Kjarninn - 29.05.2014, Síða 20
07/12 Viðtal
myndin væri um þrjár sögur. Þriðja persónan, bankamaðurinn,
fæddist eiginlega á þessum fyrsta fundi okkar.“
Eftir fundinn hélt Birgir heim á leið, settist við tölvuna og
hóf skrif. „Prófraunin mín var fléttan. Ég skrifaði hugmynd að
henni og sendi Badda. Hann veðraðist allur upp og sendi mér
til baka sínar pælingar, en þá var strax orðið ljóst að það var
komin saga.“
Birgir segist hafa orðið þess fullviss að hann og Baldvin
væru með eitthvað í höndunum strax á fyrsta fundinum. „Það
var svo mikið flæði, og þannig hefur það alltaf verið þegar við
setjumst niður. Stanslaust flæði. Það hefur aldrei vafist fyrir
okkur hvað við eigum að gera næst, það hefur alltaf legið fyrir
hvað við eigum að gera næst. Það var bara þannig strax á
þessum fyrsta fundi. Enda gerðist allt mjög hratt eftir það. Þessi
fundur var í lok desember og handritið var tilbúið í lok maí og
við seldum það Kisa productions þremur dögum síðar.“
Birgir segir handritið hafa tekið tölu-
verðum breytingum í framleiðsluferlinu.
Sumir hlutir hafi ekki gengið upp tæknilega
og svo hafi þeir félagar kastað á milli sín
hugmyndum, enda hafi þeir verið gagn-
teknir af sögunni. „Baddi lagði grunn-
línurnar á fyrsta degi. Við myndum gera
handritið saman og ekki væri hægt að gera
breytingar á því nema við myndum sam-
þykkja báðir. En þegar tökur á myndinni
hæfust myndi hann ráða og ég vera meira
til ráðgjafar.“
Birgir tók mikinn og virkan þátt í gerð myndarinnar.
Hann mætti oft á tökustað og var til ráðgjafar og fékk að sjá
senur mjög reglulega sem höfðu verið teknar upp. „Ég hringdi
líka oft í Badda og sagði að við yrðum að gera hlutina svona
og hinsegin. Þá var það hans ákvörðun hvort hann hlustaði
eða ekki, þar var skilningur okkar á milli. Það breyttust tvær
eða þrjár senur degi fyrir tökur, af því að annaðhvort hann
eða ég, eða leikararnir, komu með ábendingar um að gera
eitthvað öðruvísi. Þetta var mjög lífrænt ferli, sagan mótaðist
„Þetta var mjög lífrænt ferli,
sagan mótaðist fram á síðasta
tökudag og það er gaman að
lesa upprunalega handritið
núna og bera það saman við
myndina því það er svo margt
sem breyttist í ferlinu.“