Sagnir - 01.04.1988, Side 85
Rjómabú
Baugsstaðabúið
Amarbæli - Sandvík
Rjómabúið í Arnarbæli var stofnað
1902 og starfaði þar til 1910 en var
þá flutt að Sandvík í Sandvíkur-
hreppi og starfaði þar til 1928.
Þegar rjómabúið í Arnarbæli tók
til starfa skrifuðu 14 félagsmenn
undir lög þess. Tveir þeirra voru úr
Sandvíkurhreppi en allir hinir voru
úr Ölfusi. Þetta átti eftir að breytast
og bændum úr Sandvíkurhreppi
fjölgaði mjög á meðan Ölfusingum í
búinu fækkaði.
Á tímum smjörsölunnar til Bret-
lands sáu tveir til fimm aðilar um
útflutning eða keyptu smjör af búinu
til útflutnings og jafnmargir aðilar
keyptu smjör fyrir innanlandsmark-
að. Þegar útflutningsbannið var sett
á styrjaldarárunum neyddist rjóma-
búið til að selja smjörið innanlands
og viðskiptamönnum, þ.e. kaup-
mönnum sem keyptu smjör, fjölgaði
mjög, sérstaklega árið 1916. Þá fór
einnig að bera á því að félagsmenn
færu að selja smjör utan rjómabús-
ins og var þeim veitt tiltal af rjóma-
bússtjórninni. Um og eftir stríðið
má ætla að félagar búsins hafi verið
farnir að efast um að rekstur búsins
væri þeim í hag. Þess er getið í
fundargerðum að borið hafi á efa-
semdum um gildi þess að leggja
rjómann inn í rjómabúið en samt
voru bændur samhuga um að halda
áfram starfseminni. Einna gleggst
kemur þetta fram í fundargerð frá 5.
nóvember 1920. Um starfsemina
næstkomandi ár var samþykkt þessi
lillaga: „Fundurinn ákveður að
halda áfram starfsemi búsins næsta
ár með sama fyrirkomulagi og áður,
nema fjelags-stjórnin sjái fjelags-
mönnum hag í að koma mjólk sinni
í peninga á annan hátt." En ekki var
rjómabúið lagt niður þá.
Félagsmönnum Árnarbælisbús-
ins úr Sandvíkurhreppi fjölgaði mik-
ið á 1. áratugnum. Sandvíkingar
gerðu þá kröfu árið 1904 að rjóma-
búið borgaði flutningskostnaðinn
yfir Ölfusá sem síðan var gert. Ekki
voru neinar fundargerðir í fundar-
gerðabókinni frá 1907 til 1912 en þá
var rjómabúið komið að Sandvík.
Arnarbælisbúið hafði verið lagt nið-
ur og nýtt bú í Sandvík stofnað á
grunni þess. Ölfusingar fóru í rjóma-
búið á Yxnalæk. Arnarbælisbúinu
var skipt á milli Yxnalækjarbúsins
og Sandvíkurbúsins. Var skuldum
og eignum skipt í hlutfalli við fjölda
Tilvísanir
1 Kafli þessi er að mestu unninn úr
fundargerðarbók Arnarbælis- og
Sandvíkurrjómabús sem nær yfir allan
þann tíma sem það starfaði. Einnig
var stuðst við innvigtarbækur og önn-
ur skjöl sem búið varðaði. Skjöl þessi
og fundargerðabók eru í vörslu Páls
félagsmanna á hvorum stað. Sand-
víkurbúið fékk meginhluta áhalda
Arnarbælisbúsins í sinn hlut, en
Ölfusingar fengu peninga sem feng-
ust á uppboði á öðrum munum Arn-
arbælisbúsins.
Sigurður Sigurðsson sagði eftir-
farandi um hið nýstofnaða rjómabú
í Sandvík:
Þetta bú er vafalaust langvandað-
asta búið, sem stofnað hefir
verið. Skálinn er steinsteyptur, og
öll áhöld af beztu gerð. Það er
rekið með mótorafli. Stofnkostn-
aður þess mun hafa orðið um
5000 kr.2
Félagsmenn sem rituðu undir lög
rjómabúsins í Sandvík voru 21
talsins. Árið 1928 voru innleggjend-
ur 19. Þeirvoru aðeins 15 árið 1926.
Engar tölur eru til um fjölda fé-
lagsmanna á styrjaldarárunum.
Lítið er vitað hvað rjómabústýrur
fengu í kaup. Aðeins fyrsta starfsár-
ið er þess getið í sérstökum lið í árs-
reikningi en þá fengu þær 120 kr.
yfir sumarið.
Engar aðalfundagerðir eru skráð-
ar í fundargerðabók búsins frá 1920
svo að óljóst er um starfsemina frá
þeim tíma.
Árið 1920 fóru bændur í Sandvík-
urhreppi að senda mjólk til Reykja-
víkur. Einnig sendu þeir mjólk að
sjávarsíðunni.'5 Þetta þýddi að starf-
semi búsins var ekki nema brot af
því sem var.
Ársreikningar voru gerðirtil 1927.
Starfaði búið sumarið 1928 en ári
síðar tók Mjólkurbú Flóamanna til
starfa.
Lýðssonar í Litlu-Sandvík.
2 Sigurður Sigurðsson: „Starfsemi
smjörbúanna árin 1900-1910.“ Bún-
aðarritið 26. árg., 126.
3 Páll Lýðsson: „Sandvíkurhreppur"
Sunnlenskar byggðir II. Self. 1981,
316.
Arnarbæli