Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Blaðsíða 15

Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Blaðsíða 15
verið sjáífur með? Sennilega. Fyrir eitthvað hafði hann fengið öll þessi heiðursmerki. Kelloki ætlaði nú að halda frásögninni áfram. En hið litla hlé, sem hann hafði gert, til að nota einu sinni vasaklútinn sinn, hafði nægt litlu áheyrendunum hans til að lyfta fingrununr á loft, sem merkti, að þeir höfðu spurningu fram að bera. „Og skemmdi áreksturinn ekki Monaghan sjálfan?“ vildi einn fá að vita. „Ekki mikð,“ var svarið. „Sjáið þið til, svona beitisnekkjur eru mjög sterklega byggðar.“ „Og áhöfnin?" vildi annar snáði fá að vita. „Voru ekki margir særðir meðan áhafnarinnar?“ „Nú, ja. Margur hefur upplifað högg,“ játaði Kelloki, „en flestir þeirra sluppu nú nokkurn veginn sæmilega. En því ætlaði ég nú að halda á- fram að segja frá. Það hafði að minnsta kosti ekki farið vel fyrir einum þeirra. Það var fyrsti stýrimaður á Monaghan. Hann hafði komið undir þilfar fyrir hálfri klukkustund og ætlaði að fá sér tesopa, þegar bjöllurnar allt í einu gullu. Hann reyndi eins og aðrir að komast svo fljótt sem auðið var upp á þilfar, og hann kornst líka alla leið að brúaruppgöngunni. Og einmitt þegar liann var að klifra upp síðustu þrepin kom höggið. Hann reyndi að halda sér fast, en af einhverjum orsökum tókst honum það ekki, svo hann féll og kom niður á brynplötur efra þilfarsins. En þar var stór járnkrókur, sem notaður var til að festa skotfæravinduna fyrir bógfall- byssurnar. Þessi krókur varð orsök allrar óhamingjunnar. Fyrsti stýri- maður féll niður á krókinn, höggið var þungt og við það marðist lifrin illa svo hann lá þarna nreðvitundarlaus. Auðvitað var þessu strax veitt athygli. Menn lyftu slasaða nranninum varlega upp og báru hann undir þilfar til káetu. En ástandið var alvar- legt. Monhagan var ekki svo stórt skip, að það gæti veitt sér þann munað að hafa um borð eigin lækni. Vissulega voru nógu margir læknar í flotanum, og þar voru mörg nýmóðins sjúkraskip, með svo vönduðum skuðstofum, að vandað sjúkrahús í landi gat ekki betra haft. En nú var flotinn í orrustu, og það var ekki hugsanlegt að takast mætti að ná strax til læknis af einhverju stærra skipi, eða flytja slasaða manninn yfir í annað skip. Nokkrir hjúkrunarmenn fóru að stumra yfir fyrsta stýrimanni. En þar Nýtt S O S

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.