá sem spyrja.
Það sem ég er að reyna að
segja er að því miður reynum
við oft að halda reglur Guðs
(boðorðin tíu) áður en við
lærum að elska hann. Sagði
ekki Kristur: "Ef þið elskið
mig, þá haidið boðorð mín"?