Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1935, Blaðsíða 26
26
geta fengið þar vist, hvaðan sem er af landinu, og er meðgjöfin
80—90 kr. á mánuði ef tveir eru saman í herbergi. Ef óskað er að
vera einn í herbergi eða hafa fleiri en eitt herbergi, þá er leigan
115—140 kr. eða meir á mánuði, eftir því hvað herbergið er stórt
eða fleiri en eitt. í þessu gjaldi er allt innifalið: Húsnæði, ljós, hiti,
fæði, þjónusta og einnig læknishjálp, en ekki lyf eða umbúðir.
Hafi gamalmenni ekki fótavist, þá hefir elliheimilið 4 sjúkra-
stofur fyrir 4—5 rúmföst gamalmenni, og margar tveggja manna
stofur. Er mánaðarmeðlag í þeim stofum 100 kr., eða 3 kr. 33 aurar
á dag fyrir hvern sjúkling.
Þurfi sjúklingurinn að vera einn í herbergi, er mánaðarmeð-
gjöfin 115 kr. til 140 kr., eftir stærð herbergisins. En þurfi sérstök
vökukona að vera hjá honum einum, verður að greiða sérstaka
borgun fyrir það, er ráðsmaður ákveður.
Umsóknum um dvöl á heimilinu á að fylgja full ábyrgð á öll-
um dvalarkostnaði og heilsufarsvottorð frá einhverjum lækni, sem
er vel kunnugur umsækjanda. Lætur ráðsmaður heimilisins í té
eyðublöð bæði fyrir umsóknir og vottorðin, og eru þau honum send
aftur, þegar búið er að útfylla þau, og síðan lögð undir úrskurð
stjórnarnefndar, er hefir fund a. m. k. hvert föstudagskvöld.
Gamalmenni á framfæri Reykjavíkur fá læknishjálp hjá sömu
læknum og aðrir þurfamenn bæjarins. En Sig. læknir Magnússon
vitjar annara vistmanna á kostnað heimilisins. Óski vistmaður að fá
einhvern annan lækni, er það heimilt, enda greiði hann þá sjálfur
læknishjálpina.
Þurfi að flytja vistmann brott til uppskurðar eða annarar lækn-
ishjálpar í sjúkrahúsi, er allur kostnaður, sem af því leiðir, elli-
heimilinu óviðkomandi, og sömuleiðis útfararkostnaður, ef til kemur.
S. Á. Gíslason.
C. Fæðingardeildir.
FœSingardeild Landspítalans.
(Sjá Landspítalinn undir E.)
FæSingarheimilið Eiríksgötu 37, sími 1877.
Stofnað 1933. Forstöðukona Helga M. Níelsdóttir ljósmóðir.
Heimilið getur tekið á móti 14 sængurkonum í einbýlis-, tvibýlis-
og sambýlisstofur. Daggjald á sambýlisst. kr. 6, á tvíbýlisst. kr. 8
og einbýlisst. kr. 12. Hefir sérstaklega útbúna stofu fyrir fæðingar-
aðgerðir.
Fæðingar- og hjúkrunarklinikin Sólheimar,
Tjarnargötu 35, sími 3776, Rvik.
Stofnuð 16. nóv. 1930. Forstöðukona: Ása Ásmundsdóttir ljós-