Kjarninn - 26.12.2013, Blaðsíða 32
júní
maí
apríl
mars
feb
jan
okt
sept
des
ágú
nóv
júlí
08/13
Fréttir
Ársins
2013
júlí
erlentinnlent
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
morsi steypt af stóli
3. júlí 2013
Mohammed Morsi, forseta Egyptalands, var
steypt af stóli. Herinn tók völdin og felldi á
sama tíma hina nýju stjórnarskrá úr gildi.
Kolsvört skýrsla um íls
2. júlí 2013
Rannsóknarnefnd alþingis um Íbúðalánasjóð
skilar kolsvartri skýrslu um starfsemi hans.
Niðurstaða hennar var að mistök við rekstur
sjóðsins hefðu kostað íslensku þjóðina
hundruð milljarða króna. Ýmsar rangfærslur
voru í skýrslunni, sem leiddu til töluverðar
gagnrýni á hana.
Hlutabréf til starfsmanna
17. júlí 2013
tilkynnt var að um 1.400 starfsmenn
Landsbankans, sem er í ríkiseigu, fengju
afhent hlutabréf í bankanum að andvirði 4,7
milljarðar króna.
Fimm ár liðin frá hámarki
góðærisins á íslandi
19. júlí 2013
Sex ár voru liðin frá því að úrvalsvísitala
Kauphallarinnar fór yfir 9.000 stig í fyrsta
og eina skiptið. Það markaði hámark hins
svokallaða góðæris.
jóhannes í Bónus andast
27. júlí 2013
Jóhannes Jónsson, oftast kenndur við Bónus,
lést 72 ára að aldri.
aron velur Bandaríkin
29. júlí 2013
aron Jóhannsson tilkynnti að hann ætlaði sér
að spila fyrir bandaríska knattspyrnulands-
liðið frekar en það íslenska.
malala ávarpar sþ
12. júlí 2013
Malala Yousafzai varð heimsfræg eftir að
talibanar í Pakistan reyndu að myrða hana.
Hún hélt upp á sextán ára afmæli sitt með
því að ávarpa allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna. Hún hélt áfram að ferðast og halda
ávörp út árið og hlaut fjölda viðurkenninga
fyrir baráttu sína. Margir vildu að hún fengi
friðarverðlaun Nóbels en úr því varð ekki.
Zimmerman sýknaður
14. júlí 2013
George Zimmerman var sýknaður af ákæru
um að hafa myrt hinn sautján ára gamla
trayvon Martin. Martin var þeldökkur og mál-
ið vakti miklar tilfinningar hjá þeim sem töldu
að Zimmerman hefði sýnt kynþátta fordóma
þegar hann skaut Martin. Zimmerman var
sjálfboðaliði í nágrannavörslu þegar hann
sá Martin, sem var óvopnaður. Zimmerman
hélt því hins vegar fram að hann hafi skotið á
Martin í sjálfsvörn og slapp.
navalny látinn laus
19. júlí 2013
Stjornarandstæðingurinn alexei Navalny
var handtekinn og dæmdur en látinn laus
sólarhring síðar eftir gríðarleg mótmæli í
Rússlandi. Honum var leyft að bjóða sig fram
til borgarstjóra Moskvu, þar sem hann tapaði,
en var seinna á árinu dæmdur fyrir hærri rétti
til skilorðsbundinnar vistar, sem þýðir að hann
getur ekki boðið sig fram til neins embættis.
Mál Navalny beindi athygli að valda baráttunni
í Kreml, en viðbrögð stjórnvalda þóttu óreiðu-
kennd.
Breskur prins fæddur
23. júlí 2013
Breska konungsfjölskyldan stækkaði enn.
Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja,
kona hans, eignuðust son í lok júlí. Barnsins
hafði verið beðið með eftirvæntingu meðal
aðdáenda konungsfjölskyldunnar, en hann
fékk síðar nafnið Georg alexander Lúðvík.
manning dæmd fyrir leka
30. júlí 2013
Bradley Manning var dæmdur í 35 ára fangelsi
fyrir gagnalekann til Wikileaks. Manning var
ekki talinn hafa gerst sekur um að aðstoða
óvininn, sem var alvarlegasta ákæruatriðið, en
var dæmdur sekur að öðru leyti. Skömmu eftir
að dómurinn féll tilkynnti Manning að hún
væri kona og hygðist héðan af nota fornafnið
Chelsea.