Kjarninn - 29.05.2014, Side 22
08/12 Viðtal
fram á síðasta tökudag og það er gaman að lesa upprunalega
handritið núna og bera það saman við myndina því það er svo
margt sem breyttist í ferlinu.“
Dreymdi um svona viðtökur sem krakki
Þrátt fyrir velgengni Vonarstrætis var Birgir langt í frá
sannfærður um að myndin ætti eftir að slá í gegn. „Nei, nei,
nei, nei, alls ekki. En, það er kannski svolítið sjálfselskulegt
að segja það, mér var bara svolítið sama. Ég var búinn að sjá
myndina og var ánægður með hana og var sáttur. Það skiptir
engu máli fyrir mig fjárhagslega hvort hún gangi vel eða ekki,
það er búið að borga handritshöfundunum, en maður náttúru-
lega vildi og vonaði að henni yrði vel tekið. Ég vildi samt fyrst
og fremst að hópurinn sem kom að gerð Vonarstrætis yrði
glaður með hana.“
Spurður hvort þeir sem komu að gerð Vonarstrætis hafi
verið sannfærðir um að myndin ætti eftir að slá í gegn segir
Birgir svo ekki hafa verið. „Ég verð
eiginlega að svara þessu neitandi. Ég
vil ekki nefna nein nöfn en það voru
alveg leikarar í stórum hlutverkum sem
voru efins um sína frammistöðu fram
að frumsýningu. Þeir voru ekki sann-
færðir um að þeir hefðu staðið sig nógu
vel. Maður veit nefnilega aldrei hvernig
viðtökurnar verða. Þegar maður til
dæmis semur lag, þá getur maður
farið upp á svið daginn eftir og fengið
strax viðbrögð við því sem maður var
að semja. Með bíómynd, þá vinnur
þú í þrjú ár áður en þú færð fyrstu
viðbrögðin. En það höfðu allir trú á
sögunni og gáfu sig alla í listaverkið.
Það er krafturinn hans Badda, hann
nær að sannfæra fólk um að það geti
gert mjög vel. Hann sættir sig ekki við
hálfkák heldur krefst þess að þú leggir
Glaður og þakklátur
Biggi kveðst afar glaður og
þakklátur eftir viðtökurnar
sem Vonarstræti hefur fengið.