Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1930, Blaðsíða 96
574
Kviksettur.
[Stefnir
COLGATES
hrcínlætísvörar era heimsþektar.
Rakíð yðar með IICÍldSÖlllMrSíðÍr Bars-tíð tennurnar með
Colgates rak-cremí ° Colgates tannpasta.
H. ÓLAFSSON & BERNHÖFT.
skip, en bogabrýr voru þandar
milli bakkanna, og eftir þeim óku
mjallhvítir vagnar, er fluttu mjólk
til hinnar miklu heimsborgar —
Lundúna. — í Putney var ein
gata, þar sem ekkert var annað
en búðir, en enginn vildi sofa í
þeirri götu sakir vagnaumferðar.
Á kvöldin glóði gata þessi í hundr-
uðum Ijósa. Þar var leikhús, sam-
komuhús, sönghöll, brugghús og
bókasafn. Þar var og tehús, en
ekki trúði Alice því samt, að te-
ið væri egta kínverskt. Alice Chal-
lice átti heima á Wertersvegi, og
lá sú gata vel við fiskbúðinni í
Hástræti. I þeirri fiskbúð var
hægt að fá kola, sem ekki var eins
og skóbót, en náttúrlega var ekk-
ert vit að kaupa hann á mánu-
dagsmorgnana. í Putney var hægt
að eiga heima óáreittur af allri
veröldinni. Þar var hægt að búa
í litlu húsi, sem maður átti sjálf-
ur, hafa lítið um sig, en líða á-
gætlega, vita um verð á öllum
nauðsynjum og þekkja hvort var-
an var góð eða ekki, þekkja líka
mennina, og þeirra háttu og vera
fús að fyrirgefa þeim yfirsjón-
irnar og skilja allt. Vinnukonu var
bezt að hafa ekki, því að vinnu-
konur geta verið blendnar og
gerðu ekki verkin eins vel og mað-
ur sjálfur. Það var gott að fá
hreingerningakonu við og við. Og