Kjarninn - 26.12.2013, Blaðsíða 78

Kjarninn - 26.12.2013, Blaðsíða 78
01/01 kjarninn SJÖ SPURNiNGaR G ísli S. Brynjólfsson er annar framkvæmdastjóra auglýsingastofunnar Hvíta hússins. Stofan hefur starfað lengst allra auglýsingastofa hér lendis, allt frá árinu 1961, og hefur ára- tuga reynslu af markaðsstörfum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum á Íslandi. Hvíta húsið hefur hlotið fleiri verðlaun fyrir starf sitt en nokkur önnur íslensk auglýsinga- stofa, bæði hérlendis og erlendis. Hvað er það jákvæðasta sem gerðist á Íslandi árið 2013? Fyrir mig persónulega og fyrir okkur á Hvíta var 2013 að mörgu leyti fínt ár. Við höfum fengið að vinna að mörgum skemmtilegum verkefnum sem hafa skilað árangri og vakið athygli, bæði hér heima og utan landsteinanna. ætli ég verði ekki sérstaklega að nefna gott gengi okkar á auglýsingahátíð Lúðursins í mars síðastliðnum, þar sem við unnum til flestra verðlauna, þar á meðal herferð ársins fyrir Vodafone. Sumarið var síðan mjög áhugavert þegar við unnum með kettinum Jóa í herferð fyrir Sjóvá. ég held að sjaldan hafi einn leikari verið með eins mikla stjörnustæla; sá lét okkur hafa fyrir því. Þetta eru kannski stærstu punktarnir. Já! Og svo losnuðum við auðvitað við icesave- umræðuna. Vonandi! Hvað var það neikvæðasta sem gerðist á Íslandi árið 2013? Það neikvæðasta var í raun það sem gerðist ekki. Sumarið lét aldrei sjá sig. Það hafði áhrif á sálarlíf mitt og golfsveifluna, ég ætla allavega að nota þá af- sökun. Og svo til að „toppa“ sumarið féll Skaginn í fyrstu deild. annars engin stór áföll, svona ef maður hættir að vorkenna sjálfum sér. Hvaða hlutum er brýnast að breyta til að styrkja stöðu þjóðarinnar og gera samfélagið betra? Einhver sagði „it´s the economy, stupid“, og ég held að það sé svolítið staðan hjá okkur ennþá. að lækka skatta á fyrirtæki – hvort sem það væri í formi lægri launatengdra gjalda eða lægri tekjuskatta – held að að myndi hjálpa mikið til og gæti verið þúfan sem myndi velta „hlassi“ atvinnulífsins af stað. ég held að það sé ein af stóru forsendunum til þess að koma fyrirtækjunum almennilega af stað. Hvað sóknartækifærin varðar held ég, eftir að hafa unnið með nokkrum sjávarútvegsfyrirtækjum á síðastliðnum árum, að sé forgangs- verkefni hjá okkur að fara í almennilega markaðssetningu á íslenskum sjávar- afurðum. Við erum að verða eftirbátar á mörgum mörkuðum og höfum dregið lappirnar allt of lengi í þessum efnum. Hvernig metur þú stöðu landsins í lok árs, og hvort telur þú að staða Íslands muni hafa versnað eða batnað í lok árs 2014? ég held að það sé hægt að benda á nokkra þætti sem eru jákvæðir og hafa sannarlega bætt stöðu landsins, þótt enn séu vissulega fjölmörg stórmál óleyst. augljósust er náttúrulega þessi fjölgun ferðamanna en mér finnst ekki síður jákvætt að sjá þennan gríðarlega áhuga á landinu til framleiðslu á kvik- mynduðu efni: kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og auglýsingum. Hvort tveggja eru vaxtartækifæri sem verður að passa. Vonandi getum við horft til baka í lok næsta árs og þá verði til viðbótar komnar einhverjar leiðir til að leysa önnur stærri mál, eins og gjaldeyrismálin. Hvernig stendur ríkisstjórnin sig að þínu mati, hvað hefur hún gert vel og hvað ekki? Persónulega hef ég orðið fyrir ákveðnum vonbrigðum með hana þar sem ég hélt að hún myndi láta meira til sína taka á fyrstu mánuðunum. Það var í það minnsta tónninn sem var gefinn eftir kosningar. Mér finnst útspil hennar með skuldaniðurfellinguna þó gott að því leyti til að það virðist vera nokkuð almenn sátt um hana. Það var mjög mikilvægt. Mér finnst þessi ríkisstjórn þó aðallega hafa klúðrað málum á PR-hliðinni, og þá kannski sérstaklega ákveðnir einstaklingar innan ríkisstjórnarflokkanna. Hvar sérð þú helstu tækifæri Íslands á næsta ári/árum? Þau eru mörg en ég held að þau séu ekki hvað síst í sjávarútvegi. Við höfum unnið frábæra hluti á mörgum sviðum sjávarútvegs eins og til dæmis í vinnslu og nýtingu hráefnis, sem hefur skilað sér í nýjum og betri afurðum. ég held að það sé kominn tími á að við förum að koma þessu vopnabúri okkar á framfæri með stefnumiðaðri markaðssetningu. Við höfum séð hvernig bæði Noregur hefur unnið sína heimavinnu í þessum málum og líka alaska með laxinn. Við getum ekki beðið lengur. Er framtíðin björt fyrir land og þjóð? Já, það tel ég að hljóti að vera. ég er í það minnsta bjartsýnn. ég er reyndar það heppinn að fá að vinna að stefnumótun margra fyrirtækja, þannig að ég fæ að upplifa hvað tækifærin eru mörg. En það verður náttúrulega að halda rétt á spilunum til þess að nýta þau. En ef við miðum við fjölda tækifæra get ég ekki verið annað en bjartsýnn. Deildu með umheiminum sjö spurninGar Gísli s. Brynjólfsson framkvæmdastjóri Hvíta hússins, sem vann meðal annars flest verðlaun á auglýsingahátíð Lúðursins á árinu 2013 ríkisstjórnin hefur klúðrað pr-málum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Kjarninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.