Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1935, Page 17
17
aðarskýrslunni skulu þeir hafa skilað á póst eigi síðar en átta
nóttum eftir mánaðamót.
7. gr. Öðrum skýrslum og upplýsingum en um getur í 6. gr.
og héraðslæknar þurfa á að halda til ársskýrslna sinna, skulu starf-
andi læknar og þeir, sem lækningaleyfi hafa, aðrir heilbrigðisstarfs-
menn, heilbrigðisstofnanir og prestar eða aðrir, sem annast manntal
og skrásetningu mannsláta, hafa skilað til viðkomandi héraðslækn-
is eða á póst eigi síðar en í janúarlok næsta ár.
Héraðslæknar semja ársskýrslur á þar til gerð eyðublöð eftir
fyrirmælum landlæknis og skulu hafa lokið henni og skilað til land-
læknis eða á póst eigi síðar en í marzlok næsta ár.
8. gr. Héraðslæknar skulu svara bréfum og skeytum landslækn-
is, varðandi embætti þeirra, heilsufar í héruðum þeirra eða önnur
heilbrigðismál samstundis eða á næturfresti, nema hann gefi frest
til undirbúnings svarinu, eða um lögleg forföll sé að ræða.
Tilsvarandi skyldur hafa aðrir læknar, þeir, sem hafa lækninga-
leyfi, aðrir heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisstofnanir, gagnvart
landlækni og viðkomandi héraðslækni.
9. gr. Nú vanrækir læknir, eða sá, sem til þess hefir skyldur
samkvæmt lögum og reglugerðum eða fyrirmælum landlæknis, að
skila fyrirskipuðum skýrslum eða svara bréfum og fyrirspurnum
samkvæmt þessari reglugerð, og má þá ráðherra, eftir tillögum
landlæknis, láta viðkomandi sæta dagsektum, 5 krónum fyrir hvern
dag, sem líður fram yfir settan frest.
Sektirnar má taka lögtaki. Ef héraðslæknir á í hlut eða læknir,
sem hefir laun úr ríkissjóði eða frá stofnunum ríkisins, má ráðherra
auk sektanna stöðva launagreiðslur til hans, unz skil hafa verið
gerð.
10. gr. Sektir lækna samkvæmt reglugerð þessari skulu renna í
styrktarsjóð ekkna og munaðarlausra barna íslenzkra lækna. Sektir
annara renna í rikissjóð, nema ráðherra heimili að þær skuli renna
í tilsvarandi styrktarsjóði eftir nánari ákvæðum landlæknis.
ReglugerS um skilyrSi fyrir veitingu lækningaleyfis og sérfræS-
ingaleyfis, samkv. 1. nr. 47, 23. júní 1932.
1. gr. Læknar þeir, sem óska lækninyaleyfis, skulu sanna, að
þeir hafi að minnsta kosti
a) unnið kandídatsvinnu á góðu almennu sjúkrahúsi (eða bæði
á lyflækninga- og handlækningadeild) í eitt ár.
b) verið á fæðingarstofnun í að minnsta kosti einn mánuð.
Þeir, sem hafa starfað sem fastir kandídatar á Landspítalan-
um í eitt ár, eru undanþegnir síðarnefnda skilyrðinu.
2. gr. Læknar þeir, sem æskja sérfræðingaleyfis, skulu auk
þeirrar framhaldsmenntunar, sem áskilið er í a- og b-lið 1. greinar,
2
L