Þjóðhagsreikningar 1973-1984 - 01.07.1985, Qupperneq 57
55
VIÐAUKI 1
Skilgreiningar og skýringar á helstu hugtökum
r þjóðhagsreikningum.
Hér verða helstu hugtök þjóðhagsreikninga skýrð og
skilgreind i' mjög stuttu máli, og er þá f y Igt
þjóðhagsreikningakerfi Sameinuðu þjóðanna (SNA). Heiti
sumra þessara hugtaka hafa ekki unnið sér fastan sess á
islensku, og er enskt heiti þessara hugtaka þvi' jafnframt
gefið. Einnig má visa til viðauka 2, en þar er birt
yfirlit yfir ensk, dönsk og i'slensk heiti þessara hugtaka.
Hugtökunum er hér raðað i' stafrófsröð.
1) Aðföng (Intermediate consumption). Með aðföngum er
átt við kaup fyrirtækja eða atvinnugreina á hverskonar
hráefnum eða rekstrarvörum frá innlendum fyrirtækjum
eða erlendis frá. Aðföngin eru verðlögð á
markaðsverði (purchasers’ value). Sérstök athygli
skal vakin á þvi', að aðstöðu- og iðnlánasjóðsgjöld og
fasteignagjöld voru áður talin til aðfanga, en eru nú
talin til óbeinna skatta. Aftur á móti er leiga nú
talin til aðfanga, en var áður hluti af vinnsluvirði.
Breytingar þessar, sem fyrst voru teknar upp i'
þjóðhagsreikningaskýrslu nr. 1 og sFðar i'
atvinnuvegaskýrslum 1979, eru gerðar til samræmis við
þjóðhagsreikningakerfi Sameinuðu þjóðanna (SNA).
2) Afskriftir (Consumption of fixed capital) er eðlileg
úrelding og slit eignfærðra fjármuna vegna notkunar
þeirra i' framleiðslustarfseminni. Ofyrirsjáanleg
úrelding, t.d. vegna tækniframfara, telst ekki til
afskrifta.
3) Birgðabreytingar (Increase in stocks). X
þjóðhagsreikningakerfi Sameinuðu þjóðanna er til þess
ætlast, að birgðabreytingar taki til allra breytinga á
magni hráefna, hálfunninna og fullunninna vara i' eigu
atvinnugreinanna. Eins og nú háttar til eru yfirleitt
aðeins teknar með i' i'slensku þjóðhagsreikningunum
breytingar útflutningsvörubirgða.
4) Einkaneysla (Private final consumption expenditure) er
útgjöld heimilanna til kaupa á hvers konar neysluvöru,
jafnt óvaranlegri sem varanlegri. Einu útgjöld
heimilanna til kaupa á vöru og þjónustu, sem ekki
teljast til einkaneyslu, eru útgjöld til smi'ði og kaupa