Þjóðhagsreikningar 1973-1984 - 01.07.1985, Blaðsíða 58
56
á nýju íbúðarhúsnæði, en þessi útgjöld teljast til
fjármunamyndunar.
5) Fjármunamyndun (Gross fixed capital formation) er
eignfærð útgjöld fyrirtækja og opinberra aðila, svo og
útgjöld við smi'ði itiúðarhúsnæðis. Fjármunamyndun er
jafnan færð verg, eða brúttó, það er áður en dregin er
frá áætluð fjárhæð afskrifta vegna slits og úreldingar.
6) Framleiðslustyrkir (Subsidies). Með
framleiðslustyrkjum er átt við reglubundin framlög
hins opinbera til einkafyrirtækja eða opinberra
fyrirtækja, þegar tilgangur framlaganna er augljóslega
sá að halda verði á viðkomandi vöru eða þjónustu undir
sannvirði. Dæmi um framleiðslustyrki eru
niðurgreiðslur búvöruverðs og framlög Reykjavil<urborgar
til þess að jafna rekstrarhalla Strætisvagna
Reykjavi"kur.
7) Framleiðsluvirði (Gross output). Hér er átt við
verðmæti þeirrar vöru eða þjónustu, sem framleidd er á
árinu. Verðlagningin miðast við verð frá framleiðanda
(producers’ value), sjá skilgreiningu þess hugtaks
si'ðar. Framleiðsluvirði verslunargreina er mismunur
vörusölu og vörukaupa. Þessi mismunur er oft nefndur
brúttóhagnaður.
8) Innflutningur (Imports of goods and services), sjá
útflutningur, tölulið 15 hér á eftir.
9) Innlendar þáttatekjur (Domestic factor income) eru laun
og tengd gjöld að viðbættum rekstrarafgangi af
starfsemi innan lands.
10) Laun og launatengd gjöld (Compensation of employees).
Hér er átt við greiðslur til launþega fyrir þátttöku
þeirra i' atvinnustarfseminni, þar með taldar greiðsiur
i' formi hlunninda, sem vinnuveitandi lætur launþega i'
té, fri'tt eða með mikilli niðurgreiðslu og koma
launþega ótvi'rætt til góða sem neytanda. Hér eru
ennfremur meðtaldar greiðslur vinnuveitenda i'
li'feyrissjóði launþega, slysa- og
atvinnuleysistryggingagjöld, greiðslur i' styrktar- og
sjúkrasjóði o.fl. Launaskattur telst þó ekki hér,
heldur færist hann sem óbeinn skattur.
11) Obeinir skattar (Indirect taxes) eru skattar lagðir á
atvinnustarfsemina vegna framleiðslu, sölu eða kaupa
rekstrarnauðsynja. Gert er ráð fyrir þvi', að þessir
skattar komi fram i' verði þeirrar vöru sem framleidd