Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Blaðsíða 6
stóð nú kyrr á sama stað og gat sig ekki hreyft, eins og hefði hann verið
lostinn.
Uppglenntum augum liorfði hann á þennan bogna og hrjáða mann,
án þess að hinn tæki eftir honum, þar sem hann horfði stöðugt niður
fyrir fætur sér.
Einhver hlutur, líkt og bolti, kom þjótandi yfir girðingu skólalóðar-
innar, og lenti fyrir framan fætur hjálparvana krypplingsins. Honum
hafði ef til vill ekki verið kastað af ásettu ráði í þessa átt, en hafði
svona af tilviljun í leiknum lent þangað. En það, sem nú skeði, fékk
Kelloki til að roðna af skömm og blygðun, þótt allt þetta skeði svo
skyndilega, að eftir á gat hann !tæplega áttað sig á því. Veiki maðurinn
reiddi upp staf sinn og seildist svo með honum eftir boltanum, og þegar
hann hafði dregið hann nógu langt til sín, beygði hann sig eftiv hon-
um. Það var eins og hann væri að hefja á loft þunga byrði, en ekki
ónýtan boltaræfil, sem loftið var löngu farið úr.
„Pápi, þú finnur þó til,“ heyrðist í sama bili björt drengsrödd frá
skólalóðinni. Fyrst starði krypplingurinn á þennan gúmmíhlut í hendi
sér, síðan kastaði hann honum til baka yfir girðinguna, eða réttara sagt,
hann ætlaði að gera það, en þegar handleggurnn gerði kasthreyfing-
una, rak hann skyndilega upp kvalaóp og féll saman. Nú heyrðust óp
frá skólalóðinni: „Lítið bara á, fellur saman eins og blautur poki.“
„Nei,“ hrópaði annar framhleypinn, „það hefur einhver stungið í
hann nál og loftið farið út.“
í þessum ys og hávaða heyrðist varla grátandi rödd tíu ára hrokkin-
hærðs svertingjadrengs:
„Pabbi — pabbil“ kallaði hann gjallandi, „bíddu, ég hjálpa þérl“
En hópurinn virtist nú vera orðinn að viltum dýrum. Margir hand-
leggir gripu nú svertingjadrenginn og héldu honum fast. Hann reyndi
örvilnaður að losa sig og kallaði aftur og aftur á föður sinn.
„Bíddu bara!“ hrópaði einn hinna gáskafullu drengja, „við náum
bara snöggvast í hjólhestapumpu handa þér, svo að þú getir blásið þann
gamla aftur upp.“
Böm geta stundum verið mjög grimm.
Gamli negrinn, Sam Woorker, þorði oft alls ekki út á götur smá-
borgarinnar Adalko, af því að oftast var hann ekki kominn nema nokk-
6
Nýtt S O S