Boðberi K.Þ. - 01.06.1992, Side 9
fjöldi samsvarar því að á Reykjavíkursvæðinu
væru um 170 bensínstöðvar, en þær eru tæplega
40 og þykir nóg.
Annað sem valdið hefur okkur skaða í þessu
sambandi er samkepopnin á matvörumarkað-
num. Eftir því sem mér skilst var tilkoma Kjara-
bótar á sínum tíma kærkomin fyrir Húsvíkinga og
leiddi til lækkunar á vöruverði. Ekki ætla ég að
véfengja þá skoðun. Hitt er alveg ljóst að Kjara-
bót hvatti kaupfélagið til að gera betur og það er
einmitt jákvæði þáttur samkeppninnar. Hins
vegar held ég að þetta hafi engu breytt þegar til
lengdar lét. Bættar samgöngur hafa fært næst
stærsta markaðssvæði landsins, Eyjafjarðarsvæð-
ið, nær okkur og það eitt og sér hefur þrýst á kaup-
félagið að gera betur af mun meiri krafti en nokk-
um tíma Kjarabót gat gert eða hefur burði til.
Annars er það umhugsunarvert í ljósi nýjustu
tíðinda af málefnum Kjarabótar hver það sé sem
greiðir hina margrómuðu kjarabót sem Húsvík-
ingum og nærsveitamönnum var færð á sínum
tíma með starfrækslu þeirrar verslunar. Herkost-
naðurinn er, svo grátlegt sem það annars er,
greiddur að stómm hlut af þeim sjálfum þegar
upp er staðið, t.d. í formi hærri útsvara og orku-
kostnaðar.
Það er ljóst að við verðum að stefna að því að
draga verulega úr því frumskógarlögmáli sem
virðist ráða í okkar viðskiptalífi, ekki bara á
landsvísu, heldur ekki síður hér heima fyrir. Heil-
brigður atvinnurekstur getur aldrei þrifist nema
að menn virði ákveðnar grundvallarreglur og í
þeim efnum á hið opinbera að ganga fram fyrir
skjöldu með góðu fordæmi og skapa atvinnulífinu
eðlilegt umhverfi sem byggist á jafnri aðstöðu,
ekki bara einstakra atvinnugreina, heldur ekki
síður landshluta.
Ragnar Jóhann Jónsson
wP* Naustagil
Odýru gasgrillin eru komin
Olíufélagið h/f
9