Kjarninn - 26.12.2013, Blaðsíða 35
sept
ágú
júlí
júní
maí
apríl
mars
feb
jan
des
nóv
okt
11/13
Fréttir
Ársins
2013
október
erlentinnlent
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
starfsemi Bandaríkjanna
stöðvast
2. október 2013
Starfsemi mjög margra stofnana í Banda-
ríkjunum stöðvaðist vegna deilna á þinginu
um fjármál. Ástandið stóð heillengi á meðan
deilt var, en rótin að vandanum var óánægja
repúblikana með sjúkratryggingalög Obama
Bandaríkjaforseta.
Flóttamenn farast á sjó
9. október 2013
Yfir þrjú hundruð flóttamenn frá Sómalíu og
Erítreu fórust í sjóslysi á leið sinni til Ítalíu.
Slysið varð nærri eyjunni Lampedusa, en
þangað kemur gríðarlegur fjöldi flóttamanna
á ári hverju. Ráðamönnum var illa tekið þegar
þeir heimsóttu eyjuna, en ákveðið var að allir
þeir sem komust lífs fengju ítalskan ríkis-
borgararétt.
Fjárlagafrumvarpið kynnt
1. október 2013
Fyrsta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar var
lagt fram. Þar var gert ráð fyrir hallalausum
fjárlögum.
samið um ívilnanir vegna
stóriðju á Bakka
2. október 2013
tilkynnt var að ríkisstjórnin hefði gert
fjárfestingarsamning við þýska fyrirtækið
PCC um ívilnanir vegna byggingar kísilvers á
Bakka.
ono heiðruð
9. október 2013
Yoko Ono var útnefnd heiðursborgari Reykja-
víkur.
Hámarksrefsing fyrir
stungumann á egilsstöðum
23. október 2013
Friðrik Brynjar Friðriksson var dæmdur í 16
ára fangelsi fyrir að stinga nágranna sinn til
bana á Egilsstöðum.
það gera 10.000 krónur
24. október 2013
Nýr peningaseðill, tíu þúsund króna seðilinn,
var afhentur fjármálaráðherra.
Flugvöllurinn fer hvergi
25. október 2013
Samkomulag var kynnt um að Reykjavíkur-
flugvöllur yrði áfram í Vatnsmýri til ársins
2022. Fram að því ætti að kanna í þaula aðra
flugvallarkosti á höfuðborgarsvæðinu.
jón segir skilið við pólitík
30. október 2013
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, tilkynnti
að hann ætlaði ekki að bjóða sig aftur fram og
að Besti flokkur hans yrði lagður niður. Hluti
úr hópnum færðist við það yfir til Bjartrar
framtíðar.
þjóðarleiðtogar hleraðir
25. október 2013
Uppljóstrarnir Edwards Snowden héldu áfram
að valda vandræðum í samskiptum ríkja. Í
lok október var sagt frá því að símar ýmissa
þjóðarleiðtoga hefðu verið hleraðir. Þetta olli
mikilli reiði og skýringa var krafist af banda-
rískum stjórnvöldum.