Kjarninn - 26.12.2013, Síða 75
05/07 kjarninn tÖLVULEiKiR
BESTu LEiKiR áRSiNS 2013
Fyrir tölvuleikjaunnendur var árið 2013 ansi gott.
Mikið kom út af frábærum leikjum sem margir
hverjir höfðu eitthvað nýtt fram að færa. Fyrir utan
nýjan Grand theft auto-leik var þó mikið um fram-
haldsleiki enda framleiðendur duglegir að uppfæra
og endurnýta það sem gengið hefur vel. Þannig
koma alltaf út nýir Call of Duty- og FiFa-leikir og
enn og aftur kom út nýr assassins Creed-leikur.
Það sem gladdi hvað mest var þó fjöldinn allur af
leikjum sem komu með nýjar persónur og umhverfi
sem ekki var endurunnið úr áður útgefnu efni.
Óháðir framleiðendur gáfu líka út ansi marga góða
leiki sem oft fara framhjá hinum almenna spilara en
ekki er annað hægt en að mæla með.
Bestu leikir ársins í engri sérstakri röð eru þessir:
Grand Theft Auto V (PS3 og Xbox360)
tölvuheimurinn allur hefur beðið eftir þessum leik
enda fimm ár frá Grand theft auto iV. Rockstar olli
engum vonbrigðum og er leikurinn frábær í alla
staði. Persónan Franklin fer í söguannála tölvu-
leikjanna sem einhver súrasta persóna sem hægt
hefur verið að spila.
Last of uS (PS3)
Það er ansi langt síðan tölvuleikur hefur náð að
hafa þvílík áhrif á spilarann eins og Last of Us. Svo
stressaður gat maður orðið að helst gat ég bara
spilað hann í stuttum skorpum, fyrir aftan hverja
hurð eða næsta horn gat verið eitthvað óhugnan-
legt sem annaðhvort drap mig eða lét mig eyða
öllu sem ég hafði til að komast framhjá ógninni.
Persónur, söguþráður og grafík er öll til fyrirmyndar
og helst fannst mér eins og ég væri að taka þátt í
einhverju raunverulegu og þyrfti áfallahjálp á eftir.
Bioshock infinite (PC,PS3 og Xbox 360)
Þriðji Bioshock-leikurinn, sem miklar væntingar
voru gerðar til, kom loks út eftir tvær seinkanir og
mikla markaðsherferð. Bioshock-leikirnir eru ekki
þessir hefðbundnu fyrstu persónu skotleikir, mikið
er lagt upp úr söguþræðinum og umhverfinu öllu.
Bioshock infinite var af mörgum kallaður besti
leikur þessarar kynslóðar, hann mun eflaust eldast
vel og er skyldueign fyrir þá sem vilja spila aðeins
öðruvísi skotleik sem skilur eitthvað eftir sig, sem
fæstir skotleikir geta státað af.
Guacamelee (PS3 og PC)
tvívíður hopp og skopp leikur (platformer) undir
miklum áhrifum frá mexíkóskum sögum og menn-
ingu þar sem aðalsöguhetjan er glímukappi sem
berst við ill öfl og dauðann. Leikurinn er sem ferskur
blær í annars staðnaðri tegund tölvuleikja þar
sem lítið nýtt er í gangi fyrir utan mögulega Super
Mario- og Rayman-leikina.
Tomb Raider (PC, PS3 og Xbox 360)
aldrei hefði maður trúað því að Lara Croft
blessunin myndi dúkka upp aftur en hún gerði
það þó með látum. Hér er búið að hugsa Löru upp
á nýtt og fyrsti leikurinn af eflaust mörgum fékk
einróma lof gagnrýnenda. Þessar tólf klukkustundir
sem tekur að klára leikinn renna ljúflega í gegn og
menn ættu að glósa hjá sér hvernig hér er staðið að
endurgerð eldri leikja sem alltaf eru að koma út.
Brothers: A Tale of Two Sons (PC, PS3 og Xbox 360)
annar óháður leikur sem allir ættu að spila.
Mögulega ekki fyrir yngri unnendur tölvuleikja þar
sem maður stýrir tveimur bræðrum í einu í gegnum
fallegt umhverfi sem minnir á Fable-tölvuleikina.
Framvindan er hæg en maður verður aldrei þreyttur
á leiknum, hann spilast vel allt til enda.
Hotline Miami (PS3 og PC)
afturhvarf til gamalla tíma þar sem horft er niður á
heiminn í þessum stórskrýtna leik. Á símsvaranum
eru skrýtin skilaboð sem hvetja þig til ofbeldisfullra
verka. Hér er tölvugert ofbeldi og nóg af blóði í
þannig stíl að það mætti að halda að tölvuleikur
frá 1993 hefði verið bónaður í háskerpu og gefinn
út upp á nýtt. Minnir á fyrstu Grand theft auto
leikina en samt ekki, heilalaus skemmtun fyrir allan
peninginn.