Þjóðhagsreikningar 1973-1984 - 01.07.1985, Blaðsíða 33
-31-
uppgjörinu. Hægt væri að sýna tvær hagvaxtarraðir á þessu
ti'mabili með li1<um hætti og gert er hér að ofan. Framvegis
verður sli1<t þó ekki gert, heldur verður niðurstöðum
ráðstöfunaruppgjörsins fylgt á sama hátt og gert var þegar
fjallað var um verga landsframleiðslu á verðlagi hvers árs
fyrr i' þessari skýrslu.
Hið nýja þjóðhagsreikningakerfi Sameinuðu þjóðanna
(SNA), sem nú hefur verið tekið upp frá og með árinu 1980,
hefur i' för með sér nokkra breytingu frá endurskoðuðu
uppgjöri samkvæmt eldra kerfi. Hér er fyrst og fremst um
að ræða breytingar á meðferð útgjalda hins opinbera til
heilbrigðismála, en þessi útgjöld eru nú talin til samneyslu
i' stað einkaneyslu áður. Jafnframt hafa verið gerðar ýmsar
aðrar minni breytingar sem tengjast upptöku hins nýja
kerfis, eins og nánar hefur verið lýst hér að framan. En
einnig voru gerðar aðrar breytingar samhliða upptöku hins
nýja kerfis og sem raunar tengdust þvi' ekki. Hér er átt
við endurskoðun á rúmmetraverði bygginga i' vinnslu talna um
fjármunamyndun. Nánar er fjallað um þetta atriði i' grein
3.4 hér að framan. Að teknu tilliti til allra þessara
breytinga var niðurstaðan sú, að landsframleiðslan á árinu
1980 hækkar um rúm 2% frá endurskoðuðum tölum frá fyrra
uppgjöri og enn meira, eða um 12%, frá fyrri áætlunum fyrir
árið 1980.
Jafnhliða þessari hækkun á heildarstærðum breytast
innbyrðis hlutföll ráðstöfunaruppgjörsins á þann hátt sem
lýst er i' eftirfarandi yfirliti: