Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1935, Blaðsíða 12
12
Læknaféiag Reykjavíkur.
Stofnað 18. okt. 1909.
Stjórn þess skipa nú: Helgi Tómasson dr. med., Ólafur Helga-
son og Hannes Guðmundsson.
Fastur fundartími er 2. mánudagskvöld í hverjum mánuði frá
október til maí. Marzfundurinn er aðalfundur.
Fundarstaður er að Hótel Borg, herb. nr. 101—103. Utanbæj-
arlæknar eru vel séðir gestir.
Inntökuskilyrði er m. a. að vera félagi í Læknafélagi íslands.
Að öðru leyti vísast til félagslaga í Árbókum L. í. 1931—’33.
LæknablaSið. Félagið gefur út Læknablaðið. Ritstjórn þess
skipa nú: Helgi Tómasson, Níels P. Dungal og Lárus Einarsson.
Áskrifendaverð er kr. 25 á ári og borgist til Rannsóknarstofu Há-
skólans í byrjun hvers árgangs (fyrirfram).
Ekknasjóður. Félagið stofnaði „Styrktarsjóð ekkna og mun-
aðarlausra barna íslenzkra lækna“ árið 1925, og tók sjóðurinn til
starfa á nýári 1926. Hefir félagið lagt sjóðnum í byrjun kr. 1000 og
auk þess skuldbundið sig til að leggja honum 1/3 af tekjum sínum
i 10 ár. Félagsmenn L. I. greiða sjóðnum kr. 25 hver á ári (en í
L. í. eru allir félagar L. R. skv. framanskráðu).
Alls hafa verið veittar úr sjóðnum, síðan hann var stofnaður,
kr. 7700 skv. ákvæðum skipulagsskrár sjóðsins, en hana er að finna
í Árbókum L. í. 1931—’33. Sjóðurinn er nú allur kr. 6217,75, þar af
í stofnsjóði kr. 6149,34. Sjóðurinn hefir ekki enn eignast neitt legat
né áheit, eins og skipulagsskráin gerir ráð fyrir, en auk áðurnefndr-
ar gjafar L. R. hefir Þ. Scheving Thorsteinsson lyfsali gefið sjóðn-
um minningargjöf um tvo látna lækna, kr. 100 fyrir hvorn.
Stjórn sjóðsins skipa nú: Gunnlaugur Einarsson, Þórður Edi-
lonsson og Þórður Thoroddsen. Auglýsir stjórnin vanalega í 2 viku-
blöðum fyrir lok ágústmánaðar styrkinn, og úthlutar honum í okt.
HeilsufræSissafn. L. R. hélt heilsufræðissýningu 6.—21. okt.
s.l. og sóktu hana um 17 þús. manns. Nettóágóðanum, ca. 4—5 þús.
krónum, hefir verið ákveðið að verja til stofnunar heilsufræðis-
safns. Vísir til þess er þegar fyrir hendi, þar sem Deutsches
Hygienisches Museum í Dresden hefir gefið félaginu ca. 40 vegg-
myndir, sem voru á sýningunni. Auk þess á það töluvert af mynd-
um, línuritum og præpárötum. Komið hefir til mála, að efna til
sýninga úti um land með munum þessum.
AlþýSufræSsla. Félagið beitir sér fyrir alþýðufræðslu um heil-
brigðismál fyrir tiistyrk félagsmanna.
LæknavörSur. Félagið sér um læknavörð að næturþeli í Reykja-