Kjarninn - 26.12.2013, Page 20
Deildu með
umheiminum
Álit
pólitíkin skiptist í
tvo heima
Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Bjartar framtíðar, skrifar
Á
rið sem nú er að líða hefur að mínu viti
afhjúpað ákveðin vatnaskil í íslenskum
stjórnmálum. Hið pólitíska landslag virðist
skiptist upp í tvo heima, sem hvor um sig
virðist eiga upp á pallborðið hjá stórum
hluta kjósenda; Annars vegar horfðum við upp á stórsigur
Framsóknarflokksins í alþingiskosningum sem byggði á
einföldum kosningaloforðum og framsetningu stefnumála
í eins konar tékklistabúning. Hins vegar horfðum við upp á
Besta flokkinn viðhalda nær hreinum meirihluta í Reykjavík
í hverri skoðanakönnuninni á fætur annarri – flokk sem
komst til valda með því að gera kaldhæðnislegt grín að þeirri
einföldu mynd sem stjórnmálaflokkum hættir til að draga
upp af raunveruleikanum í aðdraganda kosninga.
Fyrir mér hefur árið sem nú er að líða varpað skýrara
ljósi á þessa tvo heima og hvernig þeim er að takast að
leysa úr vandamálum. Það er mín skoðun að afmarkaðar
stefnur og tillögur sem miða að því að gjörbreyta lífskjörum
okkar á fjórum árum verða nær sjálfkrafa orðin tóm um
leið og kosningum sleppir. Raunveruleikinn sem blasir við
stjórnmála mönnum verður ekki leystur með tölvumódelum
og Excel-skjölum. Skuldavandi hverfur ekki með einni aðgerð
og flugvellir verða heldur ekki færðir á einni nóttu. Þeir
sem starfa í stjórnmálum eru ekki færir um að framkvæma
kraftaverk, frekar en fólk í öðrum stéttum, og staðreyndin
er sú að lífið og tilveran er allt of flókin og margbreytileg til
að unnt sé að leysa mál með tékklista. Ég gef mér að hugur-
inn sé góður og viljinn einlægur til að gera gagn. En ég tel
hins vegar að þessi gerð stjórnmála ali af sér illa upplýstar
ákvarðanir og vondar niðurstöður í meiri mæli en þar sem
skynsemi og hlustun ráða för.
Hafandi haft atvinnu af því í nær fjögur ár að skyggnast
bak við tjöldin, fylgjast með ákvarðanatöku og taka þátt í
henni hef ég komist að því að lykillinn að góðri niðurstöðu
er samskipti. Stjórnmál eru í mínum huga ekkert annað en
samskipti. Leið til að komast að því hvernig við deilum út
sameiginlegum gæðum eftir ítarlegar samræður, vangaveltur
og ráðleggingar úr ólíkum áttum. Til þess að þessi útdeiling
get farið fram í sem mestri sátt þarf hæfni til þess að eiga
góð samskipti.
Vatnaskilin sem ég sé í stjórnmálunum í
dag liggja einna helst í því hverjir hafa kjark
til að koma að því að leysa erfið viðfangsefni
með opnum hug, hlusta á rök og ráðleggingar
og gera ekki greinarmun á því hvaðan gott
kemur, svo lengi sem heilbrigð skynsemi er
höfð að leiðarljósi. Það er að mínu viti uppskrift
að vondri niðurstöðu þegar fyrirframgefinni
stefnu er þröngvað fram vegna þess að einhver
lagði nafn sitt og flokksins síns að veði í kosn-
ingabaráttu.
Með því að þröngva sér í átt að niðurstöðu
verður til rembingur sem fólk hefur til-
hneigingu til að halda í sér þar til það nær ekki
andanum lengur.
Fyrir mér kristallast þetta nokkuð vel í frétta-
flutningi úr borgarstjórn annars vegar og af Alþingi hins
vegar. Fréttir úr borgarstjórnarsalnum snúast í meiri mæli
um efnislegan ágreining milli flokkanna, sem er fullkom lega
eðlilegur þar sem ólíkir hópar koma saman. Fréttir frá ræðu-
stól Alþingis snúast ennþá um hver sagði hvað um hvern og
hvernig, og það er gjarnan ekkert mjög fallegt.
Fylgi Besta flokksins – nú Bjartrar framtíðar í Reykjavík
– og vaxandi fylgi flokksins á landsvísu gefur til kynna að
fleiri og fleiri eru að átta sig á þessum grundvallarmun á val-
kostum. Aðrir valkostir eru vissulega enn í boði, sem er vel,
enda er erindi Bjartrar framtíðar bara eitt af mörgum sem
eiga mikilvægan rétt á sér í stjórnmálum á Íslandi.
Takmark stjórnmálanna er í mínum huga að auka lífs-
hamingju okkar allra með sem bestri deilingu á sameigin-
legum gæðum á friðsaman hátt. Það er erfitt verk, því
magnið af kröfum og magnið af gæðum eru sjaldnast í jafn-
vægi, en leitin að jafnvæginu er þó ekki óvinnandi
vegur. Það skiptir mjög miklu máli frá hvaða stað
hvert og eitt okkar nálgast það verkefni. Að vera
sáttur í eigin skinni, að elska og að vera elskaður
er staður þaðan sem góðir og fallegir hlutir gerast
og það á enginn að elska að vera hataður. Ég óska
ykkur öllum ljóss, íslensks smjörs, ástar og friðar
um þessi jól og vissu um það að 2014 verður eitt af
þessum árum!
„Raunveru leikinn
sem blasir við
stjórnmála mönnum
verður ekki leystur
með tölvu módelum
og Excel-skjölum.
Skuldavandi
hverfur ekki með
einni aðgerð og
flugvellir verða
heldur ekki færðir
á einni nóttu.“
um HöFundinn
Heiða Kristín
Helgadóttir
er framkvæmda-
stjóri og stjórnar-
formaður Bjartar
framtíðar.
01/01 kjarninn ÁLit