Kjarninn - 26.12.2013, Blaðsíða 36
okt
sept
ágú
júlí
júní
maí
apríl
mars
feb
jan
des
nóv
12/13
Fréttir
Ársins
2013
nóvember
erlentinnlent
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
Hamfarir á Filippseyjum
11. nóvember 2013
Rúmlega sex þúsund manns létu lífið vegna
fellibyljarins Haiyan, sem gekk yfir Filipps-
eyjar í byrjun nóvember. Neyðarástand skap-
aðist víða og ráðamenn á Filippseyjum reyndu
að beina athygli heimsins að því að loftslags-
breytingar hefðu þessi skelfilegu áhrif.
Hannes smárason ákærður
4. nóvember 2013
Greint var frá því að Hannesi Smárasyni
hefði verið ákærður fyrir að hafa dregið að
sér hátt í þrjá milljarða króna af reikningi
FL Group í apríl 2005. Fénu var ráðstafað til
Fons eignarhaldsfélags, sem notaði það til að
kaupa danska flugfélagið Sterling.
Quizup slær í gegn
7. nóvember 2013
QuizUp, spurningaleikjasmáforrit íslenska
leikjaframleiðandans Plain Vanilla, var sett í
loftið. Leikurinn náði ótrúlegum vinsældum
á skömmum tíma. Um mánuði síðar voru
forsvarsmenn Plain Vanilla búnir að hafna
tilboði upp á annan tug milljarða króna í
fyrirtækið. Sá sem vildi kaupa var leikjarisinn
Zynga.
ríkisstofnanir undir hnífinn
11. nóvember 2013
tillögur hagræðingahóps ríkisstjórnarinnar
voru kynntar. Í þeim var meðal annars lagt til
að rekstur tuga ríkisstofnana yrði endurskoð-
aður. alls voru tillögurnar í 111 liðum.
Halldór vinnur prófkjörið
16. nóvember 2013
Halldór Halldórsson náði fyrsta sæti í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Konur
sem sóttust eftir forystusætum biðu afhroð og
þátttaka í prófkjörinu var afar dræm í saman-
burði við fyrri prófkjör.
Hm-draumurinn úti
19. nóvember 2013
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu
tapaði 2-0 fyrir Króatíu í umspili um sæti á
heimsmeistaramótinu í Brasilíu næsta sumar.
Árangur liðsins var sá langbesti sem karla-
landsliðið hefur nokkru sinni náð.
aðalskipulag komið á borðið
26. nóvember 2013
Nýtt aðalskipulag fyrir Reykjavík var sam-
þykkt. Það gildir til ársins 2030.
Blóðugur dagur á rÚv
27. nóvember 2013
tilkynnt var um niðurskurð í rekstri RÚV
vegna lægri framlaga til þess. Starfsmönnum
mun fækka um 60 og þar af voru beinar upp-
sagnir 39 sem komu þegar til framkvæmda.
leiðréttingin lítur dagsins ljós
30. nóvember 2013
Ríkisstjórnin kynnti skuldaniðurfellingar-
tillögur sínar. aðgerðirnar voru kallaðar
„Leiðréttingin“. Samkvæmt þeim verða
verðtryggð húsnæðislán færð niður um allt
að 80 milljarða króna. auk þess verður fólki
gert kleift að nýta séreignalífeyrissparnað
sinn til að greiða niður höfuðstól lána sinna
skattfrjálst. Umfang þeirra aðgerða er allt að
70 milljarðar króna.
vodafone hakkað
30. nóvember 2013
tyrkneskir tölvuþrjótar brutust inn á heima-
síðu Vodafone á Íslandi. Þeir stálu gögnum
sem eru samtals um 300 megabæt að stærð
og birtu þau síðan í heild sinni á netinu. Um
var að ræða 79 þúsund smáskilaboð sem
send höfðu verið á heimasíðu Vodafone á
síðustu þremur árum, mikinn fjölda lykilorða
viðskiptavina Vodafone, kreditkortanúmer
og gríðarlegt magn upplýsinga um nöfn og
kennitölur viðskiptavina. Þetta er stærsta
tölvuárás Íslandssögunnar og stórtækasta
árás inn í einkalíf Íslendinga sem nokkru sinni
hefur átt sér stað.
Konum bjargað úr ánauð
21. nóvember 2013
Þremur konum var bjargað úr húsi í London
þar sem þeim hafði verið haldið föngnum í
þrjátíu ár. Greint var frá málinu í lok nóvem-
ber, en konunum var bjargað mánuði fyrr. Par
á sjötugsaldri var handtekið vegna málsins,
grunað um að hafa þrælað konunum út allan
þennan tíma.
þyrla hrapar á skemmtistað
29. nóvember 2013
Níu létust þegar lögregluþyrla hrapaði á
fjölsóttan bar við bakka árinnar Clyde í
Glasgow. Fjölmennir tónleikar voru á barnum
þegar slysið varð og mikil skelfing greip um
sig. Nokkra daga tók að fjarlægja brakið og
komast að líkunum sem voru undir því.
Borgarstjóri sviptur völdum
19. nóvember 2013
Rob Ford, borgarstjóri í toronto í Kanada, var
sviptur völdum sínum. Ford stóð í ströngu
á árinu og borgarstjórnin greip til þessa
neyðarúrræðis í nóvember vegna þess að ekki
var hægt að svipta hann embættinu sjálfu,
aðeins völdunum sem því fylgja venjulega.
Borgarstjórinn hefur orðið uppvís að ýmiss
konar ólifnaði, drekkur ótæpilega og neytir
eiturlyfja. Þá hefur hann verið sakaður um
vændiskaup og kynferðisáreitni.
þak hrynur í stórmarkaði
21. nóvember 2013
Yfir fimmtíu manns létust þegar þak stór-
markaðar í Ríga, höfuðborg Lettlands, hrundi
á háannatíma. Rúmlega þrjátíu til viðbótar
slösuðust. Slysið er eitt það mannskæðasta í
sögu Lettlands og þriggja daga þjóðarsorg var
lýst yfir eftir það.
andris Berzinz, forseti Lettlands, sagði að
slysið mannskæða hefði verið morð og bæri
að rannsaka sem slíkt. Nokkrum dögum síðar
tilkynnti Valdis Dombrovskis, forsætisráðherra
landsins, afsögn sína og ríkisstjórnarinnar
allrar, vegna slyssins. „Landið þarf á ríkisstjórn
að halda sem hefur burði til þess að bæta það
ástand sem nú ríkir,“ sagði hann. „ég hvet
alla til þess að líta til framtíðar og meta hver
ábyrgð þeirra er og hegða sér í samræmi við
það.“