Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1935, Page 18
18
sanna, að þeir fullnægi að minnsta kosti eftirtöldum ákvæðum um
sérmenntun:
a) Sérfræðingar í lyflæknisfræði: þriggja ára starf á lyflækninga-
deild. Tvö ár af þessum tíma skal læknirinn hafa verið að-
stoðarlæknir á Landsspítalanum eða jafngildu sjúkrahúsi.
b) Sérfræðingar í handlæknisfræði: þriggja ára starf á handlækn-
ingadeild, þar af tvö ár aðstoðarlæknir á Landspítalanum eða
á jafngildu sjúkrahúsi.
c) Berklalæknar: hálfs árs starf á lyflækningadeild og tveggja ára
aðstoðarlæknisstarf á heilsuhæli.
d) Sérfræðingar í barnasjúkdómum: tveggja ára starf á bama-
spítala eða góðri barnadeild og 3 mánaða starf á farsóttardeild.
e) Sérfræðingar í tauga- og geðsjúkdómum: tveggja ára starf á
geðveikraspítala og eins árs starf á taugasjúklingadeild.
f) Sérfræðingar í kvennasjúkdómum og fæðingarhjálp: hálfs ann-
ars árs starf á kvennasjúkdómadeild og misseris starf á hand-
læknisdeild, eða tveggja ára starf á handlæknisdeild, sem all-
mikið fellur til að kvennasjúkdómum, og eins árs starf á fæð-
ingadeild.
g) Sérfræðingar í háls-, nef- og eyrna-sjúkdómum: misseris starf
á handlækningadeild og tveggja ára starf á háls-, nef- og eyrna-
sjúkdómadeild.
h) Augnlæknar: tveggja ára starf á augnlækningadeild.
i) Sérfræðingar í geislalækningum: tveggja ára starf á Röntgen-
stofu og 3 mánaða starf á húðsjúkdómadeild.
j) Sérfræðingar í „fysiurgi“: tveggja ára starf á fysiurgiskri deild,
3 mánaða vinna á taugasjúkdómadeild, 3 mánaða á handlækn-
inga- eða orthopædiskri deild.
k) Sérfræðingar í húð- og kynsjúkdómum: tveggja og hálfs árs
starf á húð- og kynsjúkdómadeild.
3. gr. Þeir, sem starfa á spítölum eða deildum, án þess að
vera þar fastráðnir starfsmenn, skulu leggja fram skilríki fyrir
því, að þeir hafi tekið fullan þátt í daglegum störfum spítalans.
4. gr. Skilyrði um viðurkenning sérfræðinga í öðrum grein-
um ákveður ráðherra, eftir tillögum læknadeildar, þegar þörf krefur.
Erindisbréf KéraSslækna.
1. gr. Embættisstörf héraðslækna. Héraðslæknar hafa, hver
innan síns héraðs, eftirlit með heilbrigðismálum og annast þar fram-
kvæmdir opinberra heilbrigðisráðstafana samkvæmt lögum og fyrir-
mælum ráðherra, undir eftirliti og samkvæmt nánari leiðbeining-
um landlæknis.
2. gr. Héraðslæknar stunda, almennar lækningar. Gegningar-
skylda héraðslækna. Héraðslæknar stunda almennar lækningar í hér-