Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1935, Blaðsíða 32
32
ingarlaust er og að gefa þetta vottorð tíðar en á vikufresti. — Vott-
orðið má senda beint til tryggingarinnar; greiðir hún 2 krónur fyrir
vottorðið.
4. Ororkuvottorð.
Þegar sýnt þykir, að slysið muni valda varanlegum orkumissi,
þá gefur læknir lýsingu á ástandi slasaða á þetta eyðublað. —
Venjulega er þó þýðingarlaust að gefa vottorð þetta fyrr en liðnir
eru 4—6 mánuðir frá því að áverkar af slysinu eru fullgrónir. —
Vottorðið má senda beint til tryggingarinnar, og greiðir hún 10
krónur fyrir það.
Jafnótt og læknisvottorð á framangreindum eyðublöðum berast
tryggingunni í hendur, eru þau færð viðkomandi lækni til tekna í
viðskiptareikningi. Vottorðin eru greidd á skrifstofu tryggingarinn-
ar, gegn kvittun, hvenær sem óskað er. Læknar utan af landi verða
að gefa umboð til að hefja greiðsluna. I árslok hver verður læknum
send tilkynning um það, sem þeir kunna að eiga óhafið, og geta
þeir þá ávísað því eða gefið umboð til að hefja það.
IV. Sjóðir og styrkir.
StyrktarsjóSur ekkna og munacSarlausra barna íslenzkra lækna.
Stofnaður 1925. Reglugerð sjóðsins er prentuð í Árbók 1931,
1932 og 1933. Stjórn sjóðsins skipa nú Þórður Thoroddsen íormað-
ur, Gunnl. Einarsson og Þórður Edilonsson meðstjórnendur.
Kanadasjóður.
Stofnaður 1930 af Kanadaþingi með 25 þús. dollara gjöf til
íslands í tilefni af 1000 ára minningarhátíð Alþingis.
„Tilgangur sjóðsins er að styrkja ísl. námsmenn og fræðimenn
til háskólanáms í Kanada. Styrkur skal einkum veittur kandídötum
frá Háskóla íslands eða ísl. kandídötum frá erlendum háskólum,
verkfræðingaskólum eða öðrum hliðstæðum menntastofnunum. Þó
má og veita stúdentum styrk þegar sérstaklega stendur á. Náms-
menn, er leggja stund á fræðigreinar, er snert geta atvinnulíf á
íslandi, skulu að öðru jöfnu ganga fyrir“.
Forsætisráðherra íslands hefir á hendi stjórn sjóðsins. Hann
úthlutar og styrkjum að fengnum tillögum Háskólaráðs eða ann-
ara stofnana, ef ástæður þykja til. Sami námsmaður getur fengið
styrk í fleiri en eitt ár. — Auglýsingar um styrk birtast í Lög-
birtingablaðinu. — Umsóknir um styrk skulu komnar til forsætis-
ráðherra fyrir 1. júlí. (Stj.tíð. B 1933, bls. 292.)