Kjarninn - 29.05.2014, Page 97
02/03 almannatenGSl
dómi að umfjöllun fjölmiðla um ásakanir kvennanna á
hendur Gunnari hafi lagt líf hans í rúst. „Þetta gerðist á
einni nóttu og það hrundi allt hjá honum,“ sagði Einar Hugi
jafnframt og bætti við: „Líf hans var lagt í rúst. Ekki bara
nóg með það, heldur missti stefnandi stóran hluta vina og
kunningjahópsins. Málið hefur reynst honum eins erfitt og
hugsast getur.“ Þá hafi Gunnar „hrökklast úr ævistarfi sínu,
sem hann hafði gegnt í aldarfjórðung“. (DV.is)
Hér verður ekki lagt mat á sannleiksgildi þessara frá-
sagna en það er hins vegar ákveðin kaldhæðni fólgin í því að
umfjöllun fjölmiðla um meiðyrðamálið og vitnisburð fólks
sem hefur verið leitt fyrir dóminn er einhvern veginn miklu
nákvæmari og grafískari en umfjöllun Pressunar um meint
kynferðisbrot var nokkurn tíma. Undanfarna daga höfum
við séð fyrirsagnir í fjölmiðlum á borð við „Hann talar um
að geirvörturnar séu brúnar og vildi fá smakk“ (Visir.is) og
„Hann er siðblindur raðpedófíll sem er búinn að misnota
fullt af fólki í skjóli trúarinnar“ (DV.is). Sannarlega ekki
fyrirsagnir sem líklegar eru til að bæta mannorð og ímynd
Gunnars og það hafa sennilega fáir þjóðþekktir menn á
undanförnum árum komið jafn illa út í umfjöllun fjölmiðla
og Gunnar í þessu máli. Og þá má spyrja, hefði hann betur
setið heima og sleppt því að höfða þetta meiðyrðamál? Hefði
honum átt að vera ljóst að áhugi fjölmiðla á málinu yrði
mikill og umfjöllun um málið gæti hugsanlega verið mjög
skaðleg fyrir hann?
Nú veit ég ekki hvort Gunnar hafi fengið ráðgjöf frá
almannatengli áður en hann höfðaði þetta meiðyrðamál
en flestir hefðu sennilega ráðlagt honum að skoða málið
vandlega frá öllum hliðum áður en hann tæki ákvörðun.
Áhættustjórnun er nefnilega þekkt víðar en í fjármála-
heiminum og er mikið notuð af almannatenglum til þess að
hjálpa þeim að meta aðstæður áður en farið er í aðgerðir.
Áhættustjórnununar ferlið miðar að því að finna áhættur,
greina þær og meta og ákveða aðgerðir til þess minnka
áhættur, eyða þeim eða einfaldlega sætta sig við þær. Til þess
að meta aðstæður hefði Gunnar getað spurt sig nokkurra
„Hann talar um
að geirvörturnar
séu brúnar og
vildi fá smakk“