Kjarninn - 26.12.2013, Qupperneq 25
jan
maí
okt
júní
sept
des
apríl
ágú
nóv
mars
júlí
feb
03/13
Fréttir
Ársins
2013
Febrúar
erlentinnlent
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
pistorius handtekinn fyrir
morð á kærustu
14. febrúar 2013
Ólympíuhlauparinn suður-afríski Oscar
Pistorius var handtekinn grunaður um að hafa
myrt kærustu sína, fyrirsætuna Reevu Steen-
kamp. Hann hélt því fram frá upphafi að hann
hefði talið Steenkamp vera innbrotsþjóf og því
hefði hann skotið hana til bana. Hún var inni
á baðherbergi við hlið svefnherbergis þeirra
og Pistorius skaut fjórum skotum í gegnum
hurðina. Þrjú skotanna hæfðu kærustuna og
saksóknari hefur því bent á að ásetningur
Pistorius hafi verið að drepa hvern þann sem
var inni í herberginu, hvort sem hann hafi talið
að hann væri að skjóta innbrotsþjóf eður ei.
Pistorius var sleppt gegn tryggingu og hóf
æfingar á ný um mitt árið. Réttarhöldin gegn
honum verða í mars 2014.
Hrossakjötsskandall vindur
upp á sig
4. febrúar 2013
Eftir að í ljós kom að hrossakjöt var að finna
í ýmsum tilbúnum kjötréttum á Írlandi og í
Bretlandi um miðjan janúar fór málið að vinda
upp á sig. Sífellt fleiri fyrirtæki flæktust í málið
og allan febrúar birtust nýjar fréttir af réttum
sem áttu að innihalda nautakjöt en gerðu það
ýmist í litlu magni eða alls ekki. Málið varð
tilefni rannsókna víða og hélt áfram að komast
í fréttir út árið.
síldardauði í Kolgrafafirði
1. febrúar 2013
Um 22 þúsund tonn af síld drápust í Kolgrafa-
firði vegna súrefnisskorts. Þetta var í annað
sinn á skömmum tíma sem þetta gerðist.
steingrímur og jóhanna segi
af sér í kjölfar icesave
1.–2. febrúar 2013
Fréttablaðið birti niðurstöðu tveggja skoðana-
kannana sem gerðar voru í kjölfar niðurstöðu
í icesave-málinu. Í annarri þeirra kom fram að
um 40 prósent landsmanna vildu að Stein-
grímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir,
leiðtogar ríkisstjórnarinnar, segðu af sér vegna
málsins. Í hinni kom fram að Framsóknar-
flokkurinn hefði bætt við sig gríðarlegu fylgi
í kjölfar dómsins og að það mældist yfir 20
prósentum.
Árni páll í stað jóhönnu
2. febrúar 2013
Árni Páll Árnason var kjörinn formaður
Samfylkingarinnar. Hann tók við af Jóhönnu
Sigurðardóttur.
Fimm ár fyrir morð
13. febrúar 2013
Átján ára piltur var dæmdur í fimm ára fang-
elsi fyrir morðtilræði. Hann stakk fyrrverandi
ástkonu föður síns ítrekað.
vantraust lagt fram og
dregið til baka
20. febrúar 2013
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, bar
fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Hann
dró hana til baka daginn eftir.
pétur beðinn um að hætta
28. febrúar 2013
tilkynnt var að Pétri Einarssyni, forstjóra
Straums, hefði verið gert að hætta störfum
vegna umfjöllunar um lok viðskipta hans í
Bretlandi sem talið var að gætu skaðað hags-
muni bankans.
páfi hættir störfum
11. febrúar 2013
Benedikt sextándi páfi tilkynnti að hann
hygðist láta af embætti í lok febrúarmánaðar.
Þetta var í fyrsta sinn í um sex hundruð ár
sem páfi lætur af embætti, en hann sagði
háan aldur valda því að hann gæti ekki sinnt
embættinu og guði nægilega vel.
saurgerlar í hamborgurum
17. febrúar 2013
Hrossakjötsskandall Evrópu tók á sig margar
myndir og varð til þess að alls kyns kjöt var
skoðað. Í Svíþjóð var til dæmis átján tonnum
af hamborgurum fargað eftir að í ljós kom að
saurgerlar fundust í þeim.
Fyrsti kvenforseti s-Kóreu
25. febrúar 2013
Park Geun-Hye varð fyrsti kvenforseti Suður-
Kóreu í febrúar. Þegar hún sór embættiseið
lofaði hún efnahagsbata fyrir alla íbúa
landsins.
Frakkar samþykkja hjóna-
bönd samkynhneigðra
12. febrúar 2013
Franska þingið samþykkti lög sem heimiluðu
samkynhneigðum pörum að ganga í hjóna-
band og ættleiða börn. Málið var mjög umdeilt
og fjölmargar kröfu- og mótmælagöngur voru
farnar til að styðja og mótmæla lögunum.
morðóður lögreglumaður
veginn
13. febrúar 2013
Fyrrverandi lögreglumaðurinn Christopher
Dorner myrti að minnsta kosti fjóra í því sem
hann sagði hefnd og stríð gegn lögreglunni
í Los angeles. Dorner var vikið frá störfum
árið 2008 vegna ofbeldisbrota en hann hélt
því fram að brottreksturinn væri vegna þess
að hann væri af afrískum uppruna. Hans var
leitað í tíu daga áður en sumarbústaður sem
hann dvaldi í var umkringdur. til skotbardaga
kom og eftir hann kviknaði í bústaðnum og
Dorner brann inni. Grunur lék á að lögreglu-
menn hefðu vísvitandi notað of mikið táragas
til að reyna að kveikja í.