Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1935, Blaðsíða 25
25
legur fatnaður (einkum skófatnaður), ef þörf var. Aðeins börn úr
lögsagnarumdæmi Reykjavíkur koma til greina, og eru þau valin
í samráði við lækni og fátækrastjórn Reykjavíkur (venjulega borg-
arstjóra) af þar til valinni nefnd innan I.O.O.F.-reglunnar.
Barna- og fávitahælið ,,Sólheimar
tók til starfa á árinu 1931. Hælið er reist á jörðinni Hverakot £
Grímsnesi, sem er eign Prestafélags íslands, en hælið er sjálfs-
eignarstofnun, gefið af stofnandanum, ungfrú Sesselju Sigmunds-
dóttur, sem veitir hælinu forstöðu. — Tekur það á móti börnum
á öllum aldri til skemmri eða lengri dvalar, einnig til fulls
uppeldis. Meðgjöfin er 50 kr. á mánuði, ef um lengri tíma er að
ræða, annars 60 kr.
Fávitahælið er einnig undir stjórn ungfrú Sesselju Sigmunds-
dóttur. Var sumarið 1933 byggt sérstakt steinhús fyrir þá, sem
rúmar 24 fávita, 12 drengi og 12 stúlkur. Meðgjöf er 80—100 kr.
á mán. eftir ástandi fávitans. (Skipul.skrá í Stj.tíð. 1934 B, bls. 35.)
í þessum gjöldum er í báðum deildum allt innifalið, líka
kennsla og læknishjálp. Hverri umsókn verður að íylgja læknis-
vottorð um, að umsækjandi hafi engan næman sjúkdóm.
BarnaheimiliS ,,VorblómiS“
er stofnað 1. júní 1928. Tekur börn á öllum aldri, um lengri eða
skemmri tíma. Meðlag er kr. 60,00 á mánuði; er ívilnun veitt, ef
mörg börn eru frá sama heimili. Bömin eru klædd, meðan þau
dvelja á heimilinu (að skófatnaði undanteknum). Börnin þurfa að
vera heilbrigð og hafa læknisvottorð um, að þau hafi ekki neinn
smitandi sjúkdóm. Heimilið rúmar 25—30 börn. Heimilið hefir hús-
næði í Franska spítalanum. Forstöðukona er Þuríður Sigurðardóttir.
Dagheimili Barnavinafélagsins „Sumargjöf“.
Félagið tekur börn til pössunar yfir daginn, sumarmánuðina
maí—sept. Hefir húsnæði og leikvelli í Grænuborg við Laufásveg.
Börn eru tekin á aldrinum 3—12 ára og koma á heimilið kl. 9 að
morgni og fara heim aftur ld. 6 að kveldi. Á heimilinu fá þau mat
og alla umönnun yfir daginn. Læknir er látinn skoða börnin í fyrsta
sinn er þau koma og nákvæmlega fylgst með heilsufari þeirra úr
þvi. Auk annars starfsfólks starfar þar hjúkrunarkona frá „Rauða
Kross íslands". Meðgjöf er 25 kr. á mánuði, en þó er gefinn afslátt-
ur á þessu gjaldi eða það gefið eftir að fullu, eftir ástæðum heim-
ilanna. Heimilið nýtur styrks úr bæjarsjóði.
B. Elliheimili.
ElliheimiliS „Grund“, Reykjavík.
Elliheimilið getur tekið á móti um 150 gamalmennum. Allir