Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1935, Qupperneq 11
Læknaféiag íslands,
Stjórn félag'sins skipa nú dr. med. Halldór Hansen formaður,
M. Pétursson og M. Júi. Magnús meðstjórnendur.
Á læknaþingi 1933 var árgjald fært niður í 50 kr. íyrir eldri
lækna og 30 kr. fyrir unga lækna og kandídata (fyrstu 5 árin eftir
próf). Af þessu gjaldi renna 25 kr. til Ekknasjóðs, en Læknablaðið
hefir eins og áður sérstakan reikning.
Tilgangur L. í. er að efla samheldni íslenzkra lækna, svo að þeir
með sameinuðum kröftum geti unnið að hag stéttarinnar og heil-
brigðismálum iandsins. Heldur félagið áriega þing í Rvík, sem því
miður er alltof lítið sókt af læknum utan af landi. Gera iæknar sér
oflítið far um að haga ferðum sínum til Rvíkur þannig, að þeir séu
hér á þeim tíma, sem læknaþing er haidið. Þó hefir stjórn félagsins
reynt að sjá svo tii, að það væri haldið á þeim tíma, er samgöngur
eru sem greiðastar og ferðir hagkvæmastar fram og aftur sem víð-
ast að af landinu. Hin síðari ár hefir stjórnin einnig reynt að hæna
lækna að þinginu með því að sæta færi að fá hér flutta fyrirlestra
af þekktum erlendum vísindamönnum, auk þess sem alltaf eru fiutt-
ir á því einn eða fleiri fyrirlestrar af ísl. læknum. Erlendir gestir
kosta ætíð nokkurt fé, þó þeir sjálfir fái ekkert fyrir að heimsækja
okkur. Öil félagsstarfsemi dregur lika nokkuð til sín, svo að fyrsta
skilyrðið til þess, að íélagið geti starfað með fjöri og árangri er, að
félagar standi greiðlega skil á gjöldum til félagsins, en á því er
allmikill misbrestur.
Þegar hugsað er út í það, að verkamenn og iðnaðarmenn eru
svo þjálfaðir orðnir í félagssamtökum og skilningsglöggir á nauð-
syn þeirra, að þeir greiða 1—2 kr. á viku í félagsgjöld, þá er það
kaldhæðni og hún grátleg, að ekki skuli vera hægt að þroska svo
samheldni ísl. læknastéttarinnar, að hver læknir líti á það sem fyrstu
skyldu sína bæði að vera í félaginu og að standa í skilum með fé-
lagsgjöld sín. En á hvorutveggju er allmikill misbrestur.
Um störf L. í. er ekki ástæða til að fjölyrða. Um þau má lesa
í skýrslu stjórnarinnar, sem prentuð er í Lbl. Þó er ástæða til að
minna á samrannsóknirnar, sem í bili að minnsta kosti eru dottnar
niður. Þörf hugmynd, sem áreiðanlega á eftir að rísa upp aftur.
Aðeins ein nefnd er starfandi, berklaverndarnefnd. Eru í henni
próf. Sig. Magnússon, dr. med. H. Hansen og próf. N. Dungal.
Codex ethicns er í Árbókum 1931—1933.
Lög L. í. eru prentuð í sömu Árbókum.